Fréttablaðið - 04.11.2005, Qupperneq 77
4. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR36
Í kvöld ætla reiðustu og rudda-
legustu skáld Íslands að lesa upp
á Grand rokki. Þau skáld sem
stíga á stokk eru meðal annarra
Erpur Eyvindarson og massaðasti
höfundur landsins, Stefán Máni,
mætir ásamt Dóra DNA.
Kristjón Kormákur les úr
Frægasti maður í heimi og einn
allra besti vinur ljóðsins, Eiríkur
Örn Norðdahl kemur alla leið frá
Ísafirði en fjölmargt prútt og sett-
legt fólk gruna hann um græsku
og telja hann versta vin sem ljóð-
ið hefur nokkurn tíma eignast.
Skáldkonan Birgitta Jónsdóttir
les svo úr skáldsögu sem kemur
út eftir örfáa daga.
Óttar Proppé og Þorgeir, með-
limir hljómsveitarinnar Rass,
stíga á stokk undir nafninu Rass-
kinnar og hvílir nokkur leynd
yfir atriðinu en hljómsveit þeirra
félaga hefur vakið mikla athygli
fyrir frumlega, skemmtilega og
um leið grófa textagerð.
Efri hæðin á Grand Rokki
verður vel skreytt. Drungalegar
myndir Örvars Árdal munu prýða
veggina en hann er einn af efni-
legustu myndlistarmönnum þjóð-
arinnar.
Skipuleggjendur hátíðarinn-
ar vilja beina þeim tilmælum til
fólks að fjölmenna á Grand Rokk
og hafa sem mestan hávaða og
frammíköll á meðan á upplestri
stendur. Aðgangur er ókeypis og
hefst dagskráin klukkan 22.
KRISTJÓN MÁR KORMÁKSSON
Hann er eitt reiðu skáldanna
sem les upp úr verkum sínum í
kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Reiðu skáldin á Grand Rokk
Út er komin nýstárleg ljósmynda-
bók eftir Katrínu Elvarsdóttur
og fylgir henni geisladiskur með
tónlist eftir Matthías Hemstock,
sem samdi tónlistina sérstaklega
með hliðsjón af stemningunni í
myndum Katrínar. Bókin heitir
Mórar-Nærvídd og útgefandi er
12 Tónar.
Ljósmyndir Katrínar eru tekn-
ar með frumstæðri plastmynda-
vél, sem gefur myndunum sér-
stæðan blæ, draumkenndan og
drungalegan. „Mér finnst þessi
frumstæða ljósmyndatækni passa
við viðfangsefnið, þessa drauga-
legu staði og dularfulla landslag,“
segir Katrín.
Hún á nokkrar plastvélar, en
segir þessa sem hún notaði fyrir
bókina vera þá frumstæðustu af
þeim. „Hún er mjög gömul, frá
sextíu og eitthvað. Upphaflega
voru þessar myndavélar hugsað-
ar til þess að koma ljósmyndun til
allra, þetta var ódýr leið og svona
myndavélar fylgdu oft með áskrift
að blöðum, til dæmis í Ameríku.“
Myndirnar eru teknar víða um
Ísland, á eyðilegum stöðum með
yfirgefnum mannvirkjum. Katrín
tók myndirnar á ferðum sínum til
landsins meðan hún bjó úti í New
York. „Ég valdi staði sem mér
fannst eitthvað drungalegir eða
eitthvað spennandi við og reyndi
að taka myndirnar í þungbúnu
veðri. Ég fékk síðan þá hugmynd
að láta Matthías gera tónlist við
myndirnar, sem myndi fylgja með
á geisladiski.“
Þau Matthías og Katrín þekkj-
ast frá námsárum sínum í Boston.
Myndirnar í bókinni eru um það
bil fjörutíu talsins, en verkin á
geisladisknum eru fimm.
„Verkin eru unnin að mestu
leyti úr umhverfishljóðum sem
eru tekin upp á svipuðum eða
jafnvel sömu stöðum og hún tók
myndirnar,“ segir Matthías, sem
vann síðan með þessi hljóð og
bætti ofan á þau rafhljóðum til
þess að ná fram ákveðinni stemn-
ingu sem honum fannst passa við
myndirnar.
Bragi Ólafsson skáld skrifar
stuttan inngang að bókinni, sem
einnig er saminn með hliðsjón af
stemningunni í myndunum.
Draumkenndar myndir og
draugaleg umhverfishljóð
KATRÍN ELVARSDÓTTIR LJÓSMYNDARI OG MATTHÍAS HEMSTOCK TÓNLISTARMAÐUR Þau
unnu saman að nýstárlegri bók þar sem ljósmyndir og tónlist fylgjast að.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
��������
�������
���������������������
�� � � �
������
����������
����
����������
��� ����
������
�����
����������������������������������������������������������������������� �����������
�
����������������������������
���������������������������
����������������������������������������
���������������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����������������������������������������������������������������
����������������������������������������������� ����������
���������������������������
������������������������
��������������
������������
��
eftir Thomas MEEHAN, Charles STROUSE & Martin CHARNIN
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Frábær fjölskylduskemmtun!
- Fréttablaðið
HHHH -DV
Stóra svið
Salka Valka
Lau 12/11 kl. 20 Fi 17/11 kl. 20
Fi 24/11 kl. 20 Fö 25/11 kl. 20
Su 4/12 kl. 20 Su 11/12 kl. 20
Woyzeck
Lau 5/11 kl. 20 Rauð kort
Fi 10/11 kl. 20 Græn kort Fö 11/11 kl. 20 Blá
kort Fö 18/11 kl. 20 Lau 19/11 kl. 20
Kalli á þakinu
Su 6/11 kl. 14 UPPSELT Su 13/11 kl. 14
Su 20/11 kl. 14 Lau 26/11 kl. 14
Su 27/11 kl. 14 Su 4/12 kl. 14
Id - HAUST
Wonderland, Critic ´s Choice?
og Pocket Ocean
Í kvöld kl. 20 FRUMSÝNING
Su 6/11 kl. 20 Su 13/11 kl. 20
Su20/11 kl. 20 Mi 23/11 kl. 20
Aðeins þessar 5 sýningar!
Nýja svið/Litla svið
Lífsins tré
Í kvöld 4/11 kl. 20 UPPSELT
Lau 5/11 kl. 20 Fi 10/11 kl. 20 UPPSELT
Fö 11/11 kl. 20 Fö 18/11 kl. 20
Alveg brilljant skilnaður
Su 6/11 kl. 20 UPPSELT
Su 13/11 kl. 20 UPPSELT
Su 20/11 kl. 20 UPPSELT
Su 27/11 kl. 20 AUKASÝNING UPPSELT
Má 28/11 kl. 20 AUKASÝNING
Síðustu sýningar!
Manntafl
Lau 12/11 kl. 20 Fi 17/10 kl. 20 Fi 24/10 kl.20
MiðasalMiðasala á netinu
Einfalt og þægilegt er að kaupa leikhúsmiða á
heimasíðu Borgarleikhússins
www.borgarleikhus.is Þar er einnig að finna ým-
san fróðleik um verkin sem sýnd verða í vetur.
Sjá nánar á gerduberg.is