Tíminn - 21.12.1975, Blaðsíða 5

Tíminn - 21.12.1975, Blaðsíða 5
Sunnudagur 21. desember 1975. TÍMINN 5 Hún fetar í fótspor föður síns Ep,li6 fellur ekki langt frá eik- inni segir málshátturinn. Taryn 81 órs en unglegur — bað er ágætt að sigla i kring um hnöttinn, þegar maður er orðinn 81 árs gamall, segir Harold MacMillan fyrrverandi forsætisráðherra Breta. En hvernig er hægt að vera svona hress og unglegur á þessum aldri.spyrja menn þennan fyrr- verandi forsætisráðhterra. — Það getur maður, ef maður leggur á sig að fá sér friskt loft, ogfara át að ganga öðru hverju, fara á refaveiðar og haga sér skikkanlega, segir gamli maðurinn. Hér á myndinni er hann að leika golf. Power dóttir kvikmyndahetj- unnar Tyrone Power leikur um ★ þessar mundir i kvikmynd á móti öðru leikarabarni, Patrick Wayne, sem er sonur Johns Wayne. Taryn er 21 árs gömul, og bráðlega mun hún giftast Ro- bert nokkrum Niels, sem sagður er sonur sænsks milljóna- mærings. Þau eru að skála hér á myndinni, sem fylgir. Taryn, sem er með sömu grænu augun og faðir hennar, segist ekki vita neitt dásamlegra en liggja uppi i rúmi og lesa rússneska heim- speki við kertaljós. — En svo gerðist það einusinni, segir hún, — að ég vaknaði við það að mér var orðið óskaplega heitt. Ég hafði þá sofnað út frá heimspek- inni og kertinu, og það var kviknað i rúminu minu. Nú seg- istTaryn hafa algjörlega misst alla löngun til þess að lesa við kertaljós, sem engum þykir merkilegt eftir að hafa heyrt þessa sögu hennar. ★ ★ Skinn eða gerviskinn Kápur, húfur og ýmislegt fleira hefur löngum verið eftirsótt vara. séu þessir hlutir framleiddir úr ekta skinnum. Afleiðingin er þvi sú, að viða liggur við, að dýrunum hafi verið útrýmt af þeim sökum ein- um, að fólk sækist svo m jög eftir feldi þeirra. Nú eru sér- fræðingar þó búnir að finna upp aðferðir til þess að framleiða eftirlikingar skinnanna. sem eru svo góðar, að leikmenn greina ekki muninn. og aðeins hinir færustu sérfræðingar sjá úr nokkurri fjarlægð. að hér er ekki um raunveruleg skinn að ræða. Stúlkan hér á myndinni er i jakka úr gervitigrisdýraskinni. Fáir mundu þekkja að hér er ekki um ekta skinn að ræða. Nú munu aðeins vera eftir um 2000 tigrisdýr á vernduðum svæðum allt frá Siberiu til Malaysiu. Onnur mynd er hér með, og sýnir hún jagúar. en jagúarinn á einnig yfir höfði sér útrýmingu. Mönnum hefur tekizt mjög vel að likja eftir jagúarskinnum. Þá er hér mvnd af jeparða og við hlið hans er stúlka úr gervi- skinnsskikkju, sem á að likjast skinnijeparðans. Aðeins munu vera til um 15 þús. jeparðar i heiminum i dag. Stúlkurnar. sem sitja hér á pokunum eru i ekta hlébarðaskinnsjökkum, og við lilið þeirra eru ozelotungi og fullvaxið dyr. Ekta hlébarða- skinn eru nú einungis fáanleg á svörtum markaði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.