Tíminn - 21.12.1975, Blaðsíða 39
Sunnudagur 21. desember 1975.
TÍMINN
39
Óvænt jólagjöf
gébé Rvik. — IÐNTÆKNI HF.
ákvað að veita tvö rafeindaiír af
vönduðustu gerð i verðlaun fyrir
kjörorð fyrir fyrirtækið. Iðntækni
efndi til samkeppni um kjörorð á
Alþjóðlegu vörusýningunni i
sumar.og barst fyrirtækinu fjöldi
tillagna. Fyrstu verðlaun hlaut
Sveinn Guðmundson, verzlunar-
skólanemi fyrir tillöguna:
..Iðntækni tækni nútimans” og
önnur verðlaun voru einnig veitt
O Sjálfstraust
kennt á ákveðnu timabili, og
hvaða timi skuli notaður til hvers
námseínis.
Hetta er það, sem verið er að
ganga úr skugga um núna. hvort
þessi atriði geti ekki staðizt og
næsta haust telur Pétur sig geta
sagt með nokkurri vissu, hvort sú
sé raunin.
Við spyrjum Pétur Th. Péturs-
son. hvort skilningur riki á þessu
starfi hans meðal forráðamanna
skólamála.
Kg held. að þrátt Tyrir fögur
orð riki heldur litill skilningur á
verkmenningu i landinu yfirleitt.
l>að er talað nógu fagurlega um
að auka verkmenntun. en á sama
tima gerist það hjá okkur. að
handavinnukennslan er skorin
niður um 1 tima i viku i 12. 13 og 14
ára bekkjum Petta er öfugþróun.
sem ég er sannfærður um að á
ettir að bitna á verkmenntuninni
ylirleitt. l>að getur vel verið. að
þessi kennsla sé þjóðfélaginu
kostnaðarsöm. en skyldi ekki sá
kostnaður margborga sig. þegar
skipulega er að kennslunni stað-
iðV
Við spyrjum Péturað þvi. hvort
ekki sé hörgull á smiðakennurum
i landinu.
í þvi sambandi vil ég geta
þess. að Mynd- og handiðaneínd
hefur unnið mjög athyglisvert
starl' i þessum efnum. t>v i
miður hefur hún ekki alltaf haft
árangur sem erfiði. og virðist
mér Kennaraháskólinn vera
meðal þeirra. sem helzt standa i
veginum. Kennaraháskólinn á að
minu mati að vera leiðandi aðili i
rannsóknum og tilraunum. en það
hlutverk hefur hann vanrækt á
ITestum sviðum. Það stafar af
þvi, að smiðakennaradeild Kenn-
araháskóla tslands hefur ekki náð
að þróast i samræmi við kröfur
annarra námsgreina og kröfur
timans, með þeim árangri, að
sum árin er aðeins einn kennari á
þvi sviði útskrifaður. Margir,
sem við smiðakennslu fást, og þá
sérstaklega úti á landi, eru smið-
ir, en ekki kennaralærðir. Þetta
er algerlega ófært. Hér er um að
ræða sérfag, sem krefst mikillar
sálfræðiþekkingar og sérstakrar
kennslufræðiþekkingar. Hér er
ekki um að ræða venjulega iðn-
grein eða venjulega kennslu-
grein.
Þá má að lokum geta þess, sein
er enn eitt dæmi um skilnings-
leysi yfirvalda skólamála i þess-
um efnum, sem er það, að ekki
skuli vera nein kennslubók til i
greininni. Verkfærin eru einu
kennslugögnin!
fyrir kjörorð, er notað skal fyrir
tölvudeild Iðntækni sérstaklega,
en þau verðlaun hlaut Viggó
Benediktsson, simvirkjameistari
fyrir ,,Tölvan er nútimans
völva”.
Myndin sýnir frá vinstri Gisla
B. Björnsson, sem átti sæti i
do'mnefnd, Svein Guðmundsson,
Viggó Benediktsson og Gunnlaug
Jósefsson, framkvæmdastjóra
Iðntækni.
Gjöf til félagsstarfsemi í
húsi Jóns Sigurðssonar
Þegar Hús Jóns Sigurðssonar
var opnað 1. september 1970
fengu tslendingafélag og Félag
isl. námsmanna i Kaupmanna-
höfn þar hálfa aðra hæð til um-
ráða. Er þar bókasafn og
smáfundaherbergi uppi, en
veitinga- og samkomusalur niðri.
Á margan hátt var það styrkur
fyrir félögin að eignast fast aðset-
ur i Húsi Jóns Sigurðssonar,
..Islands Kulturhus”. Starfsemin
varð öflugri og fjölbreyttari.
Þarna er opið dagl. og blöðin að
heiman og kaffisopi á boðstólum
fyrir alla landa á Hafnarslóð.
En félögin voru mjög fátæk að
öllu innanstokks. Skorti bæði
húsbúnað og tæki af öllu tagi. Að
frumkvæði nokkurra heimfluttra
Hafnar-lslendinga fór af stað á
árinu sem leið fjársöfnun á veg-
um Norræna félagsins. Var
markmið hennar að leysa þennan
vanda islenzku félaganna i Kaup-
mannahöfn og styrkja þau til
kaúpa á hverju þvi er efla mætti
starfsemi þeirra og menningu,
vöxt og viðgang, svo hæfði hinu
sögufræga húsi.
Nýlega hefur félögunum verið
afhent fyrsta gjöfin úr þessum
sjóði, 150 þúsund isl. krónur, sem
hafa verið yfirfærðar. Vilja
stjórnir félaganna hér með koma
á framfæri sinum beztu þökkum
fýrir gjöfina og þann hlýhug sem
henni fylgir.
(Frá tslendingum i Kaup-
mannahöfn). •
Versnandi afkoma
smásöluverzlunar
— 29,2 millj. kr. rekstrarhalli
Skipulags- og fræðsludeild
Sambandsins hefur serit frá sér
,,Skýrslur um smásöluverzlun”
fyrir árið 1974. Þetta er fimmta
áriði röð, sem slikar skýrslur eru
gerðar, en i þeim er gefið yfir-
lit yfir rekstur 44 kaupfélaga-
verzlana af ýmsum stærðum.
Kemur fram i skýrslunum, að s.l.
ár nam velta þessara 44 verzlana
samtals 2.500 millj. kr., en i þessu
úrtaki eru nær eingöngu mat-
vöruverzlanir. Árið 1974 nam
heildarvörusala kaupfélaganna
11.201 millj. kr. að meðtöldum
söluskatti. Innifalin i þeirri upp-
hæð er sala á margs konar sér-
vörum, svo sem fóðurbæti, bygg-
ingavörum, vélum og rekstrar-
vörum ýmis konar. Er þvi Ijóst,
að skýrslumar taka yfir umtals-
verðan hluta af matvöruverzlun
kaupfélaganna.
1 skýrslunum kemur fram, að
afkoma þessara verzlana versn-
aði mjög 1974 frá árinu áður. Á
sama tima og salan jókst um
39,1% jókst launakostnaður um
43,3%, annar kostnaður um 46,5%
og heildarkostnaður um 44,8%.
Skýringar á þvi, að annar
kostnaður hækkaði hlutfallslega
meir en launakostnaður, eru
aðallega tvær, þ.e. hækkun vaxta,
sem mun hafa enn meiri áhrif á
árinu 1975, og hækkun orku-
kostnaðar. Meðaltal brúttó-
hagnaðar þessara verzlana var
15,6%, en meðaltal heildar-
kostnaðar 16,8% af sölu með sölu-
skatti. Þannig varð halli þessara
verzlana 1,2% af sölu að meðal-
tali.Samtals varð halliþeirra 29,2
millj. kr., en var 11,4 millj. árið
1973.
|>Dlalia]]Í6luid
Magnús E.
Baldvinsson
Laugaveg 8, Reykjavik
Simi 22804
Jólatrésfagnaður
Jólatrésfagnaður fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna i Reykja-
vík verður að Hótel Sögu þriðjudaginn 30. desember kl. 15. Til
skemmtunarinnar verður vandað eins og endranær. Nánar aug-
lýst siðar.
ífrfwl
5! if
Hörður óskarsson og Guðmunda Gunnarsdóttir í hlutverkum sinum.
Hás dreki á Selfossi
BH-Reykjavik. — DREKINN
HÁSI heitir leikrit, sem Leikfélag
Selfoss frumsýnir á annan i jólum
i Selfossbiói, en ætlunin er að
sýna leikritið á ymsum stöðum á
Suðurlandsundirlendinu á milli
jóla og nýjárs og upp úr ára-
mótunum. Jón Hjartarson er leik-
stjóri, en leikritið er eftir Benny
Andersen, og þýðinguna gerði
Nina Björk Arnadóttir.
Jón Hjartarson sagði Timanum
i gær, að þetta væri barnaleikrit.
og afskaplega óhoilt fvrir full-
orðna, og þá einkum og sér i lagi
uppeldisfræðinga. Hér er um að
ræða fantasiu um dreka. sem
hringar sig utan um þorp eitt. svo
að enginn kemst út úr þvi eða inn i
það. Fullorðna fólkið er ekkert
sérlega burðugt. svo að börnin
taka til sinna ráða og bjarga
málunum. En það eru samt engir
skúrkar og engar hetjur. bara
skemmtilegur leikur.
Tiu manns taka þátt i sýning-
unni, auk pianóleikara.
Leiðin heim
— Ijóðabók eftir Þóru Jónsdóttur
ÚT ER komin hja Almenna bóka-
félaginu ljóðabók eftir Þóru Jóns-
dóttur, sem nefnist LEIÐIN
HEIM. Þetta er önnur bók skáid-
konunnar, en fyrsta ljóðabók
hennar i leit að tjaldstæði kom út
hjá AB árið 1973 og fékk góðar
viðtökur. Ljóðin i nýju bókinni
eru 56 að tölu.