Tíminn - 21.12.1975, Blaðsíða 30
30
TÍMINN
Sunnudagur 21. desember 1975.
Poppstjarna ársins 1975:
Bruce
Springsteen
NÚ-timinn efnir nú öðru sinni til vinsældarkosningar um beztu plötu ársins og væntir sem fyrr al-
mennrar þátttöku lesenda sinna. 1 fyrra bárust rúmlega 300 atkvæðaseðlar og þá var plata Steve
Wonder's Fulfillingness First Finale kosin bezta platan. Sem fyrr má greiða jafnt islenzkum sem er-
lendum plötum atkvæði og þess skal getiö að plöturnar þrjár sem þið nefnið fá allar eitt atkvæði
hver. Það skiptir þvi ekki máli i hvaða röð þið skrifið þær á atkvæöaseðilinn. SENDIÐ ATKVÆÐA-
SEÐLANA STKAX 1 DAG. Utanáskriftin er: Nú-timinn, Edduhúsinu v/Lindargötu.
SA TÓNLISTARMAÐUR, sem
hvað mesta athygli hefur vakið i
heiminum á þessu ári, er
tvimælalaust Bruce Spring-
steen, en hann hefur skotizt upp
á stjörnuhimin rokkstjarnanna
meö ótrúlegum hraöa. Óum-
deiianlega veröur aö nefna
Bruce Springsteen poppstjörnu
þessa árs.
Springsteen hefur á ör-
skömmum tima orðið heims-
frægur tónlistarmaður. Fyrir
nokkrum mánuðum var hann
svo til óþekktur. öll helztu
poppblöð og mörg önnur blöð og
timarit viðs vegar i heiminum
hafa á siðustu mánuöum veriö
uppfull af fréttum og viðtölum
við Springsteen.
Bruce Springsteen er fæddur
23. september 1949 i New
Jersey, og hann er mjög
hreykinn af fæðingarbæ sinum,
og tekur þaö yfirleitt skýrt fram
i viðtölum, að hann sé frá
Ashburg Park New Jersey. Sem
unglingur gutlaði hann við að
leika á gitar i' hinum og þessum
hljómsveitum. Hann var lengi
vel foringi hljómsveitar að nafni
Dr.Zoom And The Sonic Boom,
og siðar var hann foringi hljóm-
sveitarinnar Steel Mill.
Hvorug þessara hljómsveita
urðu frægar svo heitið gæti, en
upphafið að frægð Springsteens
má rekja til ársins 1967. bá
hitti hann mann að nafni
Tuikler, en sá bauðst til þess að
útvega Springsteen stöðu sem
gítarleikari i hljómsveit Janisar
Joplin. Springsteen fór með
Tuikler i þeim tilgangi til
Kalifomiu, en fékk reyndar
aldrei gitarleikarastöðuna hjá
Joplin. Hins vegar festi hann
rætur i Kaliforniu næstu fjögur
árin og lék á þeim tima vitt og
breitt með hinum og þessum
hljómlistarmönnum.
Aö þessum fjórum árum liön-
um, fór Tuikler meö Spring-
steen til New York i þeim
tilgangi að kynna hann fyrir
manni aö nafni Mike Appel.
Eins og I beztu ævintýrasögun-
um, gerðist það, að Appel varð
strax storhrifinn af þessum
tónlistarmanni og áður en langt
var umliðið, ákvað hann að
bjóða einhverju af stóru hljóm-
plötufyrirtækjunum samning
við Springsteen.
Á þessum tima var Spring-
steen einmitt aö lesa bók um
feril Bob Dylans, og i henni
segir frá þvl, hvernig Dylan
fékk samning hjá CBS. I bókinni
segir, að Dylan hafi einfaldlega
gengiö inn á skrifstofu John
Hammond, en hann sér um allar
ráðningar nýrra listamanna hjá
CBS. begar Dylan hafi komið
þar inn, hafi hann setzt niður,
tekiö upp gltarinn og sungið
nokkur lög fyrir þennan
Hammond. Og það var ekki aö
sökum aö spyrja: CBS gerði
samning viö hann strax.
Appel og Springsteen ákváöu
að viöhafa sömu aðferð, og viti
menn — allt fer á sömu leið og
hjá Dylan. Springsteen skrifar
strax undir samning hjá CBS
betta hljómar kannski eins og
lygasaga, en ku vera satt engu
aö sfður.
Eftir að Springsteen hafði
gert samninginn fer hann ásamt
Appeltil NewJersey. barsmala
þeir saman nokkrum hæfileika-
mönnum I sérstaka Spring-
steen-hljómsveit, en að
sjálfsögðu tók Springsteen ekki
annað i mál, en að hljóðfæra-
leikaramir væru allir frá New
Jersey. bessir menn voru:
Clarence „Nick” Clemons,
tenór og altsaxafónn, Max
Weinberg, trommur, Roy Brit-
an, hljómborð, Gary Tallent,
bassi og Steve Van Candt,
sólógitar, en sjálfur lék Spring-
steen á rythmagitar og ýmiss
önnur hljóðfæri, auk þess sem
hann söng.
bessi hljómsveit hlaut nafnið
E-Street Band og þykir þar
valinh maöur i hverju rúmi.
Aöur hafði Springsteen stofnað
aðra hljómsveit iNewJersey, og
var aðeins Clerence „Nick” I
þeirri hljómsveit einnig.
Fljótlega eftir stofnun hljóm-
sveitarinnar gaf hljómsveitin út
sina fyrstu plötu. Hún vakti litla
athygli og önnur plata hljóm-
sveitarinnar vakti heldur enga
sérstaka athygli. Astæöan fyrir
þvi aö þessar plötur vom ekki
taldar eins góöar og vonazt var
til, liggur fyrst og fremst i mjög
slakri stjómun á upptöku.
bað virtist ekki ætla að verða
nein breyting á upptöku-
stjórninni við. gerð þriöju
plötunnar, fyrr en atburður
nokkur átti sér stað, sem gjör-
breytti gangi mála. Springsteen
hitti mann aö nafni Jon Landau
(frægastur fyrir aö vera einn
helzti tónlistargagnrýnandi
Rolling Stone) og þaö var i
aprilmánuöi 1974. Nokkru eftir
að þeir hittust fyrst tók Landau
aö sér að skrifa grein um
bað virtist ekki ætla að verða
nein breyting á
upptökustjórnuninni við gerð
þriðju plötunnar fyrr en at-
burður nokkur átti sér stað,
sem gjörbreytti gangi mála.
Springsteen hitti mann að nafni
Jon Landau (frægastur fyrir að
vera einn helzti tónlistargagn-
rýnandi Rolling Stone) og það
var í aprilmánuði 1974. Nokkru
eftir að þeir hittust fyrst tók
Landau að sér að skrifa grein
um framtið rokktónlistarinnar
og þar segir hann, að Spring-
steen muni verða ein skærasta
stjarna hennar i framtiðinni.
bað er svo ekki fyrr en á
þessu ári, að hið eiginlega sam-
starf þeirra hefst. bá hafði
þriðja plata Springsteens Born
To Run verið i bigerð i átta
mánuöi og litiö gekk. Landau
féllst á að taka að sér stjórnun
upptökunnar, og eftir það gekk
verkið snurðulaust fyrir sig.
betta reyndist svo vera sú
plata, sem svo hressilega sló i
gegn I Bandarikjunum á s.l.
sumri — og reyndar viða i
heiminum, m.a. hér á landi, þó
enn séu fjölmargir
poppunnendur hérna, sem litt
þekkja til Springsteens.
bað er greinilegt að Spring-
steen á mikla framtið fyrir sér,
og án efa munu næstu LP-plötur
hans seljast i risaupplögum ef
að likum lætur. Spurningin er
hins vegar sú, hvort Springsteen
er eitthvert stundarfyrirbrigði,
eða hvort hann er poppstjarna
framtiöarinnar. Timinn mun aö
sjálfsögðu skera úr um það — og
Nú-timinn segja frá þvi'.
Sagt er að Springsteen sé
undir miklum áhrifum frá
Chuck Berry, Bob Dylan og Van
Morrison, en sé þó mjög frum-
legur I sinni tónlistarsköpun.
Styrkur hans felst einkum i
hinni sérkennilegu og hásu rödd
og sérstæðri uppbyggingu lag-
anna. 1 textum sinum fjallar
hann mikið um eigin bernsku I
New Jersey.
Fyrstu tvær LP-plötur hans
eru Greetings From Asbury
Park N.J. og The Wild, The
Innocent And The E. Street
Shuffle. -SþS-
Vinsældarkosning Nú-tímans um 10 beztu LP-plöturnar
1975:
Atkvæðaseðill
(Nafn plötu) (Flytjandi)
2 » •
Nafn: Heimi Aldur:
li: