Tíminn - 21.12.1975, Blaðsíða 6
TÍMINN
Sunnudagur 21. desember 1975.
Ingólfur Davíosson:
Byggt og búið
í gamla daga
Svalbarðskirkja á ferðalagi 28. okt. 1970.
Bráoum koma blessuð jólin.
Lttum á nokkrar gamlar kirkjur
og umhverfi þeirra við Eyja-
fjórð. Fyrsta kirkja á Akureyri
(sja mynd) var reist á árunum
1962-63, en rifin 1946. Hún stóð
innarlega við Aðalstræti, sem
lengi var helzta gata i bænum.
Fyrrum sóttu Akureyringar
kirkju að Hrafnagili. Fyrir
sunnan kirkjuna var fagur trá-
garður og er hann «1213 trjá-
ræktarstöð bæjarins. „Við skul-
uin fara í Akureyrarkirkju til
að heyra séra Geir Sæmunds-
sen tóna", var sagt á minum
uppvaxtarárum. Séra Geir var
orðlagður söngmaöur. Aður
gerði séra Matthías Jochums-
son „garðinn frægan" innan
kirkju og utan. Til vinstri á
myndinni sést Nonnahús, sbr.
siðasta þátt. Húsið var málað
hvitt en síðari tima menn gerðu
það svart. Það er varðveitt af
Zontaklúbb Akureyrar. Merki-
legt „Nonnasafn" er i húsinu.
Það var reist um 1859.
Það hefur verið mikið um
dýrðir við brúðkaup Mattheu,
dóttur Matthiasar Jochums-
sonar 18. mai 1900. Þá var
kirkjan tjölduð rauðu flaueli og
skreytt blómum. Myndina mun
frú Anna Schiöth hafa tekið.
Nú gnæfir tviturnuð Akur-
eyrarkirkja, reist 1940, uppi á
brekkuhorninu við Grófargilið.
En á grunni gömlu kirkjunnar
stendur nú litil timburkirkja,
flutt þangað utan af Svalbarði á
Svalbarðsströnd, en þar var
hún reist 1846 og notuö til 1956.
Or þvi stóð hún auð og ónotuö
um árabil, þar til Minjasafnið á
Akureyri eignaðist hana.
Kirkjan var flutt til Akureyrar i
heilu lagi á vagni 28. október
1970. Að lokinni viðgerð var.
hún endurvígð og nú fara fram i
henni kirkjulegar athafnir, svo
sem messur, giftingar og
barnasklrnir. Kirkjan er varö-
veitt á vegum Minjasafnsins,
Gamla trjáræktarstöðin I bak-
sýn á myndinni af Sval-
baröskirkju.
Hin myndin sýnir þegar verið
var aðl flytja... kirkjuna yfir
Eyjafjarðará.
Loks er hér brugðið upp mynd
af kirkju og söfnuði á Ytri-
Bægisá I öxnadal árið 1900.
Myndin tekin við fermingar-
messu (liklega tekin af Jóni
Arnasyni á Laugalandi á Þela-
mörk). Prestur var þá Theodór
Jónsson, en hann var prestur á
Bægisá 1890-1949 eða i hálfa öld.
Merkir klerkar hafa setið á
Bægisá, t.d. Jón Þorláksson
skáld 1788-1819 og Arnljótur
Ólafsson 1863-1890. Séra
Theodór var síðasti prestur
búsettur á Bægisá, sem nú er
annexia frá Möðruvöllum i
Hörgárdal.
Myndir þessar ásamt
skýringum eru fengnar að láni i
Minjasafni Akureyrar.
ATHUGASEMP. A myndinni
af gamla sýslumannshúsinu á
Akureyri 1903, er birt var i
þættinum 16. nóv. sl. sér á turn á
Hótel Akureyri t.v. Undir-
ritaður hafði gizkað á að þetta
kynni að j/era turninn á gömlu
Akureyrarkirkju.
Gamla Akureyrarkirkja. Nonnahús t.v.
Brúðkaupsvlgsluskreyting I Akureyrarkirkju 18. mai 1900.
•- ¦
Svalbarftskirkja
Að lokinni fermingarmessu á Bægisá 1900.