Tíminn - 21.12.1975, Side 6
6
TÍMINN
Sunnudagur 21. desember 1975.
Ingólfur Davíðsson:
Byggt og búið
í gamla daga
Svalbarftskirkja á ferðalagi 28. okt. 1970.
Bráðum koma blessuð jólin.
Litum á nokkrar gamlar kirkjur
og umhverfi þeirra við Eyja-
fjörð. Fyrsta kirkja á Akureyri
(sjá mynd) var reist á árunum
1962-63, en rifin 1946. Hún stóð
innarlega við Aðalstræti, sem
lengi var helzta gata i bænum.
Fyrrum sóttu Akureyringar
kirkju að Hrafnagili. Fyrir
sunnan kirkjuna var fagur trá-
garður og er hann elzta trjá-
ræktarstöð bæjarins. „Við skul-
um fara f Akureyrarkirkju til
að heyra séra Geir Sæmunds-
sen tóna”, var sagt á minum
uppvaxtarárum. Séra Geir var
orðlagður söngmaður. Aður
gerði séra Matthfas Jochums-
son „garðinn frægan” innan
kirkju og utan. Til vinstri á
myndinni sést Nonnahús, sbr.
siðasta þátt. Húsið var málað
hvitt en siðari tima menn gerðu
það svart. bað er varðveitt af
Zontaklúbb Akureyrar. Merki-
legt „Nonnasafn” er i húsinu.
bað var reist um 1859.
bað hefur verið mikið um
dyrðir við brúðkaup Mattheu,
dóttur Matthiasar Jochums-
sonar 18. mai 1900. bá var
kirkjan tjölduð rauðu fiaueli og
skreytt blómum. Myndina mun
frú Anna Schiöth hafa tekið.
Nú gnæfir tviturnuð Akur-
eyrarkirkja, reist 1940, uppi á
brekkuhorninu við Grófargilið.
En á grunni gömlu kirkjunnar
stendur nú litil timburkirkja,
flutt þangað utan af Svalbaröi á
Svalbarðsströnd, en þar var
hún reist 1846 og notuö til 1956.
Úr þvi stóð hún auð og ónotuö
um árabil, þar til Minjasafnið á
Akureyri eignaðist hana.
Kirkjan var flutt til Akureyrar i
heilu lagi á vagni 28. október
1970. Að lokinni viðgerð var.
hún endurvigð og nú fara fram i
henni kirkjulegar athafnir, svo
sem messur, giftingar og
barnaskirnir. Kirkjan er varö-
veitt á vegum Minjasafnsins,
Gamla trjáræktarstöðin i bak-
sýn á myndinni af Sval-
barðskirkju.
Hin myndin sýnir þegar verið
var aö flytja kirkjuna yfir
Eyjafjarðará.
Loks er hér brugöið upp mynd
a.f kirkju og söfnuði á Ytri-
Bægisá i öxnadal árið 1900.
Myndin tekin við fermingar-
messu (liklega tekin af Jóni
Arnasyni á Laugalandi á bela-
mörkí.Prestur var þá Theodór
Jónsson, en hann var prestur á
Bægisá 1890-1949 eða i hálfa öld.
Merkir klerkar hafa setið á
Bægisá, t.d. Jón borláksson
skáld 1788-1819 og Arnljótur
Ólafsson 1863-1890. Séra
Theodór var siðasti prestur
búsettur á Bægisá, sem nú er
annexia frá Möðruvöllum i
Hörgárdal.
Myndir þessar ásamt
skýringum eru fengnar að láni i
Minjasafni Akureyrar.
ATHUGASEMD. Á myndinni
af gamla sýslumannshúsinu á
Akureyri 1903, er birt var i
þættinum 16. nóv. sl. sér á turn á
Hótel Akureyri t.v. Undir-
ritaður hafði gizkað á að þetta
kynni að j/era turninn á gömlu
Akureyrarkirkju.
Svalbarðskirkja
Gamla Akureyrarkirkja. Nonnahús t.v.
Brúökaupsvigsluskreyting i Akureyrarkirkju 18. mai 1900.