Tíminn - 21.12.1975, Page 9
Sunnudagur 21. desember 1975.
TÍMINN
9
-■■ JÆÉÉlÍBB
*"*;v • .
‘V*
IgWilÍPIJfSi
.11»
ni i
Hverjum sem tekst að fanga „Nessie”, skrintslið i Loch Ness, verða
veitt verðlaun sent nema 5 milijónum marka. Verðlaunin eru tryggð
lijá Lloyds.
i Skotlandi næðist. „Whisky
fyrirtækið Cutty Sark, hefur heit-
ið verðlaunum hverjum þeim,
sem næði Nessie, og hefur tryggt
sig hjá Lloyd’s gegn þessum
ósennilega atburði. Tryggingin er
einu skilyrði háð: „Nessie” verð-
ur að vera flutt til London og
rannsökuð af þekktum dýrafræð-
ingi.
Brezkur maður að nafni
Edward Bransby frá Derby lagði
grundvöllinn aðfrægð Lloyd’s. 18.
febrúar 1688 lét hann birta aug-
lýsingu i fréttablaðinu London
Gazette, þar sem hann lýsti eftir
bólugröfnum, riðvöxnum manni
með hatt, sem hafði stolið frá
honum fimm vasaúrum. Hann hét
fundarlaunum þeim, sem gæti
veitt upplýsingar, sem gerðu hon-
um kleift að nálgast eignir sinar,
ogskyldi sá hinn sami snúa sér til
Lloyd’s kaffihússins.
Þetta kaffihús i Tower street
var á sinum tima einskonar
fréttamiðstöð þar sem brezkir út-
gerðarmenn og kaupmenn komu
til að semja um vöruflutninga og
tilkynna um komur skipa og einn-
ig til að tryggja skip, farma og
áhafnir gegn skemmdum og slys-
um. Á þessum fyrstu árum
Lloyd’s trygginganna, sem i tvær
aldir hélt sig eingöngu við skipa-
útgerð,skapaðistreglanum jafna
ábyrgð svo og undirskriftarregl-
an. Hverjum ogeinum var frjálst
að leggja undir eins og honum
sýndist. Fór það eftir þessari
upphæð, hve stór hver hlutur
varð, er skipin komu óskemmd i
höfn i Englandi og tryggingar-
upphæðinni var skipt upp. Þeir,
sem höfðu fengið tryggingarum-
boð, gengu um meðal veitinga-
hússgestanna með óformlega
pappira og leituðu að undir-
skrifendum. Það gerðist einnig
með óformlegum hætti. Á eyðu-
blaðið sem á voru ritaðar nánari
upplýsingar um þaðsem tryggja
átti, merkti undirskrifandinn við
þá fjárupphæð, sem hann treysti
sér til að ábyrgjast.
Þessi viðskipti, sem byrjuðu
þarna i dimmu kaffihúsi i' Tower
street i byrjun gullaldar brezku
heimsverzlunarinnar, halda
áfram enn þann dag i dag i
Lloyd’s kauphöllinni i Lime
Street, og fylgja i meginatriðum
frumreglunum.
1 marmaralögðum sal, sem
venjulega er kallaður „herberg-
ið” fara viðskiptin fram likt og á
grænmetismarkaði. Hver bás er
aðsetur eins kaupsýslumanns eða
félags, sem hundruðir einstakra
undirskriftamanna hafa hallað
sér að. Básarnir eru um 250.
Langflestir eru þeir, em hafa
einbeitt sér að skipatryggingum,
eða 70 talsins, þá koma 30 i sam-
bandi við bilatryggingar og 20 i
sambandi við flugvélatryggingar.
Hinir sem eftir eru að tryggja allt
annað, sem hægt er að tryggja,
eða vilji er fyrir hendi til að
tryggja : Fætur balletstjörnunn-
ar Rudolfs Nurejews, demanta
Liz Taylor, eru tryggðir hjá þeim
gegn þjófnaði og einnig myndir
rússneskra einsetumarfha, sem
voru á sýningu á Washington.
í Lloyd’s kauphöllinni fundust
menn, sem voru fúsir til að skrifa
undir vátryggingarskirteini hjá
bónda sem vildi liftryggja dýr sin
gegn yfirgnæfandi hávaða frá
þotum i lágflugi. Krafa 40 með-
lirna kjálkaskeggsfélagsins i
Derbyshire, var samþykkt með
ósvikinni brezkri kimni Þeir
tryggðu yfirskegg sin. Ef skeggj-
unum hefði verið stolið eða kvikn-
að hefði i þeim, hefði Lloyd’s
þurft að borga hverjum um sig 20
pund.
7000 einstakir undirskrifendur
skipta nú með sér áhættunni, þeir
verða að eiga sjálfir i kringum
niu milljónir króna og verða að
leggja fjórar milljónir i
Frainlciðendur ameriska geimbilsins vátryggðu hann hjá Lioyds gegn
óhappi. Farartækið vann ágætlega og vátryggjendurnir fóru vel út úr
þeim viðskiptum.
Miiljarðatjón varö, þegar fellibylurinn Betsy fór yfir Florida: Lloyds borgaði allt
þaki.
GLERB0RGAR
einangrunarglerið er framleitt í
einni fullkomnustu glerverksmiðju
sinnar tegundar á Norðurlöndum,
ef ekki í Evrópu.
Kynnið ykkur verð og gæði.