Tíminn - 21.12.1975, Síða 13

Tíminn - 21.12.1975, Síða 13
Sunnudagur 21. desember 1975. TÍMINN 13 Athvarfið bezta hjá ektamakan- um. m > Þvotta- birnir s I Sædýra- safnið BH-Reykjavik. — Þvottabirnir eru komnir i Sædýrasafnið i Hafnarfirði. Karl og kerling, ekki ýkja stórvaxin og fremur mein- leysisieg, þrátt fyrir „bófa- grimurnar” um augun, sem ein- kenna þessi gæfu og skemmtilegu dýr. Þegar okkur Timamenn bar að garði i gær, hnipruðu þvottabirn- irnir sig saman úti i horni og virtu okkur fyrir sér af mikilli tor- tryggni. Þau hjúfruðu sig hvort upp að öðru, karldýrið talsvert stærra, og fengust ekki til að yfir- gefa öryggi hornsins, þrátt fyrir girnilegustu brauðbita, sem freistuðu þeirra úti á miðju gólfi búrsins. Þvottabirnirnir verða til húsa við hliðina á ljónabúrinu, og njóta þar nágrennis sjimpansanna. Vonandi leiðistþeim ekki f návist þeirra æringja. »----------------------> Það vekur jafnan athygli, þegar island eignast nýja rikisborgara. — Timamyndir: Gunnar Gulag- eyjarnar — I. bindi, eftir A. Solsjenitsyn komið út á íslenzku GULAG-EYJARNAR 1918-1956 eftir Alexander Solsjenitsyn, fyrsta bindi, er komið út i þýðingu Eyvindar Erlendssonar og Ás- geirs Ingólfssonar úr rússnesku. Útgefandi er Siglufjarðarprent- smiðja hf. Um bók sina segir höfundur m.a.: ,,I bók þessari finnast hvorki imyndaðar persónur né tilbúnir atburðir. Fólk og staðir er nefnt réttum nöfnum. Séu nöfn skammstöfuð, eru til þess eigin ástæður. Séu þau alls ekki nefnd, er það vegna þess að nöfn falla úr minni, — en allt var það einmitt svona. Með kvöl i hjarta hef ég geymt handrit þessarar bókar um árabil: Skyldan við þá lifandi var þyngri á metunum en skyldan við þá látnu. En nú, (sept. 1973) þeg- ar handritið hefur fallið i hendur öryggislögreglunni, á ég ekki annarra kosta völ, en að koma bókinni fyrir sjónir almennings.” Sovézki rithöfundurinn og sagnfræðingurinn Roy Medvedev skrifar: „Enginn þeirra, sem komst lifs af úr hinu hræðilega eyjahafi fangabúða og fangelsa Stalinstimans, er sami maður á eftir. Og ég held, að þeir verði ekki margir, sem geta staðið upp að loknum lestri GULAG-eyj- anna, og verið hinir sömu og við upphaf lesturs bókarinnar. Þess vegna get ég ekki komið auga á neina bók, hvorki i rússneskum bókmenntum né heimsbók- menntunum sem er sambærileg við þessa bók Solsjenit&yns....”

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.