Tíminn - 21.12.1975, Page 15
Sunnudagur 21. desember 1975.
TÍMINN
15
Hérna hampa þeir mununum sinum heldur kampakátir framan í okkur, strákarnir, Agúst, Hermann,
Ragnar, Jóhann Haukur og Ingi.
ina, sérstaklega verkfærin, þann-
ig að hann skemmi ekki smiðis-
gripinn og fari sér ekki að voða,
að minnsta kosti. Jú, það er mikið
komið undir áhuga kennarans.
Hann verður að þekkja nemend-
urna og geta fylgzt með þeim.
Hann verður að koma þeirri
hugsun inn hjá þeim, að smiðarn-
ar séu nám, en ekki aðeins af-
þreying frá öðru námi.
Við litum yfir smiðisgripina og
höfum orð á þvi, að þetta sé hag-
lega unnið af ekki eldri drengjum.
— Ég hef fulla ástæðu til að
gera mér vonir um, að þessir
strákar nái nokkuð langt. Þeir
hafa verið með frá byrjun, Lært
um verkfæri og efni, reynt að
finna úrlausnirnar sjálfir, skoðað
hug sinn og velt hlutunum Jyrir
sér og unnið skipulega að upp-
byggingu þeirra.
— Það er sem sagt um tilraun i
smiðakennslu að ræða hérna hjá
þér?
— Já, þetta er tilraunastarf-
semi i sambandi við kennsluáætl-
un, sem ég er með i smiðum, og
geri mér vonir um að geta full-
unniðáður en langt um liður. Hún
er komin nokkuð á veg i sam-
bandi við ákveðin tækniatri i,
hvað kennt er i hverjum bekk
skólans og hvaða verkfæri skuli
notuð á hverju stigi. Einnig hvað
viðkemur gerð kennsluáætlana og
námsmati, en nokkuð vantar á
rannsóknir á kennsluleiðum og
kennslutækjum.
Við biðjum Pétur að segja
okkur nánar frá þessari kennslu-
áætlun og kemur i ljós, að hún er
byggð á ákveðnum kennsluatrið-
um, sem tekin verða fyrir i 2—4
vikna áföngum. Sérstök viðmiðun
er höfð i einkunnagjöf. Kunnátta,
sem ákveðin er með hliðsjón af
úrlausn nemenda i samræmdu
prófi. Verkhæfni, þar sem um er
að ræða mat kennara á hæfni
nemenda til að leysa verkleg
vandamál i smiðatimum. Frum-
kvæði, sem byggist á hæfni nem-
anda til sjálfstæðis í hugsun og
frumkvæði i vali raunsærra verk-
efna. Vinnusemi, sem byggist á
dugnaði og natni nemanda i
kennslustundum. Astundun, sem
eru mætingar, hegðun og um-
gengni. Heildarfrágangur, sem er
frágangur nemanda á smiðis-
gripum sinum.
Má af þessu ljóst vera, að reynt
er að gefa nemandanum einkunn
miðað við hans eigin árangur á
timabilinu, en ekki út frá bekkj-
arheildinni, eins og svo oft hættir
til.
Kennslutaflan nær yfir öll
kennsluatriði, sem framkvæmd
eru og hafa verið. Er hún hin fjöl-
breytilegasta og jafnan færð i
hverri kennslustund, þannig að
samstundis er unnt að sjá, hvar
nemandinn er staddur i náminu,
og hverju hann hefur lokið.
Loks er hérna timaáætlun til
viðmiðunar, þar sem nákvæm-
lega er tekið fram, hvað skuli
Framhald á bls. 39.
Ragnar og Agúst sækja sér fyrirmyndir og teikna, en Ingi er að saga út.
Smiöastofan i Viðistaöaskóla, og strákarnir i 10 ára bekk eru önnum kafnir, en þeir eru f.v. Haukur, Jó-
hann, svo kemur Pétur og er að segja Hermanni til, Ragnar, Agúst, Ingj, Njáll og Agnar.
FRÁ RAFMAGNSVEITU REYKJAVÍKUR
Rafmagnsveitunni er það kappsmál, að sem fæstir verði
fyrir óþægindum vegna straumleysis nú um jólin sem
endranær Til þess að tryggja oruggt rafmagn um hátíðirn
ar, vill Rafmagnsveitan benda notendum á eftirfarandi
1
2
3
4
Reynið að dreifa elduninni, þ.e. jafna
henni yf ir daginn eins og kostur er, eink-
um á aðfangadag og gamlársdag. Forð-
ist, ef unnt er, að nota mörg straumfrek
tæki samtímis, t.d. raf magnsofna, hrað-
suðukatla og brauðristar — einkanlega
meðan á eldun stendur.
Farið varlega með öll raftæki til að forð-
ast bruna og snertihættu. 111a meðfarnar
lausataugar og jólaljósasamstæður eru
hættulegar.
Otiljósasamstæður þurfa að vera vatns-
þéttar og af viðurkenndri gerð.
Eigið ávallt til nægar birgðir af vartöpp-
um Uöryggjum"). Helstu stærðir eru:
10 ampter = ljós
20-25 amper = eldavél
35 amper = aðalvör fyrir íbúð.
Ef straumlaust verður, skuluð þér gera
eftirtaldar ráðstafanir:
Takið straumfrek tæki úr sambandi. Ef
straumleysið tekur aðeins til hluta úr
íbúð, (t.d. eldavél eða Ijós), getið þér
sjálf skipt um vör í töflu íbúðarinnar.
Ef öll íbúðin er straumlaus, getið þér
einnig sjálf skipt um vör fyrir íbúina í
aðaltöflu hússins.
Ef um víðtækara straumleysi er að ræða
skuluð þér hringja í gæslumann Raf-
magnsveitu Reykjavikur.
Bilanatilkynningar í sima 18230 allan
sólarhringinn. ,
Á aðfangadag og gamlársdag til kl. 19
einnig i símum 86230 og 86222.
Vér flytjum yður beztu óskir um
Gleðileg jól og farsæld á komandi ári. með
þökk fyrir samstarfið á hinu liðna.
RAFMAGNSVEITA
rtl REYKJAVÍKUR
* Geymið auglýsinguna.
5
6
Dvergskip
— Ijóðmæli eftir Jónatan Jónsson
DVERGASKIP nefnast ljóðmæli
eftir Jónatan Jónsson, sem ny-
komin eru út. i bókinni. sem Haf-
steinn Guðmundsson gefur út. eru
45 ljóð. 1 formála hennar segir:
Ljóðlistin hefur. gengið eins og
rauður þráður gegnum islenzkt
þjóðlif frá upphafi. Hún hefur
bætt mönnum upp fátækt og
gleðisnautt lif. sefað sorg og
læknað mein. Kvæðin i þessarj
bók eru ort af sömu nauðsyn og
löngum hefur legið til grundvall-
ar islenzkum skáldskap. þau hafa
veitt höfundinum dýrmæta
sköpunargleði. svo að hann getur
tekið undir með skáldinu sem
sagði. ..eiginlega lifði ég aöeins
þegar ég o rti."