Tíminn - 21.12.1975, Side 27

Tíminn - 21.12.1975, Side 27
Sunnudagur 21. desember 1975. TÍMINN 27 KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — ÞREYING ofurlitið út i öfgar, en þar er þó meir handriti um áð kenna en tæknivinnu. Rýnin innsýn. bað má telja til fremstu kosta þessarar myndar, að hún gægist ofurlitið inn um dyrnar i bæjar- samféiagi þvi sem ókindin ræðst á og sýnir okkur nokkuð af þeim viðbrögðum, sem óhjákvæmileg virðast vera hjá mannlegum ver- um — viðbrögð sem við oftast skömmumst okkar ofurlitið fyrir og viljum helst gleyma eftir á. Sérstaklega er þar athyglisvert hvernig sýnt er mat á mannslif- um, við verðum að þekkja mann til að lif hans verði okkur pening- um dýrmætara. Þá er og athyglisverð sú mynd sem dregin er upp af hákarla- veiðimanninum Quint, svo og sögutilvisun sú sem hann verður i myndinni. Að öðru leyti visast til fyrri orða, ágætis afþreying, en ekki i sérflokki. Hrósverö viöbrögð. Ekki verður þó frá gengið, án þess að koma til forráðamanna Laugarásbiós hrósi, sem þeir vissulega eiga skilið, fyrir við- leitni þeirra til að sýna okkur nýj- ar myndir. Frumsýning Ókindarinnar i Laugarásbió var jafnframt frum- sýning myndarinnar i Evrópu og tiltölulega fáir mánuðir eru siðan hún var frumsýnd i USA. Þetta er framtak, sem aðrir kvikmyndahúsaeigendur ættu að taka sér til fyrirmyndar, ekki sið- ur en framtak Laugarásbiós i samstarfi sinu við Borgarbió á Akureyri nú. t GAMLA BÍÓ: r ÆVINTYRI HATTAR Jólamynd Gamla Biós i ár er teiknimynd frá Walt Disney, og að þessu sinni er viðfangsefnið ævintýri alþýðuhetjunnar brezku, hans Hróa Hattar. Teiknarar og hugmyndafræð- ingar Disney kvikmyndaversins hafa tekið þessar viðlesnu barna- bókmenntir og staðfært þær til dýrarikisins og ekki er að efa, að gaman má hafa af. Kvikmyndin fjallar að sjálf- sögðu um viðureign hetjunnar við Jóhann prins hinn illa, með hæfi- legu ivafi um ástir Hróa og hinnar fögru Marian. Þarf ekki að rekja það nánar hér, þar sem kænska og vopnfimi útlaganna, svo og grimmd og heimskuleg græðgi kúgaranna, eru flestum kunn af bók. Stjórnendur myndgerðar voru þeir Milt Kahl, Ollie Johnston, Frank Thomas og John Louns- bery, framleiðandi og kvik- myndastjóri Wolfang Reither- man. Raddir sögupersóna eru fengn- ar að láni hjá hinum og þessum leikurum, meðal annars þeim Brian Bedford, sem leggur til röddHróa Hattar, Peter Ustinov, sem talar fyrir munn Jóhanns hins illa, Phil Harris, sm hefur umsjón með litla Jóni og Monica Evans, sem leggur til rödd Marian. Þær teiknimyndir, sem Gamla Bíó hefur áður sýnt frá Walt Disney, hafa yfirleitt verið með þvi bezta sem völ hefur verið á i kvikmyndahúsunum hér á hverjum tima. Vonandi er þessi jafn vönduð, og gerð af jafn miklu hugmyndaauðgi og hinar fyrri myndir, þvi þá er tryggð hin bezta skemmtun fyrir hvern og einn. TÓNABÍÓ: PASSER OG MAFÍAN BORGARBÍÓ AKUREYRI: MANNAVEIÐAR UM ALPA fyrir kynlifsskort i efni hennar — þrátt fyrir að Dirch Passer lék þar aðalhlutverk. Þessi mynd hét „Mafian og ég”, og fjallaði hún um samskipti danska grallarans Passers við stærstu glæpareglu heims. Nú mun okkur gefast kostur á að sjá framhald af kvikmynd þessari, þvi jólamynd Tónabiós verður einmitt annar kapitulinn i viðureign þessari og ber hún nafnið, „Mafian, það er lika ég”. beir, sem sáu fyrri myndina minnast þess, að i lok hennar gengu Passer og Guðfaðirinn i íóstbræðralag og ákváðu að starfa saman i stað þess að berj- ast. Væntanlega fjallar þessi þáttur framhaldsflokksins um þetta samstarf og má búast við nokkrum stimpingum. Það er verst hvað framhalds- kvikmyndir hafa sterka tilhneig- ingu til að þynnast út og verða leiöinlegar, þvi Passer hefur þarna hitt á gott efni, sem honum lætur ágætlega að vinna ur. Vonandi er þessi kapituli jafn góður og sá fyrri. NÝJA BÍÓ: SKÓLALÍF Það er ekki ýkja oft, sem frændum okkar — og fyrrum kúgurum — Dönum tekst að framleiða gamanmyndir, sem kitla verulega hláturstaugar ts- lendinga. Að minnsta kosti ekki án þess að hafa ástalif i brenni- punkti, þvi einhvern veginn virð- istsem svo að þessar frændþjóðir hafi ekki annan húmor sameigin- legan en kynlifshúmor. Fyrir nokkru var þó sýnd kvik- mynd ein i Tónabiói, sem óneitan- lega var glettilega fyndin, þrátt fyrir danskan uppruna sinn, þrátt PAHÚSANNA í ÁR Reykjavik. sýni með þessu for- dæmi. sem vert væri að aðrir fylgdu eftir. Ef til vil! megum við eiga von á að i framtiðinni verði frumsýn- ingar kvikmvnda hér ekki ein- göngu bundar við Revkjavikur- húsin. heldur fari fram hingað og þangað um landið, eftir hentug- leikum hverju sinni. Væri þab vel. Jólamynd Nýja Biós ber heitið „Skólalif i Harvard”, en á frum- málinu nefnist hún ,,The Paper Chase”. Kvikmynd þessi fjallar, eins og nafniðbermeð sér,um lifog leiki stúdenta i Harvard háskólanum, einkum þó baráttu verðandi laga- spekinga, sem berjast við að ná prófi. Kvikmynd þessi hefur fengið mjöggóðadóma erlendisog þykir sýna nokkuð vel háskólalif i Bandarikjunum,án þess að falla i gagnrýnisstellingar fyrir gagn- rýninnar sakir. Hún sýnir nemendur, sem og kennara, sem menn, i mannlegu umhverfi, og tekur á vandamálum þeirra af skilningi, en ekki kreddufestu. Erlendir gagnrýnendur hafa sett mynd þessa i flokk með „The Graduate”, Goodbye Columbus”, Sumer of ’42” og „The last picture show”. Einkum hefur John Houseman hlotið góða dóma fyrir túlkun sina á háskólaprófessornum Kings- field — skurðgoðinu og ógnvaldin- um, sem svo reynist aðeins venjulegur maður. Einnig hefur þó Timothy Bottoms vakið hrifningu i hlut- verki Hart,laganemans, en önnur aðalhlutverk eru i höndum Lind- say Wagner, sem leikur Susan, unnustu Hart, Graham Beckel, sem leikur Ford og James Naughton, sem leikur hinn tauga- veiklaöa Kevin. Leikstjóri myndarinnar er James Bridges. Að minnsta kosti eitt kvik- myndahús á landsbyggðinni, Borgarbió á Akureyri, ætlar að brjóta sig undan ægivaldi reykvisku húsanna um þessi jól og taka kvikmynd til frumsýning- ar, i stað þess að leigja þegar notaða. Kvikmynd þessi er gerð af Clint Eastwood, sem jafnframt leikur aðalhlutverk hennar, og ber hún nafnið „EigerSanction”,en hefur á islenzku máli hlotið heitið „Mannaveiðar”. Kvikmynd þessi er um margt athyglisverð, ef til vill þó einkum fyrirdirfsku Eastwood, sem þrátt fyrirerfið og hættuleg atriði, not- aði aldrei staðgengil meðan á töku myndarinnar stóð. Söguþráður myndarinnar á sér staö i ölpunum og meðal þess sem söguhetjan verður á sig að leggja, er fjallganga upp snar- brattan klett, Eiger, og er ekki að efa, að þar getur lika spennandi atriði. Það sem athyglisverðast er þó við sýningu á mynd Eastwood, er sú stabreynd, að hún skuli frum- sýnd á Akureyri, í stað þess að fara hina venjubundnu leið um gimöld Reykvikinga fyrst. Kvik- myndin er flutt inn af Laugarás- bió, sem siðar mun taka hana til sýninga sjálft. Verður ekki annað sagt en að þessi tvö kvikmyndahús, Borgar- bió á Akureyri og Laugarásbió i

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.