Tíminn - 21.12.1975, Page 28
28
TÍMINN
Sunnudagur 21. desember 1975.
Steingervingar
hafi ennþá veriö fyrir ofan 0
gráöur Celsíus.
Krókskeljalögin er yngsta deild
hinna eiginlegu Tjörneslaga. Þau
eru kennd viö krókskel, Serripes
groenlandicus, og má rekja þau
frá Hallbjarnastaðaá til
Höskuldsvikur. Krókskeljalögin
eru að mestu gerö úr sjávarseti,
en efst i þeim eru þunn surtar-
brandslög. Neðst I lögunum gjör-
breytist sædýrafánan. Kuivisu
tegundirnar, sem voru til staðar i
Báru- eða Tigulskeljalögunum,
hverfa að mestu, en i þeirra stað
koma tegundir, sem lifa við svip-
aðan sjávarhita og nú er i hafinu
hér við land. Nokkrar kulvisar
tegundir ná þó upp i Krókskelja-
lögin, t.d. Solen ensis og Cyrto-
daria angusta. Sjávarhiti hefur
þvi trúlega verið eitthvað hærri
en nú er.
Það virðist liggja nokkuð beint
við að skýra þessar miklu breyt-
EDDA
ingar á sædýrafánunni einfald-
lega sem merki verulegrar kóln-
unar strax i byrjun isaldar. Áður
en lengra er haldiö þurfum við
samt að átta okkur á þvi, hvaða
nýjar tegundir koma inn i lögin og
einnig hvaðan þær koma. I
Krókskeljalögunum hafa fundizt
um það bil 80 tegundir snigla og
samlokna og það er athyglisvert,
að sumar þessar tegundir eru
ekki þekktar úr eldri jarðlögum
við Atlantshaf. Við nánari athug-
unkemur i ljós, að rúmlega fjórð-
ungur þeirra tegunda, sem finn-
ast i Krókskeljalögunum, virðist
upprunninn i Kyrrahafi, þvi að
þar — og ekki annars staðar —
hafa þær fundizt i eldri jarðlög-
um. Virðist þvi sem miklir sæ-
dýraflutningar hafi att sér stað úr
Kyrrahafi i Atlantshaf um þetta
leyti. Hafa jarðfræðingar sett
þetta i samband við opnun
Beringssunds, þegar sjór flæddi i
fyrsta sinn gegnum sundið.
Meðal tegunda, sem þátt tóku i
þessum flutningum, má nefna
jafnalgengar tegundir og beitu-
kóng, hafkóng, halloku, krókskel,
redduskel og bergbúa. Að
minnsta kosti 125 tegundir sælin-
dýra af Kyrrahafsuppruna hafa
komizt yfir i Atlantshaf um það
leyti sem Krókskeijalögin mynd-
uðust. Hins vegar hefur aðeins
verið hægt að sýna fram á, að 16
tegundir hafi komizt úr Atlants-
hafi yfir i Kyrrahaf um þetta
leyti. Þessi mikli munur þarfnast
skýringarog má benda á tvennt. t
fyrsta lagi lifðu fleiri tegundir i
Kyrrahafi og þvi átti sér aðallega
stað jöfnun yfir i Atlantshaf. 1
öðru lagi liggja straumar á
grunnsævi, fyrir norðan Ame-
riku, frá Beringssundi yfir i
Atlantshaf.
Þær breytingar á sædýralifi,
sem hér hafa verið ræddar, koma
HAUSTSKIP
eftir Björn Th. Björnsson. Ein sérstæöasta bók ársins. Hún opn-
ar ný og áður óbekkt sögusvið Islandssögunnar, hún greinir frá
þjóðinni týndu þegar valdsmenn seldu almúgafólk mansali,
eins og réttlausa þræla. Björn fer hér á kostum sem rithöfundur.
I SUÐURSVEIT
eftir Þórberg Þórðarson. Hér er að finna i einni bók æskuminn-
ingar Þórbergs, sem áður komu út i þrem bókum — Steinarnir
tala, Um lönd og lýöi og Rökkuróperan — en auk þess fjórðu bók-
ina, sem nú er prentuð i fyrsta skiptið.
VATNAJÖKW.L
texti eftir Sigurö Þórarinsson með myndum Gunnars Hannes-
sonar er fróðleg og afar falleg bók um þessa undraveröld frosts
og funa. Hrikaleiki einstakrar náttúru, sem hvergi er að finna
nema á Islandi, er aðalsmerki bókarinnar.
LEIKRIT SHAKESPEARE VI
i þýðingu Helga Hálfdánarsonar. Snilldarþýðingar Helga eru
löngu landskunnar. 1 þessu bindi eru leikritin: Rikharður þriðji,
óþelló, Kaupmaður i Feneyjum.
YRKJUR
eftir Þorstein Valdimarsson. Sjöunda ljóðabók þessa skálds rmin
verða hinum mörgu lesendum hans ærið fagnaögrefni.
DAGBÆKUR ÚR ISLANDSFERÐUM 1871-1873
eftir William Morris. Höfundur, enskur rithöfundur og stjórn-
málamaður, var mikill aðdáandi íslands og segir I bók þessari
frá tveim ferðum sinum hingað.
EDDAÞÓRBERGS
kvæðabók Þórbergs Þórðarsonar. Þar er aö finna flest þaö sem
Þórbergur orti bundnu máli, — skáldskapur. sem engan á sinp
lika.
FAGRAR HEYRÐI EG RADDIRNAR
Safn islenskra þjóökvæða. „Hér getur aö ltta þjóðina með von-
um hennar og þrám, draumum bæði illum og góðum, sigrum og
ósigrum, sorg og gleöi. Tærari skáldskapæm-sumar visur i þess-
ari bók er ekki að finna á islensku.”
VÉR VITUM El HVERS BIÐJA BER
útvarpsþættir eftir Skúla Guðjónsson á Ljótunnarstööum. Skúli
er löngu þekktur fyrir ritstörf sin. Hér getur að lita úrval á út-
varpsþáttum hans.
KYNLEGIR KVISTIR
eftir Maxim Gorki i þýðihgu-Kjartans ólassonar. Þetta eru þætt-
ir úr dagbók skáldsins, sem bera mörg helstu einkenni endur-
minningæ hans.
RAUÐI SVIFNÖKKVINN
eftir ólaf Hauk Simonarson og Valdisi'óskarsdóttur. Þetta er
einskonar opirtberunarbók i ljóðum og myndum — einkar hag-
lega samsettum ljósmyndum teknum á þfððhátiðarári.-
A þessu ári hafa ennfremur komiö út nýjar prentanir áð BRÉFJ
TJL LARU og OFVITANUM. Aðeins fáein eintök eru eftir af
ÆVISÖGU SÉRA ARNA ÞÓRARINSSONAR, ISþENSKUM
ADLIog FRASÖGNUM.
! OAGBÆKUR
WllllAM
1B71M0HIIS1873
f 1ÍR
ÍSIANDSFEROUM
einnig fram i jarðlögum annars
staðar viö Atlantshaf, t.d. við
Noröursjó og Miðjarðarhaf, en
við Norðursjó er koma hafkóngs
og krókskeljar talin marka byrj-
un isaldar. A Tjörnesi virðist hins
vegar aðgengilegast að timasetja
þessi merkilegu timamót, þ.e.
byrjun isaldar og aðskilnað hinna
stóru meginlanda Asiu og Ame-
riku. Svo er hraunlögunum fyrir
að þakka, en með segulstefnu-
rannsóknum á Tjörnessvæðinu
hefur verið sýnt fram á, að frá
mótum Tigul- og Krókskeljalaga
muni vera um það bil 3,3 milljónir
ára.
í Furuvikurlögunum, sem hvila
á hinum eiginlegu Tjörneslögum,
hafa engir steingervingar fundizt.
Hins vegar eru i Furuvik tvö
jökulbergslög og eru þetta elztu
menjar jökuls á Tjörnesi. Ofan á
jökulbergslögunum eru basaltlög,
sem rekja má norður i Breiðuvik.
Breiðavikurlögin, yngsta set-
syrpan á Tjörnesi, er um það bil
125 m á þykkt og gerð á vixl úr
jökulbergi og sjávarseti með
skeljum. Jökulbergslögin eru að
minnsta kosti fjögur, en á milli
þeirra er viðast sjávarset og
sums staðar hraunlög, en hvort
tveggja er myndað á hlýskeiðum
á isöld. Sædýrafánan i setlögun-
um i Breiðuvik er svipuð nútima
fánunnivið Island og þær tegund-
ir, sem hafa fundizt i lögunum,
lifa nú hér við land, nema hörpu-
diskategund ein, Chlamys breida-
vikensis, og samlokutegundin
Cyrtodaria angusta. Þessar tvær
tegundir eru i rauninni útdauðar.
Þá skal einnig bent á gest af
norðurslóð. Jökultodda — Port-
landia arctica— hefur fundizt á
tveim stöðum i Breiðavikurlög-
unum, en hún er óþekkt i eldra
sjávarseti á Tjörnesi og lifir nú I
köldum sjó norður i höfum. í
Breiðuvfk hefur hún á báðum
stöðum fundizt svo að segja beint
ofan á jQkulbergi og hefur þvi
sennilega lifað viö jökuljaðarinn i
vikinni. Nokkuð hefur fundizt af
plöntuleifum neðst I Breiöavikur-
lögunum, einkum frjókornum.
Ber mest á elri, viði og mjaðar-
lyngi. Litið er um frjókorn af
birki og barrtrjám og hafa tæp-
lega verið barrskógar á þessum
slóðum á myndunartimanum
fyrir 2,5 til einni milljón árum.
Steingervingar í i&lenzk-
um kvarterlögum
Yngsta timabil jarðsögunnar
nefnist kvarter og er það talið
hefjast fyrir um það bil 3,3
milljón árum. Timabilið skiptist i
tvö mjög mislanga tima, isöld og
nútima, en nútimi er talinn byrja
fyrir 10.000 árum. Þessi skipting
er að mörgu leyti hentug en hinu
er ekki að neita, að margir álita,
aö isöld riki i rauninni ennþá og er
þeim sjálfsagt nokkur vorkunn.
A isöld voru miklar sveiflur i
loftslagi og skiptust á skeið með
helköldu loftslagi — jökulskeið —
og svonefnd hlýskeið með lofts-
lagi svipuðu þvi sem nú er. Lofts-
lagssveiflur þessar hafa markað
greinileg spor I jarðlög isaldar,
gosberg, sem setlög, en saga
veðurfars og þróun lifsins siðustu
ármilljónir er skráð i þessar jarð-
lagamyndanir, einkum setlögin.
Á jökulskeiðum breiddust jökl-
ar yfirstórsvæði, sem núeru auð,
og jökulskildir huldu landið. Ekki
er vist, að Island hafi nokkurn
tima verið allt undir jökli. Hitt er
liklegra að smá svæði, einkum I
fjöllum á Norðurlandi, hafi verið
Islaus.
Yfirleitt er heldur auðvelt að
þekkja i sundur jarðmyndanir frá
isöld og nútima. Jarðlög frá isöld
bera þess venjulega merki, að
jökull hafi farið yfir þau, annað
hvort á meðan þau voru að mynd-
ast eða þá siðar. Þá er og gerlegt
að þekkja isaldarlög frá jarðlög-
um blágrýtismyndunarinnar, þar
sem loftslag á myndunartima
þeirra var mjög á annan veg. Að
visu runnu hraun i hlýskeiðum og
vissulega likjast sum þeirra
hraunlögum frá tertier, en á
ijökulskeiðunum hlóðust einnig
upp mörg móbergsfjöll, aðallega
við gos undir jökli. Móbergsfjöllin
eru fyrst og fremst mynduð á is-
öld og heldur er litið um móberg I
eldri og yngri jarðmyndunum. Þó
hefurfundizttertiert móberg, t.d.
i Mókollsdal i Strandasýslu, þar
sem hraunkvika hefur komið upp
i vatn, sennilega i stórri öskju,
fyrir meira en 7 milljón árum.
Einnig má benda á það, að mó-
berg er nú byrjað að myndast i
Surtsey, sem hlóðstupp i sjó fyrir
um það bil 10 árum.
Setlög frá isöld eru af ólikum
uppruna. Ar- og vatnaset ásamt
sjávarseti er varðveitt frá hlý-
skeiðunum, jökulárset frá lokum
jökulskeiða og jökulruðningur frá
sjálfum jökulákeiðunum. í jökul-
ruðningi er venjulega nokkuð um
jökulnúið grjót og lagskiptingin
oftast ógreinileg, enda ægir þar
öllu saman. Slikúr ruðningur
hvilir oft á jökulrispuðu undir-
lagi. tsaldarset, hverju nafni sem
það kann að nefnast, er yfirleitt
samanlimt og orðið að föstu
bergi: leir- og sandsteini, völu-
bergi eða jökulbergi.
Setlög frá isöld eru betur varð-
veitt hér á landi en viða annars
staðar, þar sem hraun hafa runn-
ið yfir þau og verndað fyrir sliti
og eyðingu.
Jarðlög frá nútima eru með
ýmsu móti: hraunlög, öskulög,
ár- og vatnaset ásamt sjávarseti.
Það sem fyrst og fremst einkenn-
ir lögin er að jökull hefur ekki
farið yfir þau og yfirleitt eru set-
lög frá nútima litt samanlimd og
ekki tiltakanlega hörð.
Löngum var álitið, að jökul-
skeiðin hefðu verið 4 eða 5, en
nýrri rannsóknir benda til þess,
að þau hafi verið mun fleiri. Sum-
ir nefna töluna 10, en aðrir telja
þau jafnvel hafa verið 20 til 30,
þ.e. allt að þvi eitt á 100.000 ára
fresti. Jökulskeiðin hafa verið
nokkuð mislöng og sama máli
gegnir um hlýskeiðin. Siðasta
KYNLEOIB
KVKSTIB
MÁL OG MENNiNG — HEIMSKRINGLA
Utdauðar skeljar, OYRTODARIA ANGUSTA, úr Tjörneslögunum.