Tíminn - 21.12.1975, Qupperneq 32
32
TÍMINN
Sunnudagur 21. desember 1375.
JÓLASVEINAR
Langt uppi i fjöllunum
býr hún Grýla, ,,en
hennar bóndi Leppalúði
liggur við sjó”. öll börn
kannast við þessi hjón:
,,Karlinn undir klöppun-
um, sem klórar sér með
löppunum og ber sig eft-
ir krökkunum — á
kvöldin.” Ogkerlinguna
sem er ,,gráðug eins og
örn, ,,en svo vandfædd
hún vill ei nema börn”.
Og eins og segir i visunni
,,hún vill ei börnin góð,
heldur þau, sem hafa
miklar hrinur og hljóð.
Þau, sem löt eru á lestur
og söng, þau eru henni
þægilegust þegar hún er
svöng.”
Sagt var hér áður fyrr,
að hvert sinn sem barn
grenjaði af óþekkt — og
hver sem væri — þá
heyrði Grýla það sam-
stundis, þvi að eins og
þið sjáið á myndinni hef-
ur hún sex eyru og
heyrir svo vel, að það er
engu likara en hún sé
með hlustunartæki af
fullkomnustu gerð.
Og svo þegar hún
heyrði i óþekktarormun-
um,sem grenjuðu i
frekju og óþekkt, þá
lagði hún af stað með 15
hala og 100 belgi á hverj-
um hala — til að sækja
óþekku börnin.
Það var eina nótt fyrir
nærri 2000 árum að
Grýla vaknaði með and-
fælum. Henni varð þá
litið út og sá hún þá
himininn opinn og
marga, marga engla,
svifa um. Geisladýrðin
var svo mikil, að Grýla
gat engu auga haldið
opnu, og hefur hún þó
þrjá hausa og augnfjöldi
hennar er eftir þvi.
Grýla heyrði englana
syngja: „Ég flyt yður
mikinn fögnuð þvi i dag
er yður frelsari fædd-
ur.” Margt fleira sungu
englarnir, en Grýla var
svo hrædd, að hún skildi
ekki hvað þeir sögðu.
Hún þorði varla að
draga andann. Hún
hafði aldrei á ævi sinni
orðið svona hrædd, og
var hún þó orðin mörg
þúsund ára gömul.
Leppalúði karlinn
hennar varð lika hrædd-
ur, og þau lágu bæði i
hnipri þangað til birtan
og ljóminn hafði dvinað
og söngurinn hljóðnaði.
Þetta var fyrsta jóla-
nóttin, og Grýlu varð
mikið um þetta. Hún fór
að rifja upp hvað
englarnir höfðu sungið
um þann sem kominn er
i heiminn til að frelsa
mennina, og þá einkum
og sér i lagi litlu börnin.
— Þetta er laglegt,
TÓMSTUNDAHUSIÐ %
SÍMI 21901
LAUGAVEGI 164
yurfT
bílabrautin
er sú bílabraut, sem hvað mestum vinsældum
hefur náð. Meginástæðan er sú að
endalaust er hægt að stækka brautina
sjálfa og hægt er að kaupa
aukahluti til stækkunar
og endurnýjunnar.
Hægt er að búa til likingar
af öllum helztu
bilabrautum heims.
Um 1 5 mismundandi gerðir
bíla er hægt að kaupa
staka auk margra
skemmtilegra
aukahluta.
hugsaði Grýla, þá verð-
ur liklega litið um óþekk
börn á næstunni. Ég
verð að reyna að fá
púkana mina til að að-
stoða mig. Og svo æpti
Grýla: Glennupúkar,
glennupúkar! komið þið
til min. Þeir voru 14 og
eru stundum kallaðir
börnin hennar Grýlu
Hún kallaði:
— Komið þið hingað öll
til min: Leppur,
Skreppur, Næja, Tæja,
Lápur, Skrápur, Nipa,
Tipa, Loki Poki, Lang-
leggur og Leiðinda--
Skjóða, Völustallur og
Bóla!
Allir púkar skriðu
hver út úr sinni holu og
svo stökkva þeir til
Grýlu, svo að hælarnir
skellast upp i rass á
þeim.
— Nú eigið þið að fara
að kenna börnunum að
vera vond og óþekk,
sagði Grýla. Svo tók hún
sig til og hrærði i stórum
potti, sem hún sauð ein-
hvern óþverra i, en á
meðan stukku púkarnir
um hellisgólfið, æptu og
spörkuðu og létu eins illa
og þeir gátu. Það
fannst grýlu gaman.
Siðan tók hún skjóður og
fyllti af óþverran og
sagði þeim að reyna að
maka honum á börnin,
þá yrðu þau óþæg og
frek. Svo var púkunum
„þvegið” upp úr for og
óhreinindin af hellis-
gólfinu og klæddir i
svört og ljót skinnföt, og
svört skinnhetta er
dregin á höfuð þeim. Svo
setti Grýla óþverrann úr
pottinum á skinnbelgi,
og hver fékk sina skjóðu
og svo skammaði hún þá
af stað en þeir svöruðu
illyrðum og gáfu Grýlu
langt nef (eins og þið
sjáið á myndinni) og
fóru svo til byggða.
í byggðinni er fólk um
þetta leyti árs að undir-
búa allt fyrir jóla-
hátiðina. Allir eru önn-
um kafnir, og börnin
reyna að hjálpa til og
vera góð og þæg, þvi að
þeim er sagt að annars
komi Grýla með pokana
sina, eða jólasveinarnir,
sem séu svo vondir og
hrekkjóttir. Þá voru
grýlupúkarnir kallaðir
jólasveinar, þegar þeir
komu i byggðina, og
nöfn þeirra voru þá allt
önnur.
Þa heita þeir:
Stekkjarstaur, Gilja-
gaur, Stúfur, Þvöru-
sleikir, Pottasleikir,
Askasleikir, Hurða-
skellir, Skyrgámur,
Bjúgnakrækir, Glugga-
gægir, Gáttaþefur, Ket-
krókur og Kertasnikir.
Stekkjarstaur, Gilja-
gaur og Stúfur kenna
börnunum að skrökva,
segja ljótt, berja, æpa
o.s.frv. Þeir kenna þeim
lika letina. Þvörusleikir,
Pottasleikir og Aska-
sleikir, Bjúgnakrækir og
Ketkrókur kenna þeim
að sleikja, og taka það
sem þau eiga ekki,fá
þau til að kasta mat sin-
um og heimta annað
o.s.frv. Hurðaskellir
kennir þeim að ganga
illa um, skella hurðum
kasta fötunum sinum
einhvers staðar og týna
og glopra hlutunum
Skyrgámur kennir þeim
að borða ósiðlega með
Deutsche Weihnachts-
gottesdienste
Am 24. Dczember um 14 Uhr wird im Dom zu Reykjavik
ein evangelischer Weihnachtsgottesdienst abgehalten.
Séra Thórir Stephensen predigt.
Am 26. Dezember um 17 Uhr zelebriert Bischof Dr. H.
Frehen einen katholischen Weihnachtsgottesdienst in der
Domkirche Landakot.
Botschaft der Germania
Bundesrepublik Islandisch-deutsche
Deutschland Kulturgesellschaft
Við óskum viðskiptavinum okkar um land
allt
gleðilegra jóla
og farsæls og heillaríks
komandi árs
og þökkum viðskiptin á árinu,
sem senn erá enda
Páll Þorgeirsson & Co.
Ármúla 27
Simar 86-100 og 34-000
/