Tíminn - 21.03.1976, Side 7
Sunnudagur 21. marz 1976
TÍMINN
7
Þetta er ekkert sérstakt tilboð,
heldur eðlileg benzíneyðsla á 50
ha GOLJF sem keyrður er á
leyfilegum hámarkshraða á
sæmilegum vegi, en ef þér akið í
borgarumferð þá er eyðslan um 8 I.
'er ekki aðeins sparneytinn,
hann er rúmgóður 5 manna bíll
með stórt farangursrými og stórar
lúgudyr að aftan.
er með diskahemla að
framan, Radial dekk, hita í
afturrúðu, rafknúna rúðusprautu.
öryggisgler, Rúllu-öryggisbelti,
höfuðpúða á framsæti,
hlífðarpönnu undir vél, sterkari
höggdeyfum, þvottekta leðurlíki á
sætum, hurðaspjöldum og toppi.
GOLF\>axi aðeins eina uppherzlu
á ári eða við 1 5 þús. km. akstur.
Nú er það GOLF, sem slær í
gegn.
HEKLAhf.
Laugavegi 170—172 — Sími 21 240
Kennarar vilja
vinnustöðvun,
ef ekki næst
samkomulag
EFTIRFARANDI ályktun var
einróma samþykkt á fjölmenn-
um, sameiginlegum trúnaðar-
mannafundi i Félagi gagnfræða-
skólakennara, Stéttarfélagi
barnakennara i Reykjavik og
Sambandi sérskóla i Reykjavik
18. marz:
„Trúnaðarmannafundur Stétt-
arfélags barnakennara i Reykja-
vik, Félags gagnfræðaskólakenn-
ara i Reykjavik og Sambands
sérskóla i Reykjavik ályktar:
1. Fundurinn lýsir stuðningi við
afstöðu og tillögur B.S.R.B. i
samningsréttarmáli opinberra
starfsmanna.
2. Lokafrestur sá, sem nú hefur
verið ákveðinn, verði notaður
til að reyna til þrautar sam-
komulag um frumvarp um ný
kjarasamningslög án gerða-
dóms um aðalkjarasamning,
sem rikisstjórnin flytji og
tryggi frámgang á þessu þingi.
3. Fundurinn fordæmir þau
vinnubrögð, sem fram hafa
komið af hálfu rikisins, að rifta
frágengnum samkomulags-
þáttum og hindra á lokastigi
framgang málsins með nýjum
skilyrðum.
4. Náist ekki samkomulag, heitir
fundurinn á alla opinbera
starfsmenn að sýna samstöðu i
máli þessu með vinnustöðvun
um land allt, eftir nánari
ákvörðun forustu B.S.R.B.”
Bókavörður
Starf forstöðumanns Bæjarbókasafns
Kópavogskaupstaðar er laust til umsókn-
ar.
Laun samkvæmt 25. launaflokki.
Umsóknarfrestur til 21. april n.k.
Upplýsingar gefa: Bókafulltrúi rikisins
simi 25000. Formaður bókasafnsstjórnar
simi 42725 og undirritaður i sima 41570.
Kópavogi 18. marz 1976
Bæjarritarinn i Kópavogi.
7 lítrar á 100 km.
Fjórðungsmót sunnlenzkra
Rangdr-
bökkum
hestamanna ó
MÓ-Reykjavik. — Fjórðungsmót
sunnlenzkra hestamanna verður
haldiðá Rangárbökkum við Hellu
26.-27. júni i sumar. Þó mun
margt manna og hrossa verða
komið á bakkana fimmtudaginn
25. júni, þvi þá verða stóðhestar
skoðaðir og dæmdir, en næsta dag
ver.ða kynbótahryssur dæmdar.
Þá er fyrirhuguð opin gæðinga-
keppni fyrir börn á aldrinum 10 til
15 ára. I þá keppni mega börnin
mæta með hesta, sem þau hafa
þjálfað að mestu leyti sjálf. Þó
má ekki mæta með hesta i þessa
keppni, sem unnið hafa til verð-
launa á landsmótum eða fjórð-
ungsmótum.
Gæðingakeppni á fjórðungs-
mótinu verður tviskipt, og má
hvert féiag senda einn hest i
hvorn flokk fyrir hverja 50 félaga.
Dæmt verður með spjaldadómi,
og verður hver hestur eindæmd-
ur. Hlutkesti ræður, ef hestar
verða jafnir i einkunn til verð-
launa.
Þá verða á mótinu fjölbreyttar
kappreiðar, og verða veittir eign-
arpeningar i verðlaun fyrir fyrstu
hrossin i hverri grein, auk þess
sem peningaverðlaun verða i
boði.
Keppnisgreinar verða: 1500 m
brokk, 250 m stökk, 350 m stökk,
800 m stökk, 250 m skeið og 1500 m
stökk.
Búið er að tryggja næga beit
fyrir ferðahross beggja vegna
Rangár. Einnig eiga að vera næg
tjaldstæði við mótssvæði.
Fjórðungsmótsnefnd er þannig
skipuð:
Björn Sigurðsson, Gusti, form.,
„Ef inni er þröng, taktu hnakk Plnn *>g nest”
Bergur Magnússon, Fáki, gjald-
keri, Guðmundur Þ. Gislason,
Loga, ritari, Ingólfur Bjarnason,
Smára, Jón Bjarnason Hrossa-
ræktarsambandi Suðurlands,
Halldór Einarsson Sörla, Magnús
Finnbogason, Geysi, og fer hann
jafnframt með störf fram-
kvæmdastjóra til að byrja með.