Tíminn - 21.03.1976, Blaðsíða 40
Hiti í jarðskorpunni
kannaður í sumar
MÖ—Reykjavik — t sumar munu
fara fram á vegum Orkustofnun-
ar miklar hitastigsboranir, sem
eru þáttur I almennum rannsókn-
um jarðhitadeildar Orkustofnun-
ar á þvi, hvernig hitinn vex i jarð-
skorpunni á vaxandi dýpi. Með
þessum borunum á að fást úr þvi
skorið, við hve mikium hita hægt
er að búast, en þær segja ekki til
um það, hvort þar verður hægt að
fá heitt vatn.
A siðasta sumri var hafizt
handa um þetta verk, og þá boruð
hola á Patreksfirði. t sumar
verða siðan boraðar holur á eftir-
töldum stöðum: Grundarfirði,
Stykkishólmi, Þingeyri, Hólma-.
vik, Skagaströnd, Vopnafirði,
Reyðarfirði, Raufarhöfn, Vik i
Mýrdal og Hvolsvelli.
Þessar holur verða 100 til 600 m
djúpar, og eins og áður sagði eiga
þær að gefa hugmynd um al-
mennt ástand jarðskorpunnar.
Þá eiga einnig að fara fram við-
námsmælingar viða um land, en
aðallega á Vestfjörðum.
Að öðrum verkefnum, sem
jarðhitadeild Orkustofnunar
vinnur að i sumar, má nefna, að
verið er að gera tilraunir með
varmaskipta. Svo háttar viða til,
að heita vatnið er ekki nægilega
hreint til að hægt sé að leiða það
beint inn i ofnana, og þvi er verið
að gera þessar tilraunir.
Auk þessa verður að sjálfsögðu
unnið að ýmsum öðrum verkefn-
um á vegum deildarinnar, s.s.
framhaldskönnun á lághitasvæð-
um viða um land, bæði fyrir sveit-
arfélög og einstaklinga.
SKJALDHAMRAR SÝNT Á
LISTAHÁTÍÐ Á ÍRLANDI
Skjaldhamrar
í Oklahoma?
SJ-Reykjavik Leikrit Jónasar
Arnasonar Skjaldhamrar verður
einn aðalþátturinn i leiklistarhá-
tið alþjóðasamtaka áhugaleik-
húsfólks i Dundalk á trlandi
14,—23. mai I vor. Gunnar
Eyjólfsson leikur aðalhlutverkið,
vitavöröinn, en Jónina ólafsdótt-
ir, sem búsett eri Bretlandi, leik-
ur kvenoffiserann. Leikritið verð-
ur flutt á ensku i þýðingu Alans
Bouchers, en auk þess leika I þvi
Arni Ibsen, sem hefur tekið þátt i
sýningu enskudeildar Háskólans
á Hamlet nú að undanförnu, ung
islenzk stúlka, sem er við nám i
London, og tveir brezkir leikarar.
Ekki gat orðiö úr þvi að Leikfél-
ag Reykjavikur færi með sýning-
una eins og hún var i Iðnó, enda
skyldi leikið á ensku á hátiðinni.
Jónas Arnason kemur sjálfur til
með aö fylgjast með uppsetningu
verksins. Leiktjöldin verða þau
sömu og á sýningunni hér i
Reykjavik, en þau geröi Steinþór
Sigurðsson.
Leiklistarhátiö þessi hefur ver-
ið haldin árlega frá þvi 1969. Sean
Casey, stjórnandi hátiðarinnar,
sem raunar tekur til fleiri grein-
ar, lista og menningar, bauð
Leikfélagi Reykjavikur að koma
meö Skjaldhamra til Dundald,
eftir að hann hafði lesið leikrit
Jónasar Arnasonar i ensku þýð-
ingunni.
Casey hreifst mjög af Skjald-
hömrum, en honum þótti still
Jónasar likur ritmáta mikilla
leikritahöfunda Irskra, svo sem
J.B Keanes, Brendan Behans og
Sean O’ Caseys. Þótti honum lik-
legt,að irskir leikhúsgestir kynnu
að meta leikrit hans, sem væri
nútimalegt, kjarngott og i tengsl-
um við alþýöu íslands, sem ætti
fortið og arfleifð, sem hún mætti
vera stolt af.
Stjórnandi alþjóöaleikhússins á
hátiðinni verður Tomas Mac
Anna leikstjóri frá Abbey-leik-
húsinu i Dublin, sem tslendingum
er að góöu kunnur frá þvi er hann
starfaði hér með islenzku leikhús-
fólki.
Dundalk hefur verið tengd leik-
list og einkum áhugaleikstarf-
semi I a.m.k. 200 ár. Fyrsta leik-
listarhátlð i heimi var i Dundalk,
ogfrægir menn, svo sem Brendan
Behan, Sean O’ Casey, Oscar
Wilde, Pearse, Harold Pinter,
Shaw og James Joyce hafa starf-
að i leikhúsi borgarinnar, sem er
yfir 180 ára gamalt. Það er talið
ein bezta leikhúsbygging á
Irlandi og rúmar 725 manns i
sæti. Leikhúsið er alltaf fullsetið,
meðan á leiklistarhátfðinni stend-
ur. Leikhús þetta brann 1949, en
var endurbyggt 1951.
29 þjóðir taka þátt i leiklistar-
hátiðinni. I Dundalk verður einn-
ig keppni i fiðluleik I mörgum lið-
um, sem tiu þjóðir taka þátt i.
Keppt er i þjóðlagatónlist.
Dundalk er á Cooley-skaga
miðja vegu milli Dublin og Bel-
fast. Héraðið er mjög tengt sögu
irsku þjóðarinnar.
Irar hafa mikinnáhuga á að
Islendingar sæki hátiðina, og er
bent á Flugleiðir i sambandi við
nánari fyrirgreiöslu, eða skrif-
stofu hátiðarinnar, Dundalk
Festival Office, 70 Park Street,
Dundalk, Ireland.
Stjórnendur hátiöarinnar
vænta mikils af þátttöku Islend-
inga i hátiðinni, en þeir telja að
menningarleg, félagsleg og
stjórnmálaleg vandamál okkar
og Ira séu mjög áþekk.
Akveðiðer að áhugaleikflokkar
frá Bandarikjunum, Englandi,
Skotlandi og Irlandi koma fram á
hátíðinni og þrir hópar til viðbót-
ar leíka þar einnig. Leikritin, sem
fyrrnefndir hópar flytja eru eftir
Arthur Miller, Ostrowski, John
Kerr, Evripides og Donagh Mc
Donagh.
Tannlækningar skólabarna:
Raunhæft aðhald skortir
MÓ-Reykjavik — Eftir fjögurra
vikna starf greiddi sveitarfélag
tannlækni.sem i heimsókn kom,
950 þúsund krónur, og aðra eins
upphæð fékk tannlæknirinn
greidda frá sjúkrasamlagi. Alls
fór hann þvi meö tæpar tvær
milljónir burtúr sveitarfélaginu
eftireins mánaöar starf. Þessar
greiöslur voru fyrir
tannviögeröir skólabarna, en
auk þess er vitaö til aö hann
geröi viö tennur fyrir fleira fóik,
og mun því hafa fengiö nokkru
hærri upphæö.
Þessi gifurlegi kostnaður,
sem sveitarfélögin þurfa að
greiða fyrir tannviðgerðir
skólabarna, kom til umræðu á
fulltrúaráðsfundi Sambands is-
lenzkra sveitarfélaga fyrir
nokkru. Þar kom fram að
margir töldu, að sambærileg
þjónusta hefði hækkað um 100%
milli ára, og var talið að ástæð-
ur þess væru þær, að samþykkt
höfðu veriö lög, þar sem kveðið
var á um að kostnaður af
tannviögerðum skólabarna
skyldi greiöast að hálfu af sveit-
arfélagi, ef aö hálfu af sjúkra-
samlagi.
Skoraði fundurinn á það
Alþingi, sem nú situr, að breyta
þessum lögum þannig, að þriðji
hlutinn af kostnaðinum væri
greiddur af þeim sem þyrfti á
tannviögerðum að halda. Kvað
fundurinn reynsluna hafa sýnt,
að það væri eina raunhæfa
aðhaldið i þessum málum.
SJ—Reykjavik,— Fleiri vilja fá
leikrit Jónasar Arnasonar Skjald-
hamra til sýninga en frændur
okkar írar. Þýðing Alans Bouch-
ers hefur komið fyrir sjónir leik-
húsfólks viða i enskumælandi
löndum. Að sögn Jónasar hefur
stjórnandi tilraunaleikhúss I
Oklahoma i Bandarikjunum sýnt
mikinn áhuga á að setja leikritið
upp þar.
<0
Frá sýningu Leikfélags
Reykjavikur á Skjaldhömr-
um. Helga Bachman og Karl
Guömundsson heilsast i
gervi tveggja brezkra
majóra.
1