Tíminn - 21.03.1976, Blaðsíða 26

Tíminn - 21.03.1976, Blaðsíða 26
26 TÍMINN Sunnudagur 21. marz 1976 UM ÞESSAR MUND- IR stendur yfir sýning i Bogasal Þjóðminjasafns íslands. Þar gefst mönnum kostur á að sjá margvislegar minjar um islenzkan iðnað, verkfæri og smiðisgripi islenzkra manna, á meðan fáu var til að dreifa utan handaflinu einu. I frétt frá Þjóðminjasafninu segir, að sýningin sé opin á sama tima og safnið sjálft, það er að segja, sunnudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 13.30—16.00. Og hún stendur yfir frá 13. marz til 4. aprll. Aðgangur er ókeypis, og að sjálfsögðu öllum heimill. Hér er um menningar- viðburð að ræða, sem þeir ættu ekki að láta fram hjá sér fara, er áhuga hafa á islenzkri verkmenn- ingu í fortið og nútið. Blaðamaður og ljósmyndari Timans brugðu sér á sýninguna um daginn — og urðu ekki fyrir Þór Magnússon þjóðminjavörður styður hönd á llkanið sem Gísli Jónsson gerði af brúnni á Skiðadaisá, þeirri er smiðuð var árið 1896, Litazt um í Iðnminjasafni vonbrigðum. Þór Magnússon þjóðminjavörður tók okkur af hinni mestu gestrisni, eins og hans var von og visa leiddi okkur um sýningarsalinn og sagði okkur nánari deili á ýmsu sem þar ber fyrir augu. Hér á eftir verður skráð flest það, sem okkur fór á milli. — Hver er aðdragandi þessar- ar sýningar, þjóðminja vörður? — Aðdragandinn er eiginlega sá, að fyrir nokkrum áratugum hófust islenzkir iðnaðarmenn handa, undir forystu Sveinbjörns Jónssonar, forstjora Ofnasmiðj- unnar, og nokkurra annarra, um að safna i einn stað ýmsum hlut- um varðandi iðnaðarmenn, svo sem áhöldum, smiðisgripum, prófskirteinum og sveinsstykkj- um iðnaðarmanna, o.s.frv. Upp- haflega var ráð fyrir þvi gert, að þetta iðnminjasafn yrði deild i Þjóóminjasafninu, enda var Matthias Þórðarson, fyrrverandi þjóðminjavörður hafðu með i ráðum á slnum tima. En þegar til átti að taka, reyndist ekki rúm fyrir þettasafnhérihúsinu, ogvarþvi þá komið fyrir I Iðnskólanum með það fyrir augum,að þar yrði hægt að hafa það til sýnis. Af þvl varð þó ekki, og þegar auðséð þótti, að það yrði aldrei sýnt þar opinber- lega, og þar sem mörgum fannst sem iðnaðarmönnum yrði það þungur baggi að koma upp sér- stöku sýningarhúsi, varð loks að ráði, að Þjóðminjasafnið tæki iðnminjasafnið að sér til eignar og varðveizlu. Það er svo ætlunin, að safnið, eða að minnsta kosti úrval þess, verði til sýnis að stað- aldri, þegar húsakynni þessarar stofnunar verða orðin rýmri en þau eru núna. Þetta safn kom hingað I janúar- byrjuns.l.Enþað er alls ekki allt Iðnminjasafnið, sem hér er sýnt, heldur úrval úr þvl, ásamt ýms- um munum.sem Þjóðminjasafn- ið átti fyrir, þvi að eins og allir vita, sem komið hafa i Þjóð- minjasafnið, þá er margt muna þar nátengt iðnaði. — Eru hér sýnishom frá flest- um iðngreinum, sem stundaöar hafa verið i 'ae-áhiu? — Mörgum en þó ekki nærri öllum. Hér er talsvert magn af skösmiðaáhöldum, og er þó miklu meira til. Trésmiðaáhöld eru a 11- mörg, rennibekkir tveir, báðir Is- lenzk smið, og ýmislegt þeim við- komandi. Steðji járnsmiðsins er hér á miðju gólfi, enn fremur gullsmiðaborð og margt muna, sem til þeirrar iðju þurfti fyrr á timum. Þá eru hér margir smfðisgripir, sveinsstykki og sveinsbréf, námsvottorð þekktra manna, og þannig mætti lengi telja. Sumir hlutir, sem hér gefur að lita, mega heita einstæðir i sinni röð. — Það væri gaman að fræðast nánar um þá. — Þegar komið er inn úr dyr- unum, blasir við fyrir enda salar- ins klukka ein mikil, sem Magnús Benjaminsson smiðaði árið 1894. Þetta er svokallaður regulator, það er að segja, klukkan er með ákaflega nákvæmu gangverki, og það svo mjög, að hún er notuð til þess að setja aðrar klukkur eftir henni. Magnús hefur án efa verið einhver mesti völundur stéttar sinnar, bæði fyrr og siðar. Hann smiðaði að minnsta kostí þrjár klukkur álika stórar og þessa, þótt þær væru ekki nákvæmlega eins. Ein klukkan er á verkstæð- inu, sem ber nafn Magnúsar Benjaminssonar úrsmiðs, og hefur nú senn starfað i hundrað ár, önnur er i eigu Reykjavikur- borgar og stendur i anddyri Eimskipafélagshússins, og þessi hin þriðja. Auk þess er hér litil borðklukka eftir Magnús sem hann smfðaði um 1910, og svo venjulegt vasaúr. Hann smlðaði nokkur vasaúr, og smiðaði þau að öllu leyti, nema glerið, og sklfuna mun hann hafa fengið gerða erlendis, hún er emaleruð og mjög finlega gerð. Svo er hér lika stjörnukikir, að visu litill, sem Magnús Benja- minsson smiðaði og notaði. Hann sá um timamælingar og stillti Dómkirkjuklukkuna, sem þeir gera reyndar enn, eftirmenn hans á verkstæðinu — og eina ráðið sem menn höfðu, áður en siminn kom til sögunnar, var að lita til stjarnanna. Þess vegna smiðaði Magnús sér þennan kiki, sem við sjáum hér og þeir gátu fengið timamerkið frá útlöndum. Annar úrsmiður, sem á hluti hér á sýningunni, er Eyjólfur Þorkelsson, en hann var einn hinna merku sona séra Þorkels á Staðastað, bróðir Jóns Foma. Hér á sýningunni eru tvær klukk- ur eftir Eyjólf, báðar smiðaðaðar fyrir aldamót. Fyrir aðra þeirra fékk hann verðlaun á iðnsýning- unni árið 1881, og fyrir hina hlotn- uðust honum verðlaun á sýningu i Kaupmannahöfn nokkrum árum siðar, enda er sú hin mesta völundarsmið, þvi að hún sýnir ekki aðeins klukkutima, minútur, og sekúndur, heldur einnig viku- daga, mánaðardaga, mánuði og ár. Einn visirinn færist til aðeins einu sinni á ári og sýnir fyrsta ár, annað ár, þriðja ár og svo hlaup- ár. — Hér er einn feikna mikiil stimpill úr vél á miðju gólfi. — Já, hann er smiðaður vestur á Þingeyri, árið 1921 á vélaverk- stæði Guðmundar J. Sigurðsson- Hennibekkur Egils Halldórssonar. Borðklukka, smiðuö af Magnúsi Benjaminssyni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.