Tíminn - 28.03.1976, Qupperneq 9
Sunnudagur 28. marz 1976
TÍMINN
9
— Svo vikið sé að sýningar-
salnum i kjallaranum.
Hvernig gengur að fá út-
lendinga til þess að sýna þar, eða
listamenn frá hinum Norðurlönd-
unum?
— Það hefur nú gengið mis-
jafnlega. Aþvieru ótrúlega mikl-
ir örðugleikar. T.d. flutnings-
vandamálið, en kostnaðurinn er
mikill. Núna er t.d. fyrirhugað að
sýna verk eftir sænsku listakon-
una Derkert, sem nú er látin. Við
gerum ráð fyrir að kostnaður við
að flytja verk hennar hingað til
Islands geti kostað 6-700.000
krónur, islenzkar og þá er auðvit-
að átt við að búa um myndirnar
tilsendingarhingað, flytja þærog
skila þeim svo aftur til Sviþjóðar.
Þetta er dæmi um örðugleikana.
Nokkuð er um að listamenn
skrifi okkur og bjóðist til að sýna,
en slikt verður að gerast með
margra mánaða fyrirvara og
kostnaður vex fólki i augum.
Annars gerist þetta oft þannig
að við lesum um athyglisverðar
sýningar, sem við reynum að fá
hingað, eða sjáum sýningar er-
lendis, sem okkur þykja áhuga-
verðar. Þá kemur það einnig fyrir '
að við komum höndum yfir
sýningar sem eru á leið yfir At-
lantshafið, en það er nú fremur
sjaldgæft.
Annars er sýningarhaldið hér
dálitið flókið, a.m.k. ekki eins
einfalt og menn Jcynnu að halda.
Við verðum að skipuleggja þetta
ár framl timann, en megum þó
ekki binda okkur alveg ef eitthvað
sérlega áhugavert kæmi upp i
hendurnar á okkur.
Minnisstæðar sýningar.
Grænlenzk vika fram-
undan
— Hvað sýningar eru þér
minnisstæðastar?
— Það er nú erfitt að segja. Hér
hafa verið svo margar ágætar
sýningar. Sérstaklega vildi ég þó
minna á Sama-sýninguna, sem
hér var haldin og eins-færeysku
sýninguna. Báðar þessar sýning-
ar þóttu mér takast sérstaklega
vel og þær efldu einnig kynni
meðal manna. Hingað kom fólk,
Samar og Færeyingar og þetta
fólk kynntist Islandi og tslending-,
ar kynntust þeim. Sama má segja
um Alandseyjavikuna, sem
heppnaðistreglulega vel. Svo vik-
ið sé að menningu Sama, þá er
það einu sinni svo, að mörg atriði
i menningu Skandinaviu eru
kunnari en menning noröur-
héraðanna, hún vill oft hreinlega
gleymast. Þéttbýlissvæðin með
öllum sinum iðnaðarvörum og
mannvirkjum hreinlega yfirstig-
ur hljóðlátari hluti i mannlifi
þessara landa.
Núna erum við að undirbúa
grænlenzka sýningu, Grænlands-
viku.og er verið að leggja siðustu
hönd á dagskrána núna. Við eig-
um von á flokki frá Grænlandi og
ég er viss um það að þessi vika
mun vekja athygli hér. Það verða
nemendur úr kennaraskólanum i
Gotthaab, sem hingað koma og
vafalaust margir fleiri Græn-
lendingar T.d. eigum við von á
Moses Olsen, fv. þingmanni á
danska þjóðþinginu, en hann tal-
ar islenzku, var i háskólanum um
leið og ég. Þetta er þó ekki alveg
ákveðið ennþá. Ég var að pósta
bréf i dag og leggja endanlegar
tillögur fyrir þá i Grænlandi.
Munir koma frá Grænlandi og
við fáum kajak og fl. úr þjóð-
minjasafninu hér. Annars má
skjóta þvi hér inn i sambandi við
það sem sagt var áðan, að við
megum ekki gleyma fólkinu
sjálfu, við verðum að reyna að
byggja upp varanlegt samband
milli þjóða og manna viðsvegar
um hin norræna heim.
Er Norræna húsið orðið
of litið?
— Hvað um aðra starfsemi?
— Við höfum lánað salinn herna
á hæðinni og fundarherbergi.
Þarna heíur farið fram margvis-
leg starfsemi, fyrirlestrar, tón-
leikar, fundir, bókmenntakynn-
ingar og kvikmyndasýningar.
Ég held að það liði vart sá dag-
ur að ekki sé eitthvað um að vera.
Notkunin á fundarherberginu
hefur aukizt mjög mikið og ég tel
að svo sé nú komið að okkur vanti
fleiri slik herbergi og stærra
skrifstofurými.
Norræna húsið. „Norræna
húsið verður liklega ekki
stækkað. Það er i rauninni
sérstakt listaverk, þess vegna
kemur viðbygging naumast til
greina”, sagði Maj-Britt
þegar rætt var uni að húsið
væri að verða of lifið fyrir
starfsemina.
— Er Norræna-húsið þá orðið of
litið. Stendur kannski til að
stækka það?
— Norræna-húsið verður lik-
lega ekki stækkað. Það er i raun-
inni listaverk, sérstakt listaverk
og bara þessvegna er viðbygging
að minu viti hæpin. A hinn bóginn
hefur verið um það rætt að taka
ibúð forstjórans Undir starf-
semina og fá honum húsnæði úti i
bæ. Með þvi móti fengist aukið
húsrými, en það eru auðvitað
aðrir sem ákveða það, en ekki ég.
Verður „bara”
húsmóðir
— Nú svo vikið sé að persónu-
legri spurningum. Nú ert þú gift
kona I Sviþjóð og móðir. Tekur þú
nú til við húsmóðurstörfin, þegar
þú kemur aftur til Sviþjóðar?
— Já ég er gift og maðurinn
minn er námsstjóri i Stokkhólmi.
Hann heitir Kjell Gústafsson.
Reyndar er hann núna við nám
fór i kennaraháskóla til þess að
bæta viðsig. Við eigum einn son,
Sven, en hann er 16 mánaða og
býr hjá mér.
— Já, ég verð „bara” húsmóðir
til að byrja með þegar ég fer
utan, annars tel ég húsmóður-
hlutverkið ekki vera neitt „bara”
heldur mikilvægt starf. Annrs er
ég nú liklega ekki mikil húsmóðir,
þvi ég hefi litla reynslu i þvi.
Siðan geri ég ráð fyrir að taka við
fullu starfi utan heimilis.
— Hvaða mái talar strákurinn?
— Ja hann talar nú ekki mjög
mikið ennþá hann er svo ungur,
en hann virðist ætla að fylgja
samnorrænni stefnu. Það er is-
lenzk stúlka sem passar hann
fyrir mig þegar ég er að vinna og.^
hún talar við hann islenzku, svo”
tala ég við hann sænsku, en svo
velur hann úr þauorð, sem eru lik
eða svo til eins, bæði i sænsku og
islenzku og hann notar þau mest.
T.d. að „detta” og ótalmargt
fleira. Hann notar þvi fyrst og
fremst sameiginlegan orðaforða
þessara tveggja mála.
— Nú lætur þú af starfi i Nor-
ræna-húsinu. Koma engin önnur
störf til greina fyrir Norðurlönd
eða samstarf Norðurlandanna?
Koma menn bara og fara?
— Jú það eru ýmsar norrænar 1
stofnanir sem hafa fólk i vinnu. t
svipin held ég að þar sé nóg af
góðu fólki svo ég geri ekki ráð
fyrir að ég taki að mér nein störf i
næstu framtið.
— Ertu ekki feigin að vera
laus?
— Nei. Ég mun sakna þessa
starfs. Þetta er mikil vinna og
maöur getur ekki staðið i þessu
allt of lengi. Það ynði lika stofn-
uninni til tjóns að hafa sama for-
stjórann of lengi. Það myndi að-
eins hafa stöðnun eða hrörnun i
för með sér fyrir stofnunina. Ég
held að það sé nauðsynlegt aö
skipta um forstjóra með ákveðnu
millibili, eins og gert hefur verið.
Eitt er ég þó viss um, að ég sé
ekki eftir þvi að hafa tekið að mér
þetta starf, sagði Maj-Britt
Imnander að lokum.
J.G.
Fæst hjó kaupmönnum og
kaupfélögum víða um land
Suðurlandsbraut 8
Slmi 8-46-70
er fullkomin, sjálfvirk
saumavél með lausum
armi og innbyggðum
fylgihlutakassa
HÚN VEGUR AÐEINS UM
12 KG. MEÐ TÖSKU
Necci Lydia 3 er
sérlega einföld í
meðförum
Auk þess má
gera hnappagöt
festa á tölur og
sauma út eftir vild.
Fullkominn íslenzkur
leiðarvisir fylgir.
Verð aðeins krónur
43.350
Býöur nokkur betur?
Góð greiðslukjör.
Með aðeins einum takka
má velja um 17 sporgerðir:
Beint vanalegt spor
Beint feygjanlegt spor
Zig-zag
Satínsaum
Skelfald
Blindspor til að sauma
tvöfalda efnisbrún við
leggingarborða
Teygjanlegan skelfald
Overlock
Parísarsaum
Þrepspor
Teygjufestispor
Blindfaldspor
Rykkingarsaum
Oddsaum
Tungusaum
Rúðuspor
Þræðingarspor.
NECCHI
w