Tíminn - 28.03.1976, Blaðsíða 26

Tíminn - 28.03.1976, Blaðsíða 26
26 TÍMINN Sunnudagur 28. marz 1976 KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDA- HORNIÐ Umsjónarmaður Halldór Valdimarsson Frábær kvikmynd Sem sannar að konur geta jafn vel, ef ekki betur Næturvöröurinn erí stuttu máli sagt frábær kvikmynd og verður henni hiklaust skipað i flokk þeirra beztu sem undirritaður hefur séð. Að þvi stefnir allt i gerð mynd- arinnar, söguþráður, leikur, leik- stjórn, tæknileg vinnsla og annað, sem allt er mjög vel af hendi leyst. Söguþráðurinn er tiltölulega hlutlaus, sem slikur, og án þeirra minninga sem að baki honum búa væri hann ekkert. Einmitt minn- ingarnar valda óhugnaði og spennu, sem smitar frá leikend- um til áhorfenda, einkumþarsem ljóst verður að þær muni leiða til tortimingar. Tæknileg vinna Liliana Cavani viö myndina er frábær og gefur til kynna að ef til vill ættu konur að snúa sér að kvikmyndagerð, ekki siöur en karlmenn. Handrit myndarinnar er vel gert, unnið upp úr jarðvegi, sem býr yfir mikilli og dulinni spennu. Leik- stjóm og uppbygging myndarinn- ar er i samræmi við handritið, unnið þannig að efnið nýtur sin, án styrkingar með grófum eða of- beldislegum senum. Ofbeldið, kvalalostinn, kynæð- ið, grimmdin, allt felst það að mestu leyti i bakgrunni myndar- innar, er skynjað fremur en séð og heyrt. Þó hefur spennan og kynofsinn tök á áhorfendum frá fyrstu senum myndarinnar, til enda. Einn helzti kostur þessarar myndar er sá, að hún er unnin af þekkingu á möguleikum kvik- myndagerðar og þekkingu á mannlegum upplifunum. Skýrt dæmi um það er notkun minn- inga, þar sem þeim er gefið gildi sem slikar, en ekki látnar yfir- gnæfa nútiðina. Sumsé: Frábær kvikmynd. Hafnarbió: Aöalhlutverk: Dirk Bogarde, Næturvörðurinn Carlotte Kampling, Philippe Ler- oy, Gabrieic Ferzetti, Isa Mir- Leikstjórn: Liliana Cavani anda, Giuseppe Addobbati, Nino Handrit: Liiiana Cavani Bignamini Max og Lucia hittast á ný og upplifa aftur kvalalosta-kynlifssam- band sitt. Hún, dóttir sósialista, og hann, foringi i SS, höfðu mætzt og fullnægt hvötum hvors annars. Siðar vai*ð aðskilnaður þeirra ó- hjákvæmilegur. Upphaflega var samband Max og Luciu byggt á ójöfnum stöðum þeirra innan Þriðja rikisins, þar sem hann var kvalarinn, hún fanginn. Siöar urðu nokkur umskipti á og i lokin er óvist hvort hefur meir vald á hinu. Þetta er að sjá! Stjörnubíó: Dirty little Billy Það er hreinasta skömm að sjá hvernig fariö er með útlaga- rómantik Bandarikjamanna núorðið. Um áratugabil hafa þeir lifað i þeirri trú að Villa-Vestrið hafi verið samsafn hreinlyndra og heiðarlegra manna, sem glimt hafi við náttúruöflin og spilað á gitar i tunglsljósi. Þeir rændu jú banka og böröust með byssum, en allt á heiðarlegan máta og með hreystjna I fyrirrúmi fyrir öllu öðru. Nú hefur þessi draumur verið tekinn frá þeim, eyddur, deyddur og grafinn i sandinn. Fyrsta skrefið var þegar beinarannsóknir leiddu i ljós að ai- gengasta dánarorsök I vestrinu var kúla i bak. Það var út af fyrir sig nóg. Nú hefur bætzt við aö hetjur útlagasagnanna hafi ekki aðeins verið heiglar og kosið aö sjá hnakkann á öðrum fremur en nasirnar, heldur hafi þeir einnig verið skitugir, ilia til fara, menningarsnauðir og alls ekki kunnaö á gitar. Já, meira að segja bæjargöturnar fá ekki að vera i friði fyir þess- um nýju samningum. Þær voru ekki þurrar og harðar, heldur sundurtættir forapyttir, sem engum heiðarlegum manni heföi dott- iö i hug aö stiga spariskónum sinum á. Og nú er þaö Billy the Kid sem fær sannleikann framan i sig. Hann er dæmdur sem hið lægsta 'af öllu lágu: illa innrættur óþverri, sem skreiö um skitinn og var of mikill heigull til að skjóta nokkurn mann framan fía. Já, hvilik mæða. Myndin um Dirty little Billy er skýtug, rætin, rotin, óþverraieg og hlægileg. Hún er jafnframt hressandi og alls ekki úr vegi aö sjá hana ef ekkert annað liggur fyrir. Tónabíó: Lenny An nokkurs efa einhver bezta kvikmynd sem hingaö hefur borizt fyrir utan gildi hennar sem ádeilu, réttarfarsskilgreiningar og ann- arra kosta, sem ekki veröa taldir hér upp. Kvikmynd þessi er sérkennileg um margt. ^ygging hennar er verulega snjöll, þar sem eínið heföi hæglega getað orðið leiðinlegt, en er þvert á móti bráðskemmtilegt. Dustin Hoffman afgreiðir hlutverk Lenny Bruce af þeirri nákvæmni og innlifun sem honum er eiginleg, en að minu mati er hann þarna i þeim mesta ham sem ég hef séö hann i. Valerie Perrine fer með hlutverk eiginkonu hans og er ekki hægt að segja annaö en að henni takist vel upp. Óvenju heiðarleg og góö kvikmynd þar sem þess er gætt að sýna feril Lenny Bruce i sem réttustu ljósi, án fegrunar og án óþarfa áherzlu á hið illa sem fylgdi starfi hans. Það hlýtur þvt aö fylgja hér hvatning til allra þeirra sem ekki hafa séð Lenny, að bregða sér sem fyrst, þvi hún er ein þeirra sem sárt væri fyrir kvikmyndaáhugafólk að missa af. Hóskólabíó: Nashville Mynd þessi hefur hlotiö hina beztu dóma viðast hvar og það ekki að ástæðulausu. Nashville er borg i Tenneseefylki i Bandarikjunum og jafnframt einskonar miðstöð, eöa uppspretta, ákveðinnar tegundar þjóðlaga- tónlistar. Þar búa margar stjörnur, þangað koma fleiri stjörnur, ýmist af forvitni, til að lifa og leika sér, eða til starfa. Kvikmyndin Nashville er þó ekki kynningarmynd, nema að litlu leyti. Fyrst og fremst er hún ádeilumynd, þar sem hlutirnir eru látnir rifa sjálfa sig niður. Sakleysislegt yfirborð i upphafi myndar veröur fyrir lok hennar vigvöllur, þar sem flest átrúnaðargoðin liggja með brotnar leir- fætur, bjargvættur landsins, fambjóðandi viðreisnarflokksins, flú- inn af hólmi, og uppgjör milli einstaklinga myndarinnar hefur farið fram. Sem ádeilumynd hefur Nashville ailt til að bera, þvi hún gefur sér engar forsendur, heldur skoðar aðeins. Sem söngvamynd er hún einnig verulega skemmtileg og hefur auk þess til að bera aðra kosti, sem of langt væri að telja upp. Hlutverk i myndinni eru vel unnin, leikstjórn i styrkum höndum og uppbygging hennar, sem um margt svipar nokkuö til American Óraffiti, er verulega skemmtileg. Myndin er nokuö löng og þeir sem ekki geta fest hugann við eitt- hvað I meira en tvo klukkutima samfleytt, eiga ef til vill ekki erindi i Háskólabió, en allir aðrir, sem vilja sjá verulega góða mynd, eiga fullt erindi þangað. ——Óséða r----------------------------------------- Laugarósbíó: Waldo Pepper Laugarásbió sýnir kvikmyndina Waldo Pepper.Með Robert Red- ford i aðaihlutverki. Hún gjallar um flugvélatöffara, sem reyna að ávinna sér frægö, féog frama með þvi að fljúga hættulega. Austurbæjarbíó: Lucy AAame Hver man ekki eftír gamanleikkonunni Lucille Ball, sem fyrir fá- einum árum dældi bröndurum sinum yfir saklausa sjónvarps- glápara hér? Það eru vafalaust margir sem ekki muna eftir henni i svipinn, þvi synd væri að segja aö hún væri eitt af þvi skemmtiefni, sem ástæða er til að varöveita minningar um. Vonandi er kvikmynd þessi skárri en sjónvarpsþættir kerlu, þvi þeir voru vægast sagt ömurlegir. Gamla bíó: Þjófótti hundurinn Kvikmynd þessi er frá Walt Disney-kvikmyndaverinu og þar sem hún fjallar um dýr, það er að segja hund, ætti hún að vera nokkuð góð skemmtun. Walt Disney tekst yfirleitt vel upp með hunda, ketti og aðrar þær dýrategundir sem skriða, fljúga eða ganga á fjórum fótum, en siður með tvifætlinga Hafnarbíó: Næturvörðurinn Já, nú er gaman að lifa og vist er að Hafnarbió verður heimsótt á næstunni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.