Tíminn - 04.04.1976, Page 24

Tíminn - 04.04.1976, Page 24
24 TÍMINN Sunnudagur 4. apríl 1976. Á FLÓTTA FRÁ ÁSTINNI Eftir Rona Randall 24 Hún andvarpaði aftur, i þetta sinn af létti. Hann lyfti höndinni og nam staðar til að stöðva leigubíl, sem ók framhjá. Ég vona, að þér haf ið ekkert á móti því, sagði hann — en ég þarf að koma við á sjúkrahúsinu f yrst, svo ek ég yður heim á eftir. Hún varð frestinum fegin, því skyndilega skelfdi ein- manaleikinn hana. Hún vissi, að um leið og hún kæmi inn i litla einmanalega herbergið sitt, myndi sorgin ná henni og tárin fara að renna aftur. Kannski þessi maður, sem hafði svo ótrúlega hæfileika til að sjá í gegn um hana, skildi það, þvi þegar þau sátu í bílnum, sagði hann: — Það er nógu dimmt hérna. slepptu tárunum lausum og svo vil ég heyra alla söguna. — Hvers vegna ætti ég að segja yður nokkuð? Þetta kemur engum við nema sjálfri mér. — Þvert á móti, það kemur mér næstum jafn mikið við. Ég vil ekki að neinn, sem starfar við mitt sjúkrahús, sé þræll tilf inninga sinna, Ef eitthvað er að yður, verðum við að komast fyrir það. Auðvitað var hann að hugsa um sjúkrahúsið. Það gladdi hana, þvi hún hefði ekki getað þegið meðaumkun eða samúð þessa stundina. — Mér þykir það leitt, sagði hún og hann svaraði um leið. — Þér þurf ið ekki að biðja mig afsökunar. Segið mér f rá þessu í staðinn. Yður líður betur ef þér gerið það. Það er alltaf gottað segja einhverjum allt og ég geri ekki ráð fyrir að þér eigið neinn að hér i París. Auk þess er betra að segja ókunnugum frá öllu saman og þar sem ég er yður einmitt ókunnugur, sting ég upp á að þér byrjið strax. — Ég er að hugsa um, hvers vegna það sé auðveldara að tala við einhvern ókunnugan, sagði hún lágt og reyndi að þurrka augun. Hún fann að hann hreyfði sig i myrkrinu og andartaki siðar lagði hann handlegginn yfir um herðar henni og sneri andliti hennar að sér. — Burt með þessa kjanalegu bót, sagði hann og tók að þurrka henni með vasaklútnum sínum. Hann gerði það á kaldan og ópersónulegan hátt og handleggurinn var eins og stálklemma um axlir hennar. Það þýddi ekkert að reyna að víkja sér undan. — Ég skal segja þér hvers vegna það er auðveldara að segja ókunnugum allt, sagði hann og sleppti henni. — Það er vegna þess að þeir kæra sig í rauninni kollótta um hvað gerzt hef ur. Vegna þess að leyndarmál og þjáning annarra koma þeim hreint ekki við. Þess vegna eru þeir hlutlausir, þar sem tilfinningar og samúð hafa engin áhrif á málin. Auðvitað var þetta rétt hjá honum. Freistingin var< mikil og svo lítið fálmandi tók hún að seg ja f rá. — Þetta er í rauninni ósköp venjuleg saga, byrjaði hún. — Og stutt. Ég elskaði Brent Taylor.... — Ennþá? — Auðvitað. — Og hann elskar Venetiu Harlow — er það þannig að skilja? — Já, viðurkenndi hún lágt. — Hann sleit trúlofun okkar hennar vegna. Andartak sat Mark þögull. Olýsanleg reiði greip hann Brent Taylor var ekki jafn mikils virði og litli f ingurinn á þessari konu — hann var bjáni og alls ekki verður tára hennar. Þarna sat hann, Mark Lowell, sem hafði alls engan áhuga á kvenfólki og hugsaði þetta. En hann gat ekki annað því honum f annst að hver sá maður, sem tæki Venetiu Harlow fram yfir Myru Henderson hlyti að vera kjáni. Auðvitað var Venetia Harlow aðlaðandi og mjög falleg — en líka útsmogin. Var það af þvi að hann sjálf ur var svo miklu eldri en Brent Taylor, að hann hafði séð svo vel í gegn um hana í kvöld? Að hún hafði reynt að gera Taylor af brýðisaman með þvi að beina athygli sinni svo mjög að öðrum? Já, hann hafði séð í gegnum hana, hann hafði kynnzt konum eins og henni áður. En það var undarlegt, hvað þau tvö skiptu litlu máli. Það var lika undarlegt, að einmitt á þessu andartaki skipti enginn máli nema Myra Henderson. Skrýtið að hann langaði bara til að taka hana í fang sér og hugga hana, kyssa burtu tárin og finna ísköldu brynjuna láta undan yl og blíðu. En hann hélt rólegur áf ram: — Segðu mér f ramhaldið. — Það er ekkert að segja. Hvað gerir kona — eða karl- maður, þegar þau eru svikin? — Annað hvort lyftir hún höfðinu, tekur því óhjá- kvæmilega og heldur áfram að lifa lífinu eins og áður, eða hún f lýr. eins og þér. Ef til vill sjáið þér nú, að það var heimskulegt. Þér qetið ekki flúið frá ástinni. Það 1 sérstöku geim skipi frá jörðinni lenda Geiri, Dalla og Zarkov á Mongo. Þegar þú ert búinn að borða af þeim, geturðu teiknað á þá. iBliliii SUNNUDAGUR 4. april 8.00 Morgunandakt. Séra Pétur Sigurgeirsson vigslu- biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög. 9.00Fréttir. Útdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veðurfregnir). a. Toccata septima eftir Georg Muffat og Prelúdi'a og fúga I c-moll eftir Johann Sebastian Bach. Anton Heiller leikur á orgel. (Hljóðritun frá út- varpinu i Vm). b. Sónata i F-dúr fyrir sembal, fiðlu, flautu og selló eftir Wilhelm Frideman Bach. Irmgard Lechner, Thomas Brandis, Karlheinz Zöller og Wolf- gang Boettcher leika. c. Kvartett i B-dúr fyrir tréblásturshljóðfæri með pianóundirleik eftir Amilcare Pouchielle. Félag ar úr Tréblásarakvintettin- um i Filadelfiu og Anthony di Bonaventura leika. d. Sinfónia nr. 101 i D-dúr eftir Joseph Haydn. Sinfóniu- hljómsveitin i Lundúum leikur, Antal Dorati stjórn- 11.00 Guðsþjónusta i kirkju Filadeifiusafnaðarins. Einar J., Gislason forstöðu- maður safnaðarins predik- ar. Guðmundur Markússon les ritningarorð. Kór safnaðarins syngur. Einsöngvari: Svavar Guð- mundsson. Orgelleikari og söngstjóri: Árni Arinbjarn- ar. Daniel Jónasson o.fl. hljóðfæraleikarar aðstoða. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.15 Þættir úr nýlendusögu. Jón Þ. Þór cand. mag. flyt- ur annað hádegiserindi sitt: Spánverjar i Amerfku. 14.00 A loðnuveiðum með Eld- borginni. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson. Tækni- vinna: Runóifur Þorláks- son. 15.00 Miðdegistónleikar: Frá tónlistarhátfðinni i Schwetz- ingen i haust. Kammer- hljómsveitin f Stuttgart leikur. Stjórnandi: Wolf- gang Hofmann. Einleikari: Hans Kalafusz. a. Sinfónia i A-dúr op. 6 nr. 6 eftir Karl Stamitz. b. Fiðlukonsert i C-dúr eftir Iganz Franzel. c. Sinfónia i g-moll eftir Franz Anton Rosetti. d. Leikhús- tónlist eftir Johann Friedrich Eck. 16.20 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 Framhaldsleikritið: „Upp á kant við kerfið”. Olle Lansberg bjó til flutn- ings eftir sögu Leifs Panduros. Þýðandi: Hólm- friður Gunnarsdóttir. Leik stjóri: Gisli Alfreðsson. Persónur og leikendur i sjötta þætti: Davið: Hjalti Rögnvaldsson, Lisa: Ragn- heiður Steindórsdóttir, Schmidt læknir: Ævar R. Kvaran, Jakob gamli: Þor- steinn ö. Stephensen, Effina: Guðrún Stephensen. Aðrir leikendur: Helga Stephensen, Þórhallur Sigurðsson, Helgi Skúlason, Guðbjörg Þorbjarnardóttir og Flosi Ölafsson. Kvölddagskrd hljóðvarpsins hefur blaðinu ekki borizt. MÁNUDAGUR 5. april 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir ki. 7.00, 8.15og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05: Valdimar örnólfsson leikfimikennari og Magnús Pétursson pianóleikari (alla virka daga vikunnar). Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. landsmálabl), 9.00, og 10.00. Morgunbæn kl.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.