Tíminn - 27.06.1976, Qupperneq 16

Tíminn - 27.06.1976, Qupperneq 16
16 TÍMINN Sunnudagur 27. júni 1976 öldungadeildarþingmenn, sem fengu efnuð kvonföng. Philip Hart meft konu sinni.Jane Cameron Briggs. Barrý Goldwater og frú, Margaret Johnson. Richard Stone og Marlene Lois Singer. Auðugustu mennirnir í bandarísku öldungadeildinni Ætli Bandarikjamenn hafi nokkurn timann velt því fyrir sér hvort fulltrúar þeirra I öldunga- deildinni eru vel fjáöir, eöa lætur fólk sig þaö litlu skipta hvort þeir eru milljónamæringar eöa ei? t framhaldi af þessu vakna ýmsar aörar spurningar um menn þessa: Eru þeir fulltrúar fyrir þjóöfélagshópa, sem koma vilja einhverjum ákveönum skoöunum á framfæri, eöa hafa þeir enga af- stööu tekiö? Er þaö vegna um- fangs seölaveskis þeirra, sem þeir sitja á þingi? Er þaö mögu- legt, aö fjárhagslega illa stæöur maöur yröi kosinn I öldungadeild- ina? Er hægt aö tala um réttláta baráttu, þar sem tveir menn keppa um þingmannssæti, og annar er vellauöugur, og getur sjálfur fjármagnaö kosningabar- áttu sina, en mótframbjóöandi hans er fátækur? Stendur sá efn- aöri ekki betur aö vfgi I barátt- unni? Og hvaöa áhrif hefur auöur og veldi frambjóöenda á þróun og úrslit kosninganna? Fyrr á þessu ári gaf hæstiréttur i Bandarlkjunum út reglugerö um aö frambjóöendur til öldunga- deildarinnar (sem og annarra embætta innan þingsins) væri leyfilegt, aö eyöa ótakmörkuöu fjármagni af eigin fé I kosninga- baráttu sinni, þó væru framlög frá öörum aöilum eftir sem áöur takmörkuö meö lögum. Sem af- leiöing af þessu, munu lfklega múraöir frambjóöendur eyöa milljónum, ef ekki milljöröum króna af fjölskylduauöi slnum til aö freista þess aö ná kjöri I öld- ungadeildarkosningunum slöar á þessu ári. Demókratinn Torbert H. Mac- Donald, þingmaöur frá Massachusetts upplýsti þaö fyrir nokkrum árum, aö áriö 1970 heföu ellefu af fimmtán helztu fram- bjóöendunum til öldungadeildar- innar frá sjö stærstu rlkjum Bandarlkjanna, veriö milljóna- mæringar. Þeir fjórir, sem ekki voru milljónamæringar drógu framboö sin til baka áöur en til kosninga kom. Flestir meölim- anna á löggjafarþinginu, neita aö gefa upplýsingar um fjárhags- lega stööu sina. Margir þeirra telja kröfu um slíkt vera árás á einkalif þeirra. Aörir óttast aö slikar upplýsingar kunni aö hafa neikvæö áhrif á vinsældir þeirra og enn aörir voru hræddir um aö þetta myndi leiöa til athugana á þvi, hvernig allur þessi auöur væri fenginn. 1 fyrra komu neytendasamtök- in, undir stjórn Ralphs Naders, af staö skoöanakönnun meöal öldungadeildarþingmanna. Sendir voru spurningalistar á skrifstofur þeirra allra þar sem þeir voru beönir um aö upplýsa um rikidæmi sitt, maka sins og ó- lögráöa barna. Gefnir voru fimm flokkar og voru þeir beönir aö merkja I þann, sem þeir féllu I: Eru auöæfi þln 1) undir 50.000 döl- um, 2) milli 50,000 og 250.000. 3) milli 250.000 og 500,000. 4) milli 500.000 og 1 milljón. 5) yfir eina milljón? Og I marz á þessu ári eftir aö Nader haföi margltrekaö ýtt á eftir þeim aö svara, höföu 59 svör borizt, og á grundvelli þeirra var gerö „sanngjörn áætlun” um nettó auöæfi 19 annarra þing- manna, en 22 uröu þeir aö skilja út undan vegna skorts á áreiöan- legum upplýsingum. öldungadeildarþingmenn, sem erfðu mikil auðæfi Claiborne Pell. William E. Brock. Edward Kennedy. Reglugerö þingsins kveöur svo á um, aö sérhver öldungadeildar- þingmaöur veröi aö senda fjár- málaráöherra landsins ná- kvæma skýrslu um fjárhag sinn 1 innsigluöu umslagi merktu „Trúnaöarskýrsla um fjár- hag....” Umslag þetta inniheldur afrit af skattskýrslu viökomandi þingmanns auk upplýsinga um skuldir hans og eignir, — I stuttu máli um megniö af auöæfum hans. Almenningi er þó ekki heimilt aö skoöa þessi umslög, heldur eru þau varöveitt innsigl- uö I sjö ár og má ekki opna þau nema þingmaöur hafi veriö grun- aöur um svindl eöa annaö sakhæft athæfi, og sérstök nefnd skipuö af þinginu hefur veitt leyfi til aö opna umslag hans. Fram til þessa, hefur þaö enn ekki komiö fyrir. Samkvæmt fyrrnefndri skoö- anakönnun neytendasamtak- anna, eru a.m.k. tuttugu og einn öldungadeildarþingmaöur milljónamæringur, fjórir eiga eignir uppá hálfa milljón til milljón, 18 uppá 250 til 500.00. 30 eru á bilinu 50-250.000 og fimm eru undir 50.000. Þá þótti ógerlegt aö áætla auöæfi 22 þingmanna. Þeir auðugustu Auöugustu mennirnir I öldungadeild Bandaíikjaþings eru þessir, I stafrófsröö: Howard Baker 50, (R, Tenn.) Hann er tengdasonur Everett Dirksen fyrrverandi öldunga- deildarþingmanns. Hann er lög- fræöingur aö mennt og á glfurleg auöæfi bundin I fasteignum, bönkum og námafyrirtækjum. Samkvæmt blaöafulltrúa hans er fjármagn hans bundiö I föstum sjóöum. Dewey Bartlett, 57 (Oklahoma) Hann seldi hluta sinn I Keener ollufyrirtækinu og var þaö metiö á rúmlega eina milljón banda- rikjadala. Bartlett og kona hans hafa sett hlutabréf sin I fasta sjóöi. Lloyd Bentsen55 (D. Tex) í marz áriö 1971 kvaö Bentsen auöæfi sin nema um tveimur og hálfri milljón dala, og liggja þau aöal- lega I tryggingarfyrirtækjum, nautgripum, landeignum og ollu. Hann er málaflutningsmaöur. Ariö 1973 setti hann allt sitt fé I sjóöstofnanir. William E. Brock 45 (R. Tenn.) Brock er milljónamæringur og á fjölskylda hans „Brock Candy Co”, I Chattanooga, og auk þess miklar fasteignir. Eiginkona hans Laura, (áöur Handly), er dóttir Laura Hutcheson, en fjöl- skylda hennar átti „Peerless Woolen Mills,” sem voru seldar til’Burlington Mills” fyrir um þaö bil tiu milljón dala. Harry F. Byrd. Jr. 60 (sjálfst. VA) Byrd kemur frá fjölskyldu, sem hefur lengi veriö vel þekkt I Virginiu fyrir rlkidæmi sitt, aöal- lega fólgiö i eplagöröum og fast- eignum. Hann er án efa milljóna- mæringur, en hann er heldur fá- talaöur um auö sinn og neitaöi aö svara spurningum Naders. Hann er annar maöurinn I sögu þings- ins sem er kosinn óháöur I öldungadeildina. James O. Eastland,71 (D. Missi) Eastland er einn af voldugustu

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.