Tíminn - 27.06.1976, Page 24
24
TÍMINN,
Sunnudagur 27. júnl 1976
f í JÖTUNHEIMUM
FJALLANNA 2
lega. Hefir þú nokkurn tíma fengið svo mikið af rjúpu,
að þú hefðir komizt með meira? Ætli það — af fleygum
fuglum fær maður ekki meira en maður getur komizt
með, hvert á land sem er. Og verði kippurnar of þungar,
f úlsaði maður ekki við því að éta eitthvað af þeim sjálf-
ur. Tóf ukjöt er ekki beinlínis geðslegt, þegar til lengdar
lætur.
Lars svaraði ekki. Hann hafði komizt í kynni við þá
tíma, þegar tófukjöt hefði þótt lostæti. Og hefði stundum
verið til dálítið af tófukjöti, myndi færri ferðir hafa
þurft að fara í grafreitinn við Fattmómakk.
— Hvar er Jónas?
— Hann tók skíðin sín um hádegið — hann mun hafa
ætlað að hyggja að því, hvort hann hef ir fengið eitthvað í
bogana.
— Nú-já. Hann hefir ekki orðið mjög fengsæll — ann-
ars væri hann kominn heim. — Nei, sá tími er liðinn, þeg-
ar tóf urnar létu ginna Sig með silungahausum, sem fest-
ir eru á drumba úti í skógi. Það er ekki orðið meira af
þeim en svo, að þær geta af lað sér annarrar fæðu.
Lars lét höndina, sem hélt á hnífnum, hvíla á hné sér
og hvessti augun á þrjózkulegt andlit Arons.
— Hvað amar að þér, drengur minn? Hefir einhver
verið að bekkjast til við þig? Þú hefir þó ekki hitt ein-
hvern frá Laufskálum?
— Þeir bekkjast ekki til við mig, og þar að auki hitti ég
ekki neinn þaðan. Nei — en mér ofbýður það, að nú skuli
liqqja dauð fjögur hreindýr hérna inni í hlíðunum.
— Er það jarfinn?
— Já — þeir hafa verið þar tveir á ferli. Þeir hafa rifið
hausana af hreindýrunum og dregið þá burt, en látið
skrokkana ósnerta. Það er mikið kjöt, sem liggur þar.
— Hvað segirðu?
— Ég sagði, að það væri mikið kjöt, sem þar lægi.
Röddin var dimm og þvergirðingsleg. Hann vissi vel, að
faðir hans kærði sig ekki um kjöt af hreindýrum, sem
fundust úti á víðavangi.
— Við eigum ekki þessi hreindýr, Aron. Heldurðu, að
stolnu kjöti fylgi mikil blessun?
Aron var orðinn sótrauður í andliti, og það fóru harðir
kippir um sinaberar hendur hans.
— Stolnu kjöti! Er það þjófnaður, þótt þessir skrokkar
væruhirtir? Hvaðverður eftiraf þeim, þegar Lapparnir
koma hingað í vor? Ekki eitt einasta hár! Villidýrin á að
ala — en við eigum að naga á okkur f ingurna. Þetta er
skynsamlegt. Og hversvegna þurfum við eiginlega að
beygja okkur fyrir Löppunum?
— Ertu orðinn geggjaður, drengur? Hver hefir komið
þessu inn hjá þér? Lapparnir hafa verið vingjarnlegir í
okkar garð.
— Vingjarnlegir — það vantar víst ekki! Það var vin-
gjarnlegt af þeim að kveikja í skóginum, þegar þeir
f réttu, að við ætluðum að setjast hér að. Heldurðu, að ég
muni ekki hvernig hér var umhorfs, þegar þú og
mamma og við krakkarnir komum hingað? Askan var
ekki einu sinni kulnuð sums staðar, og mamma grét víst
sárar en orð fá lýst þá nótt, þótt þú gæfir því engan
gaum.
Og það var líka vingjarnlegt af Löppunum, þegar þeir
gerðu tilraun til þess að brenna okkur inni....
— Hvað? stundi Lars hásum rómi.
— Þegar þeir reyndu að brenna okkur inni, segi ég. Þú
hef ir aldrei innt að því einu orði. En ég veit þetta samt.
Lars Pálsson dró andann þungt. öll þau ár, sem þau
höfðu búið í Marzhlíð, hafði hann ekki minnzt á það einu
orði, hvorki við konuna né börnin, hvað gerzt hafði nótt-
ina forum, þegar við f jálft lá, að nýbýlið og fólkið, sem
þar bjó, yrði þurrkað út af jörðinni. Þetta ver atburður,
sem honum fannst hyggilegast að láta liggja í þagnar-
gildi.
— Hver hefir sagt þér þetta? spurði hann hvatskeyt-
lega.
— Lappakerling.
Lars horfðilum hríð í eldinn, og af stórskornu andliti
hans mátti ráða, að hann var mjög hugsi. Lappakerling.
Tíminn er fljótur að líða — stundin er örfleyg. Fyrir
fimmtán árum hafði hún verið ung og blómleg stúlka.
— Jæja. Fyrst þér er svona vel kunnugt um þetta, þá
ættirðu líka að vita, að það var aðeins einn einasti Lappi,
sem átti sök á þessum atburðum. Og hann er ekki lengur
hér um slóðir. Og svo skaltu minnast þess, að Lapparnir
létu okkur fá fimm hreindýr í haust.
Þrjóskusvipurinn fór ekki af Aroni.
— Létu okkur fá — þú getur sagt! Það má komast
þannig að orði, en ef þú hugsar þig um, þá verður þér
Hvaðí
heyrirðu?
Kannski það |
vanti rafhlöður 1
i hann.
lErtu að hlusta" <
^ á kuðung Jamrn
K inn? ' yS/—1
Ekkert
111:11:1
iiil
I
Sunnudagur
8.00 MorgunandaktSéra Sig-
uröur Pálsson vlgslubiskup
flytur ritningarorö og bæn.
8.10 Fréttir. 8.15 Veöurfregn-
ir. Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. Útdráttur Ur
forustugreinum dagblaö-
anna.
9.15 Morguntónleikar (10.10
Veöurfregnir). a. „Hnotu-
brjóturinn”, svita op. 71a
eftir Tsjaikovský. Filharm-
onlusveitin I Vin leikur:
Herbert von Karajan
stjórnar. b. Hörpukonsert
op. 74 eftir Gliére. Osian
Ellis og Sinfóniuhljómsveit
Lundúna leika: Richard
Bonynge stjórnar. c. Pianó-
kvartett op. 3 eftir Mendels-
sohn. Eva Ander, Rudolf Ul-
brick, Joachim Schindler og
Ernst Ludwig Hammer
leika.
11.00 Messa I Dómkirkjunni
Biskup íslands, herra Sig-
urbjörn Einarsson, messar
og minnist 90 ára afmælis
Stórstúku íslands. Organ-
leikari: Ragnar Björnsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
Fréttir og veöurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Minir dagar og annarra
Einar Kristjánsson frá Her-
mundarfelli spjallar viö
hlustendur.
13.40 Miðdegistónleikar Frá
úrslitum I fjóröu Karajan
hljómsveitarstjórakeppn-
inni. Adrian Philip Brown
frá Englandi, Gilbert Isi-
dore frá Bandarikjunum,
Stanislaw Macura frá
Tékkóslóvakiu og Daniel
Oren frá Israel stjórna sin-
fóniuhljómsveit útvarpsins I
Köln. a. Þættir úr ,,Pet-
rúsjka” eftir Stravinsky. b.
Þættir úr sinfóniu nr. 3 I
F-dúr eftir Brahms. c. Sin-
fónia nr. 5 I C-moll eftir
Beethoven.
15.00 Hvernig var vikan? Um-
sjón: Páll Heiðar Jónsson.
16.00 Harmonikulög. Will
Glahé og félagar leika.
16.15 Veöurfregnir. Fréttir.
16.25 Alltaf á sunnudögum
Svavar Gests kynnir lög af
hljómplötum.
17.10 Barnatimi: ólafur
Jóhannsson stjórnarLesnar
kimilegar þjóösögur úr
Gráskinnu, Grimu og safni
Jóns Arnasonar. Lesari meö
stjórnanda: Kristinn Gisla-
son. Karlakór Reykjavikur
syngur lög eftir Jón Leifs og
Jón Asgeirsson.
18.00 Stundarkorn meö gitar-
leikaranum John Williams
Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Þistlar — þáttur meö
ýmsu efni Umsjónarmenn:
Einar Már Guömundsson,
Halldór Guömundsson og
örnólfur Thorsson.
20.00 Pianókonsert 1 B-dúr
eftir Brahms Nikita Maga-
loff og Filharmoniusveitin i
Búdapest leika: Kyrill Kon-
drasin stjórnar. — Frá ung-
verska útvarpinu.
20.50 „Ættum viö ekki einu
sinni aðhlusta?”Birgir Sig-
urðsson og Guörún As-
mundsdóttir ræöa viö skáld-
konuna Mariu Skagan og
lesa úr verkum hennar.
21.40 Kammertónlist
Kammersveit Reykjavikur
leikur „Stig” eftir Leif Þór-
arinsson.
21.45 „Langnætti á Kaldadal”
Erlingur E. Halldórsson les
ljóö eftir Þorstein frá
Hamri.
22.00 Fréttir
22.15 Veöurfregnir. Danslög
Heiðar Astvaldsson dans-
kennari velur lögin og kynn-
ir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
Mánudagur
7.00 Morgunutvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimikl. 7.15 og
9.05: Valdimar örnólfsson
leikfimikennari og Magnús
Pétursson pianóleikari (alla