Tíminn - 11.07.1976, Page 4
TÍMINN
Sunnudagur IX. júll 1976.
M
Gömlu Hollywood-stjörnurnar
með sauma bak við eyrun
Mae West
Doris Day
# Dean Martin
# Henry Fonda
Burt í ancmter
Það er næsta furðulegt, hversu
lttið gömlu Hollywood-andlitin
breytast. Einhver man kannski
eftir Merle Oberon, sem lék I.
myndinni Svimandi hæðir 1939.
Hún er fædd árið 1911 og er eins
og ungbarnsrass i framan og
nýgift pilti, sem er 25 árum
yngri en hún, en litur út fyrir að
vera 25 árum eldri en hann er.
Ég held mér ungri með þvi að
hugsa aðeins fallegar hugsanir,
segir hún. Læknir hennar segir
reyndar dálitið annað. Hún
hefur látið gera á sér andlits^
lyftingu, rétt eins og Dean
Martin, sem er 58 ára, Burt
Lancaster, sem er 62 og Henry
Fonda, sem nú er sjötugur.
Gloria Swanson hefur ekki elzt
um einn einasta dag frá þvi hún
lék i myndinni Sunset Boule-
vard fyrir 25 árum. — Það er
vegna þess að ég stunda alltaf
joga, segir hún. — Ætli þaö sé
ekki heldur mér að þakka segir
sá, sem framkvæmdi andlits-
lyftinguna á henni. Doris Day,
51 árs, hefur ekkert breyzt frá
þvi I gamla daga, þegar hún lék
á móti Rock Hudson. Hún á útlit
sitt einnig skurðlækni nokkrum
að þakka. Elizabeth Taylor vill
ekki láta gera á sér andlitsaö-
gerðir vegna þess að hún er
hrifin af hrukkunum sinum. —
Ég elska hverja einustu hrukku
á andliti minu, segir hún. — Ég
hef sjálf unnið til þeirra, og
einnig elska ég gráu hárin. Ég
er búin að skira þau, hvert eitt
og einasta og þau heita Burton.
Ingrid Bergman er á sömu
skoðun og Taylor og sömu sögu
er að segja um Katharine
Hepburn og Betty Davis. Mae
West er I þessum sama hópi, og
hún segir ögrandi viö aðdáendur
sina: Þið skuluð bara kikja á
bak viö eyrun á mér, þar eru
engir skurðir.
Afmælispeysan — USA
Þann 4. júli s.l. hófust hátlöa-
höld um öll Bandarikin vegna
200 ára afmælis þeirra. Undir-
búningur hefur að sjálfsögöu
verið mikill og margvislegur og
ekki aðeins I Bandarlkjunum.
T.d. I Arósum I Danmörku er
fatahönnuöur, Finn Hjernö að
nafni, og hann vildi leggja fram
sinn skerf til þess aöhalda upp á
afmælið og teiknaði þvi þessa
afmælispeysu, sem dönsk stúlka
sýnir hér á myndinni. Stúlkan
heitir Jytte Breuning og þykir
efnileg ung leikkona I Dan-
mörku, a.m.k. stendur hún sig
vel við að sýna kosti peysunnar,
og hvort sem það hefur verið
þessari mynd að þakka eður ei
— þá seldust afmælispeysurnar
mjög vel. — Þaö má segja, aö
þær hafi runnið út eins og heitar
lummur, segir Finn, hönnuður
peysunnar.
Hún giftist póstinum
#
Ungur, ástfanginn piltur skrif-
aði 700 bréf, á tveggja ára tima-
bili, til kærustunnar sinnar og
baö hana um aö giftast sér.
Árangurinn af þessum bréfa-
skriftum lét ekki á sér standa.
Stúlkan trúlofaðist póstmannin-
um, sem hafði fariö með öll
bréfin til hennar! Þetta gerðist I
Taipei, Taiwan.
DENNI
DÆMALAUSI
Bíddu viö, hvernig væri aö við
skiptum um hlutverk. Þú færir I
baö, og ég þurrkaði þér.