Tíminn - 11.07.1976, Page 15

Tíminn - 11.07.1976, Page 15
Sunnudagur 11. júli 1976. TÍMINN 15 Japanir ætla að byggja nýja höfuðborg Yfirvöld i Japan í- huga nú, hvort þeir eigi að flytja stjórn- arsetur landsins frá hinni yfirfullu Tokió til dals eins nokkrum milum norðar. Það kæmi væntanlega til með að kosta um 1.800 miiljarða króna að byggja nýja höf- uðborg og tæki 10-15 ár. hafa varnaraðgerðir i umhverfis- málum smátt og smátt orðið strangari. Astandið er einnig orð- ið heldur skárra en það var. Fjallið Fúsijama, sem er 55 kilómetra frá miðborg Tókió, sást þaðan aðeins i 13 daga árið 1968. Arið 1969 fjölgaði dögunum i 14, i 18 árið 1970, i 30 árið 1971, i 42 árið 1972, i 52 árið 1973 og i 57 daga árið 1974. Raunar sést fjallið ekki allan daginn heldur venjulega aðeins að morgninum, meðan er heið- skirt. Samt er þetta framför. Þaö er enn sem fyrr fremur óvenju- legt, að fjallið allt sjáist skýrt og greinilega. Eins og oft er gert i Japan hafa menn soðið saman málamiðlun- artillögu milli stórhuga áforms Olympiusvæðiö I Tokyo um að byggja alveg nýja höfuð- borg og þess að láta allt vera ó- breytt. Hún gengur út á, að hluti stjórnarstarfsins verði flutt til út- jaðars núverandi Tókióborgar. Japanska rikið hefur nefnilega endurheimt hluta af herstöðv- unum i Tachikawa frá Banda- rikjaher, en Tachikawa er ein af borgunum 26, sem eru samvaxn- ar Tókió. Hér var á sinum tima æfingasvæði keisarahersins. Hér hyggjast Japanir byggja nútimaborg að hætti Vestur- landabúa. Fyrirtækið mun kosta um 1.800 milljarða króna miöað við núgildandi verðlag og standa 10-15 ár. Þegar 1964 voru yfirvöld i Japan farin að ræða möguleika á að flytja höfuðborg landsins. Orsök þessa var sú, að Tokió var oröin yfirfull af fólki og farar- tækjum, og hugmyndin var sú, að ef rlkisstjórnin yrði flutt, myndi það stöðva aðflutning til borgar- innar. Nú hefur Shin Kanemaru aðal- forstjóri tekið málið upp að nýju og gerzt svo djarfur að stinga upp á, að keisarinn og fjölskylda hans flytji. Keisarahöllin er i hjarta Tókió og umlukin breiðum virkis- skurðum og 115 hektara stórum trjágarði. Megnið af garðinum er lokað almenningi. Virkisskurðirnir eru breiðir og fullir af vatni og þvi væri garður- inn sennilega öruggasti staðurinn I Tókió, ef aftur yrðu náttúru- hamfarir á borð við jarðskjálft- ann mikla 1923. Skjálftinn náði styrkleikanum 8,2 á Richters- kvarða. Samtals fórust 43.000 manns og 40.000 þeirra fundust aldrei. Menn óttast nú annan jafnöfl- ugan jarðskjálfta eða enn sterk- ari. Rannsóknir sérfræðina hafa leitt i ljós skelfilegar niðurstööur: Jaröskjálfti á Tókiósvæðinu, sem væri nálægt 8 á Richterskvarða- myndi sennilega eyða meirihluta Tókió borgar, að mestu leyti I eldsvoða. Þessar rannsóknir hafa ýtt undir umræðurnar um að flytja höfuðborg landsins. Jarðskjálftahættuna nota bæöi þeir, sem vilja flytja stjórnarset- ur Japans frá Tókió, og þeir, sem vilja hafa það á sama stað. Þeir siðarnefndu halda þvi fram, aö það sé siðferðilega rangt, að rik- isstjórnin og þjóðkjörnir fulltrúar flytji á öruggari stað meðan mill- jónir óbreyttra borgara verði um kyrrt I hættulegri borg. Tókió, sem eiginlega er 27 borg- ir, sem runnið hafa saman I eina, hýsir nú 11,6 milljónir ibúa, en ár- ið 1923 voru ibúarnir aðeins 4 milljónir. Ef með er talin ibúatala borgabyggðarinnar við Tókióflóa, telur borgin i heild 19 milljónir manna. Ef með eru talin úthverfi Tókió, sem eru svo nærri, að fólk fer daglega til og frá vinnu þaöan til höfuðborgarinnar, er ibúatala þessarar miðstöövar Japans komin upp i yfir 26 milljónir, og er þar með þéttbyggðasta svæði heimsby ggöarinnar. Nokkrir snarpir jarðskjálftar hafa oröið i Tókió. Þeir öflugustu 1707,1855 og eins og áður var sagt 1923. Fyrir 8 til 10 árum hefði verið ó- hugsandi að leggja þaö til I al- vöru, að japanska þingið yrði flutt, og þá var orsakanna að leita i umhverfismálum. Allir, sem börðust fyrir umbótum I þeim efnum, hefðu lýst þvi yfir, aö slik- ur flutningur væri sama og að fulltrúar þjóðarinnar væru að hlaupast burt frá ábyrgð sinni með þvi að flytja sjálfir i heilsu- samlegra umhverfi. En siðan Ilvar sem þú ferðast um byggðir landsins eru samvinnutryggingamenn nálægir Ikaupstöðum,kauptúnum og upp til sveita eru umboðsmenn Samvinnutrygginga, yfir áttatíu talsins. Verðir þú fyrir slysi eða tjóni eru þeir reiðubúnir þér til aðstoðar í tryggingamálum, -séu Samvinnutryggingar þitt tryggingafélag. Þeir ganga frá tjónaskýrslum, leiðbeina þér °g kggja drög að uppgjöri tjónsins. Góða ferð út á landsbyggðina. SAMVIIVNUTRYGGINGAR GT. ÁRMÚLA3 SlMI 38500

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.