Tíminn - 12.09.1976, Síða 3
Sunnudagur 12. september 1976.
TÍMINN
3
Bjarni Guðjónsson listmálari opnar málverkasýningu i dag, 11.
september i sýningarsal byggingarþjónustu arkitekta. Á sýningunni,
sem ertiunda einkasýning Bjarna,eru 38oliu-og pastellmyndir. Bjarni
er þekktur myndskeri frá Vestmannaeyjum, en siöari ár hefur hann
lagt stund á málaralist. Þctta er sölusýning og veröur opin til 23.
september.
veiðihornið
Gljúfurá
— Þaö eru komnir á land 340 til
350 laxar, sagði Siguröur Tómas-
son, Sólheimatungu, I samtali viö
VEIÐIHORNIÐ i gær. — Þetta er
meö minnsta móti, t.d. fengum
viö i fyrra rúmlega 500 á öllu
veiöitimabilinu. Annars er áin
ágæt og veiöi hefur verið góö
undanfarna tvo daga. Viö veiöar
eru nú Hans Kristjánsson og fé-
lagar úr Fiat-umboöinu, og hafa
þeir fengiö 18 til 20 laxa eftir tvo
daga. Hins vegar var hópur á
undan þeim, og ég held aö ein-
hverjir þar hafi ekki fengið einn
einasta lax úr ánni.
Siguröur sagöist telja aö meö-
alþyngd laxanna vera á milli 5 og
7 pund, en sá stærsti sem fengizt
hefur i sumar vó 15 pund. Þegar
Sigurður var spuröur um hvern
hann teldi vera vinsælasta veiöi-
staöinn i sumar sagöi hann, aö
Oddahylur, sem er ofarlega I ánni
heföi gefiö einna mest. — Annars
er þetta breytilegt, sagöi Sigurö-
ur, fyrrihluta sumars, þá veiöist
mest neöarlega i ánni, en þegar
liða tekur á, fæst einna mest
ofarlega I henni.
í haust veröur sleppt I Gljúfúrá
10-15 þúsund sumaröldum seiðum
frá Laxalóni, og I vor var sleppt i
hana 2.600 niöurgönguseiöum.
Þessum fjölda hefur verið sleppt
siöastliöin sex ár, og sagöi
Siguröur aö þaö heföi gefiö mjög
góöa raun, enda er áin talin vel til
ræktunar fallin.
Flókadalsá: mun minni
veiði en i fyrra
— Hjá mér er litiö I fréttum,
annaö en þaö, aö maöur er á kafi I
heyskap, sagöi Ingvar Ingvars-
son Múlastööum. — Þaö sem ég
veit um veiöi, er aö hún er litil.
Veiöimenn hafa sett mikiö I lax,
en þeir segja aö hann festist illa á
önglinum, annars mun vera
nokkuö af laxi i ánni. Ég gæti trú-
aö, aö á land væru komnir rúm-
lega 400 fiskar, en þaö er mun
minna en fékkst siöastliöiö ár —
þá veiddust 611 laxar. Hins vegar
á ég von á þvi, aö þaö náist upp
sami laxafjöldi og áriö 1974 og
rúmlega þaö. í lok veiðitimabils
þess árs voru komnir 414 laxar á
land.
I sumar voru sett 1,500 niður-
göngu-seiöi, en þaö er veiöifélag I
Borgarfiröi, sem sér um eldi seiö-
anna fyrir eigendur Flókadalsár.
Ingvar sagöi, aö þaö væri ekki
ákveöiö hversu mikiö magn yröi
sett af sumaröldum seiöum I
haust.
Elliðaár: 146 laxar á
fimm dögum
Að kvöldi sjötta sept. voru
komnir á land 1595 laxar úr
Elliöaánum. Um þetta leyti I
fyrra voru komnir á land rétt inn-
an viö 2000, þannig aö veiöin I dag
er um 82% af þvi sem var i fyrra.
Veiöin i Elliöaánum var lengi vel
i tæpum 50%, en hún tók góöan
sprett I ágúst, og hækkaöi sig I
80% og hefur haldið þvi siöan.
—Frá 2. til 6. sept. var góö veiöi
i ánni, sagöi Friörik Stefánsson,
hjá Stangveiöifélagi Reykjavik-
ur. —-Þaö komu á land frá 24 til 35
laxar á dag og heildartalan var
146 laxar. Hins vegar þá hef ég
ekki handbærar tölur fyrir næstu
tvo daga, en ég geri ráö fyrir, aö
þetta geti orðiö metvika I ánni.
Veíöin i öðrum ám, sem Stang-
veiöifélagiö hefur á sinum snær-
um hefur veriö frá 70 til 75% miö-
aö viö siðastliöiö sumar, sagöi
Friörik, — svo aö ég er ánægöur
meö Elliðaárnar. En þaö er vætu-
tiöin sem hefur gert þaö aö verk-
um, aö veiöi i ám félagsins er eins
léleg og raun ber vitni. í Borgar-
firöi til dæmis, þá hefur verið þar
samfelld vætutiö og of mikið vatn
i ánum. Hins vegar hefur llka,
samkvæmt teljurum, gengið
minni lax i árnar en venja er til.
Friörik sagði, aö um 1600 laxar
heföu veiðzt I Noröurá, sem er
nokkru betra en 1974, en þá veidd-
ust 1428 laxar I ánni. Aftur á móti
er veiðin I ár ekki nema um 75%
af veiöinni i fyrra. Af öörum ám,
sem Stangveiöifélagiö hefur á
leigu, haföi Friörik ekki nákvæm-
ar fréttir, en i þeim flestum, ef
ekki öllum, mun veiöin i sumar
hafa verið lakari en á s.l. ári.
ASK
Skrifstofustarf
Rafveita Hafnarfjarðar óskar að ráða
starfskraft á skrifstofu. Áherzla lögð á
vélritunarkunnáttu. Laun eftir launa-
flokki B-7.
Umsóknum skal skila fyrir 20. september
til rafveitustjóra, sem veitir nánari upp-
lýsingar um starfið.
Rafveita Hafnarfjarðar.
Þessi merki, sem öll eru
heimskunn fyrir gœði bjóðum
við viðskiptamönnum vorum
(y) PIONEER
hljómtæki 3 — 5 ára ábyrgð
harman/kardon
hljómtæki 3 ára ábyrgð
HBL
hátalarar 10 ára ábyrgð
hátalarar 5 ára ábyrgð
ortofon
pick-up árs ábyrgð
ENPIfE
pick-up árs ábyrgð
&TDK
casettur 8 rása og spólur
sjónvörp,
ferðatæki,
reiknivélar,
vasatölfur,
hljómtæki
1 — 3 ára ábyrgð
<§) KARNABÆR
HLJÓAATÆKJADEILD
Laugavegi 66 * Sími 2-81-55