Tíminn - 12.09.1976, Page 6
4
ISMINN
Swmttéagw n. &eptcrohcr 1»78.
Hús prentarafélagsins, Hverfisgata 21, i marz 1976
A Hverfisgötu 18 í Reykjavik
ber fyrir augu fallegt hús, sem
fljótt vekur athygli vegfaranda.
Þetta er stórt bárujárnsklætt
timburhús, strágult að lit, með
sérkennilegum skreytingum á
framhlið og þakbrún. Uppruna-
lega var allt skrautið úr tré, en
nú úr málmi — ofan þaks. Húsið
var byggt árið 1906, og er enn
ófúið með öllu, enda til þess
vandað. Þiljur þrefaldar og
hefilspónatróð á milli. Enginn
„tizkuleki” á þaki!
í gamla daga voru engar
leiðslur ihúsum, kolaofnar voru
til upphitunar, steinoh'ulampar
til ljósa og vatnið var sótt i læk-
inn eða brunninn.
Eldri myndin af húsinu mun
tekin einhvern tíma á árunum
1908-1912. Gluggar niðri óvenju
stórir, eftir þvi, sem þá gerðist,
og fjöldi smárúða á stórum fleti
á framhliö uppi, enda var þar
ljósmyndastofa. A þessari
gömlu mynd sést til vinstri
gamli steinbærinn Traðarkot,
sem núer horfinn fyrir alllöngu.
Til hægri sér i þakið á stjórnar-
ráðinu, og lengst til hægri
Thomsens magasin (sem er
horfið). 1 bakgrunni lengst i
burtu mótar fyrir gömlu Landa-
kotskirkjunni og gamla sjúkra-
húsinu. Simalinur voru allar
ofanjarðar á þeirri tið, eins og
sjá má á þessari mynd.
Traðarkot, sem Traðarkots-
sund er við kennt, dró nafn af
Arnarhólströðum, og er talið
reist fyrir 1820. Bjó þar fyrstur
Jón Guðmundsson, vestanpóst-
ur. Oft var tvibýli i Traðarkoti.
— Nú er þarna bilastæði.
Steinhúsið Hverfisgata 16 við hiið nr. 18. Myndin tekin I ágúst 1976
Bárujárnsklætt timburhús
Hverfisgata 44
Steinhús, Hverfisgata 16, er
nú orðið nábúi hússins nr. 18 og
sést það á nýju myndinni — sem
tekin er á sama stað á Hverfis-
götu.
Um húsið Hverfisgötu 18 hef-
ur Jóhann G. Ólafsson gefið
upplýsingar og léð gömlu mynd-
ina. Húsið létu þeir Pétur
Brynjólfsson kgl. hirðljósmynd-
ari og Gestur Einarsson um-
boðssali reisa árið 1906. Bygg-
ingarmeistari var Magnús Th.
S. Blöndal, er mörg hús teiknaði
og sá um. 21. júni 1906 afsalar
Hannes Hafstein ráðherra Pétri
Brynjólfssyni ljósmyndasmið i
Reykjavik97 ferálna lóðarsvæði
úr Arnarhólstúni að sunnan-
verðu við Hverfisgötu fyrir 485
krónur.
15. júli 1915 eignast Ólafur G.
Eyjólfsson kaupmaður og
skólastjóri verzlunarskóla Is-
lands, eignina. Kaupverð var 20
þúsur.dkrónur. Seinna eignaðist
byggingarfirmað Danske Lloyd
i Kaupmannahöfn húsið, og sið-
ar seldi það eignina núverandi
eiganda — Jóhanni Ólafssyni og
Co —7. mai 1930 fyrir 65 þúsund
krónur. Húsið var i töluverðri
niðurníðslu um þetta leyti og
fóru fram umfangsmiklar við-
gerðir og breytingar á þvi m.a.
var innréttuð varahlutaverzlun
á neðri hæðinni. Svalir voru
teknar af, inngarigi breytt og
dyrum lokað á gafli. Hafði Ein-
ar Sveinsson húsameistari um-
sjón með þessum breytingum.
Eftir byggingu Þjóðleikhúss-
ins (það var vigt 1950, en haföi
verið lengi ismiðum) var skipu-
lagi bæjarins breytt, og ,,Ind-
riðatorg” ráðgert á lóðinni
Hverfisgötu 18, o.fl. lóðum i
kring, gegnt leikhúsinu: Þótti
þvi ekki eyðandi miklu fé i við-
hald og húsið komst i niður-
niðslu á nýjan leik.
Upp úr 1969 var endurbygging
hafin og smám saman gert við
húsið hið innra, og i ár var tekið
til við málun og viðgerðir utan-
húss.Langt er nú siðan hætt var
við Indriðatorg, og nú nýlega
komst húsin endanlega á sinn
stað aftur, samkvæmt skipulagi
borgarinnar. 1974 flutti Jóhann
Ólafsson og Co úr húsinu og inn i
Sundaborg, og er húsið nú leigt
ýmsum fyrirtækjum, svo sem
útvarps- og sjónvarpsvið-
gerðarstofu, bilasölu, Hinu is-
lenzka ihugunarfélagi, og þar er
arkitekta- og verkfræðinga-
stofa.
Hinum megin Hverfisgötu,
við hlið Þjóðleikhússins, stend-
ur annað aldrað sérkennilegt
hús, þ.e. hús prentarafélagsins,
áður kennt við Jón Magnússon
forsætisráðherra, en þar bjó
hannlengi. Það er reist úr steini
og stendur i laglegum urta-
garði, er Arngrimur Ólafsson
prentari málari annaðist lengi
með prýði.
Smárúðugluggarnir á efri hæð
og brúnu tiglarnir gefa húsinu
skemmtilegan svip. Myndin er
tekin snemma vors.
Loks er hér vetrarmynd af
bárujárnsklædda timburhúsinu,
bækistöð Visis, Hverfisgötu 44.
Snær á jörðu, grýlukerti hanga
niður úr þakskeggi. Hafa marg-
ir listamenn reynt að likja eftir
þvi skrauti.
Ilverfisgata 18 um 1910