Tíminn - 12.09.1976, Qupperneq 25
Sunnudagur 12. september 1976.
TÍMINN
25
ur verið þarna og tóku m.a. þétt i
henni Ná.ttúruvernarráð Bret-
lands og allmargar deildir við
ýmsa háskóla. Sjónvarpað var
beint frá hæðinni þannig að fólki
gafst færi á að fylgjast með þvi
sem fram fór. Magnús Magnús-
son var þulur og skýrði það sem
fram fór áhorfendum til
glöggvunar. Hann kom þar með
þá tillögu að Silbury gæti verið
stærsta kuml sem til væri frá
bronsöld og að fyrr eða siðar
kæmi i ljós að þetta væri konung-
legur grafreitur með óvenjulega
miklu haugfé. Uppgröfturinn stóð
frá april 1968 til ágúst 1969. Leið-
angursmenn fundu ut heilmikið
um hæðina sjálfa. Hún er byggð
með svo mikilli nákvæmni að
furðu vakti. Aftur á móti eru þeir
litlu nær um tilgang hennar, en
enn er þó verið að vinna úr gögn-
um á rannsóknarstofu. Kolefn-
is-aðferðin var notuð til að á-
kvarða aldur og samkvæmt
niðurstöðum hennar, er hæðin frá
þvi 2800 f. Kr. og þvi ekki siðan á
bronsöld, heldur var hún reist af
fólkinu, sem bjó þarna á nýju
steinöld og stundaði kvikfjárrækt
og bjö til leirpotta með ávölum
botni. Eina ilátið sem fannst við
uppgröftinn var innsigluð krús og
i henni voru ýmsar ritaðar
heimildir, kvæði og almanak frá
leiðangrinum 1849. Prófessor
Atkinson hefur ekki enn lokið við
skýrslu sina úr leiöangrinum og
er ekki búizt við henni fyrr en að
minnsta kosti tveim árum liðn-
um. Michael Dames, sem I þá
tið var kennari i Swindon, haflii
fylgzt með uppgreftrinum allan
timann og sá hvernig allt var að
reka I strand, — ekkert kom fram
sem varpaði ljósi á málið. Var
þetta allt sem hægt var að segja
um hæðina hugsaði hann. Siðan á-
kvað hannaðvinna að rannsókn á
þessu upp á eigins spýtur með að-
stoð nemenda sinna.
Michael Dames er 38 ára að
aldri með masterpróf i landa-
fræði og fornleifafræði frá há-
skólanum i Birmingham og að
auki listamaður. Hann sér Sil-
bury hæðina sem lykilinn að þvi
að ráða gátu fornaldarinnar. í
hans augum er hún merkilegt
tákn: Gyðjunnar miklu,tákn
frjósemi og miðdepillinn að lifi
manna á þessu tima. Hann telur
að hæðin sjálf sé kviður þungaðr-
ar konu séð i prófil að ofan.
Gyðjan situr i fæðingarstöðu, —■
sem þekkt er meðal ýmissa frum-
stæðra þjóðflokka enn i dag — og
er að fæða. Mjöðm hennar, höfuð,
háls og brjóst eru afmörkuð af
gryfjum sem þarna eru i kring.
Og á uppskeruhátiðinni, þegar
máninn er i ákveðinni stöðu
gagnvart jörðu og kornið stendur
tilbúið fyrir uppskeruna, elur
Gyðja afkvæmi sitt. Þetta er það
sem i augum Micháels Dames er
fjársóður Silbury, opinberun á
fornum trúarbrögðum sem náðu
yfir allt lif, land og náttúru.
Prófessor Atkinson er ekki sam-
þykkur þessu. Það er bara tima-
sóun að vera að tala um trúar-
brögð fornaldar segir hann, þvi
að það er einfaldlega engin vitn-
eskja um þau, engar ritaðar
heimildir. Við getum ekki gert
ráð fyrir neinu nema það að lik-
legt er að fólkið hafi á þessum
tima trúað á lif eftir dauðann, að-
eins vegna hlutanna, sem finnast
grafnir með þeim dauðu.
— Þá verðurðu að lita á það á
annan hátt, segir Dames. — Ef þú
imyndar þér þjóðfélag án rit-
máls, og ef fólkið hafði einhverjar
djúpar tilfinningar lét það þær i
ljós á annan hátt. Þjóðháttar-
fræðingar aðhyllast þá skoðun æ
meir, að öll verk þessara manna,
smáhlutir og byggingar endur-
spegli heimspeki þeirra,ogþað er
þess vegna sem ég trúi þvi að Sil-
bury sé annað og meira en fornt
minnismerki.
Þegar Silbury var reist, var á
öllu Bretlandi og reyndar viðar á
fornöld dýrkað goð i kvenliki.
Sannanir fyrir þessu segir hann
liggja i þúsundum litilla kvenlik,-
neskja frá fornöld, úr leir, bein-
um eða steini, sem finnast um
gjörvalla Evrópu og Mið-Austur-
lönd. Flestar þeirra eru litlar,
feitar i sitjandi stellingu. 1 bók-
inni „Dawn of the God”, ritaði
Jacquette Hawkes:
— Fornbændaþjóðfélög virðast
Það er óneitanlega svipur með þessum tveim myndum. Sú til hægri er
einkennandi kvenlikneski frá fornöld, en sii til vinstri eru útlinur
Silbury og skurðanna.
Silbury er tákn frjósemi. Hæðin sjálf er kviður gyöjunnar en skurðirnir i kring mynda háls, mjaðmir, brjóst og bak.
hafa lagt áherzlu á að dýrka frjó-
semi og lifskapandi öfl, túlkuð
með kvenmyndum. Allt fram á
þessa öldhéldu Irar upp á fyrstu
kartöfluuppskeruna I ágúst með
hátiðahöldum og i gömlum rituð-
um heimildum ertalaðum ágúst-
mánuð sem „Bron Trogain” —
árstiðin þegar jörðin tekur til
starfa. Þetta er uppskeruhátiðin.
Við uppgröftinn 1967 fundust i
hæðinni vængjaðir maurar, sem
aðeins fljúga i ágúst. Það bendir
til þess að byggingin hafi hafizt á
uppskerutimanum.
Dames lætur ekki staðar numið
iskýringum þarna. Hannbendir á
að margir slikir haugar finnist á
Bretlandi og flestir þeirra séu frá
svipuðum tima þ.e. bronsöld eða
steinöld. Hann kallar þessar
undarlegu hæðir uppskeruhæðir.
Hæðir þessar eru venjulega i
tengslum við á eða uppsprettu og
svoer einnig með Silbury. Það er
Swafiohead, þverá i Kennet. Þeg-
ar Stukeley kom til Silbury árið
1723, uppgötvaði hann að fólkið,
sem bjó á þessum slóðum bar enn
lotningu fyrir ánni og bar vatnið
úrhenni upp á topp hæðarinnar til
helgidrykkju. A uppskeruhátlð-
inni, þegar tungl er fullt fór fólkið
að horfa á Gyðjuna fæða. Svo
virðist sem svalir hafi verið
byggðar rétt fyrir neðan tindinn
ogaðþaðanhafifólkiðhorft Þeg-
ar tunglið kom upp á himninum
mynduðust ákveðin form úr hæð-
unum ánni og gryfjunum. Viss
punktur i skurðunum er fæðing-
aropið á Gyðjunni. Tunglbirtan
fellur fyrst á mjaðmir og hné
myndarinnar og um miðnætti á
barnið, sem er afmarkað á milli
tveggja upphækkaðra vega upp
að hæðinni. Þegar máninn færist
upp yfir ána, snertir hann brjóst
konunnar. — Barnið verður að
drekka, og þá getum við tengt
þetta þjóðsögunni sem segir að
hæðin hafi verið reist á meðan
verið var að flóa mjólk. — Nýja
kornið var tílbúið og uppskeran
gat hafizt.
Segjum svo að þessir upphækk-
uðu vegir sem áttu að afmarka
barnið hafi aöeins verið brú fyrir
vagna og fólk til að fara yfir
skurðina á leið i vinnu, var eitt
andsvar sem Dames fékk. Viö þvi
sagði hann. — Vissulega gæti það
hafa átt sér stað, en hvers vegna
skyldi eldii hagnýt tækni vera
grundvöllur að trúarlegum hug-
myndum? Hvers vegna að að-
skilja þetta tvennt? Þessu veitist
mörgum fornleifafræðingum illa
að kyngja. Helber vitleysa segir
prófessor Glyn Daniel einn af
virtustu fornleifafræðingum
Bretlands. Ég tel að þetta sé
stærsti haugur i heimi. byggður
af manna höndum og að ekkert
annað sé um hann að segja. —
Prófessor Atkinson tekur einn
harða afstöðu gegn þessu. —
Leyndardómar Silbury gæðarinn-
ar eru óleysanlegir og munu ætið
veröa.
Michael Dames mun liklega fá
fáa stuðningsmenn að kenning-
unni. En þegar við heyrum að
hæðin sé aðeins fornminjar sem
ekkert sé hægt að segja um,
hvarflar hugurinn ósjálfrátt að
kenningum Dames. Og á meöan
við erum frjáls að standa og horfa
á mánann rlsa yfir hæðinni, get-
um við látlð imyndunaraflið
fljúga.
(JBþýddi)
BÍLALEIGAN
EKILL
Ford Bronco
Land-Rover
Blazer
Fíat
VW-fó!ksbílar
Laugavegi 118
Rauðarárstígsmegin
LOFTLEIÐIR
ss. BÍLALEIGÁ
-IT 2 1190 2 11 88