Tíminn - 12.09.1976, Side 26

Tíminn - 12.09.1976, Side 26
26 TtMINN Sunnudagur 12. september 1976. KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — K KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDÍR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — (i --" HORNIÐ KVIKMYNDA Tilgangslaus, illa gerð, léleg í alla staði og heimskuleg Umsjónarmaður __Holldór 1 Valdímarsson í ofanálag Austurbæjarbió: Ást og dauði i kvennafangels- inu. Aðaihlutverk: Eva Czemerys, Anita Strindberg. Þaö er nokkuö misjafnt hve mikiö kvikmyndaframleiðendur leggja á imyndunarafl og innlif- unarhæfileika áhorfenda sinna. Sumir þeirra stefna aö þvi aö skapa kvikmyndaleg verk, sem standa óhögguð frammi fyrir hverjum og einum, gefa litið sem ekkert svigrúm til afleiö- inga — standa sem ákvarðaöur söguþráöur og segja söguna alla. Aörir vilja veita áhorfand- anum heimild til aö sveigja sög- una nokkuö aö sinum eigin vilja, með þvi að útkljá ekki alla þætti hennar i kvikmyndinni sjálfri. Þriöji hópurinn er svo sá, sem treystir á imyndunarafl og hug- myndaauögi áhorfandans til þess að gera kvikmynd aö heil- steyptu verki. I þeim hópi eru framleiöendur kvikmyndar þeirrar, sem Austurbæjarbió hefur nú til sýningar og auglýsir sem æsispennandi og djarfa. Til þess aö njóta kvikmyndarinnar að einhverju leyti, verður áhorf- andinn aö hafa imyndunaraflið á fullu frá upphafi hennar til enda — ekki til þess að fylla söguþráöinn, heldur til þess aö breiöa yfir þaö, hve illa myndin er gerö, hve heimskuleg hún er og algerlega laus viö innihald. Með góöum vilja mætti vafa- laust horfa á form þau, sem birtast á hvlta tjaldinu, og spinna þau saman I einhvers konar samhengi, þannig aö ánægja væri af, en án þess vilja er ekkert upp úr þvl aö hafa aö sjá hana. Tvær flugur i einu höggi Söguþráður kvikmyndar þessarar ber það meö sér, aö ætlunin hefur veriö aö slá tvær flugur i einu höggi. Það er líkt og handritshöfundur og aörir aöstandendur myndarinnar hafi ekki getað gert þaö upp viö sig, hvort framleiöa skyldi glæpa- mynd eða klámkvikmynd og þvi hafi þeir einfaldlega reynt aö gera hvort tveggja I einu. Söguþráðurinn byggist á þvi, að „mafíósar” á ltallu glata tuttugu kilóum af herólni, sem átti aö vera á leiö til Bandarlkj- anna, um Sviss. Þeim er auövit- aö mikiö I mun aö ná þessu til baka, sem von er, og beita til þess þeim ráöum, sem þeim eru tiltæk. Vandamál þeirra eru stór og mikil, þar sem maöurinn, sem kom herólninu undan, er dauö- ur, unnusta hans I fangelsi og aðrir viröast ekki geta gefiö upplýsingar um málið. Þeir reyna þó aö komast aö hinu sanna meö þvl aö pynta einn af stóru maffósunum til sagna, en gengur treglega. Aö lokum drepst hann svo i höndunum á þeim, án þess aö hafa gefiö upp- lýsingar, sem aö gagni mættu ko ma. • Þá er enginn eftir nema unn- ustan I fangelsinu, sem þeir hafa raunar þegar beitt sér nokkuð viö frá upphafi. Þeir hafa aðgang aö henni gegnum lögfræöing hennar, sem hún aö vfeu fæst ekki til að tala viö, en beita jafnframt öörum, óvægn- ariaðferöum, sem þeim viröast tiltækar gegnum fangaverjur þær, sem gæta hennar og sam- fanga hennar. Tilraunir mafiósanna og aö- stoöarfólks þeirra til aö pynta stúlkukindina til sagna drukkna þó aö mestu i lýsingum kvik- myndarinnar á Ufi og tilveru fanganna i kvennafangelsinu. Þar er að sjálfsögöu margan misjafnan sauö aö finna, en all- ar viröast þær þó eiga eitt sam- eiginlegt áhugamál, sem tekur mestan tima þeirra og svo til alla krafta, þaö er kynllf. I fyrsta lagi er, að sjálfsögðu, til staöar aö minnsta kosti ein kynvillt fangaverja, sem hefur unun af aö kvelja þær afbrota- kvennanna, sem ekki vilja leggjast með henni. 1 ööru lagi, jafn mikiö aö sjálfsögöu, er til staðar glæsikvendi, sem er aö afplána langan dóm og hefur náö öllum völdum yfir samföng- um sinum — og fangaverjunum — I sinar hendur. I þriöja lagi, sem ég veit ekki hversu sjálf- sagt er, viröist kynlifsskortur- inn kvelja konurnar I fangelsinu svo, aö þær veröa aö sýna fangaverjunni og „yfirfangan- um” undirgefni til þess aö fá tækifæri til aö svala fýsnum sin- um. Hver senan rekur aöra i þessu tilliti. Sumar kvennanna reyna aö nota sina eigin fingur til aö svala sér. Aörar leita til sam- fanga sinna og eiga meö þeim langdregna og ákafa ástarleiki. Þriöji hópurinn reynir aö smygla karlmönnum inn til sln, eöa jafnvel leita til fangelsis- Vlæknisins, sem viröist allur af vilja geröur til aö hjálpa þeim. Inn I þetta allt saman bland- ast svo ein sorgarsaga um trU- aða stUlku, sem I slfellu þylur Mariubænir, önnur sorgarsaga um stúlku, sem biöur og vonar til einskis, afkáraleg saga af konu, sem er brennuvargur, auk annars, sem hefur mismikinn tilgang i myndinni, eöa öllu heldur mislítinn. Þegar allt er svo samanhrært — bardagar maflósanna, pynt- ingar á föngum I fangelsinu, kynllf fanganna, sem er ákaf- lega fjölbreytilegt, valdabar- átta meöal fanganna, raunir hverrar og einnar stúlku, þáttur bandariskra maflósa, mótmæli og slagsmál i fangelsisgaröin- um og annaö þaö sem af ein- hverjum ósýnilegum ástæöum hefur þótt hæfa aö sýna I kvik- mynd þessarri, þá er til oröinn grautur, sem alls ekki er horf- andi á. Fyrir utan allt annað Fyrir utan allt annaö er svo kvikmynd þessi einstaklega illa gerö. Leikur I henni er fádæma illa af hendi inntur og þaö svo, aö leikarar viröast engan áhuga hafa á viðfangsefni slnu. Handrit myndarinnar er gjör- samlega stefnulaust. Inn i þaö er fléttað atriðum, sem engan tilgang hafa, leiða ekki til neins og sýna nánast ekkert. Botn fæst enginn í þvi, og þótt þaö aö lokum leiöi til nokkurs konar niðurstööu, þá fer ekki hjá þvi, aö áhorfandinn einfaldlega hristi höfuðið. Sem dæmi má nefna, að I slagsmálum þeim, sem eiga sér staö milli einstakra mafíósa, er ekki einu sinni látiö svo litiö aö gera höggin sæmilega sannfær- Framhald á bls 39.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.