Tíminn - 12.09.1976, Page 34

Tíminn - 12.09.1976, Page 34
34 TÍMINN Sunnudagur 12. september 1976. Áskell Einarsson framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga: Landshlutasamtökin eiga að vera þjónustuaðili og mdlefnalegur vettvangur fyrir heildina A UNDANFÖRNUM árum hafa landshlutasamtökin gegnt æ viða- meira hlutverki. Öhætt mun að fullyrða, að landsbyggðin hefur náð lengra sameinuð innan sam- taka, eins og eru t.d. á Vestfjörð- um, Norðurlandi og Austfjörðum. A fundum þeirra eru málin rædd og afstaða tekin gagnvart at- vinnumálum, samgöngumálum og svo mætti lengi telja. Ná- grannakrytum og óheilbrigðri togstreitu er ýtt til hliðar, en hagsmunir heildarinnar bornir fyrir brjósti. Hins vegar hafa landshiuta- samtökin, eða einstakir aðilar innan þeirra, sætt nokkurri gagn- rýni vegna afstöðu sinnar t.d. gagnvart lagasetningum um landshlutasamtökin. Að frum- kvæði samtaka sveitarfélaga hefur frumvarp verið flutt til laga um stöðu sveitarfélaga, en ekki náð fram að ganga. Fyrir marga er það lika spurning hvort slik löggjöf væri ekki skaðleg fyrir skipulag samtakanna. Þ.e. yrðu ekki landshlutasamtökin aðeins einn liður i' stjórnkerfi rikisins, en ekki frjáls ogóháð samtök eins og þau eru nú i dag? Til aö ræða litillega um lands- hlutasamtökin, fékk Tiininn til Uðs við sig Askel Einarsson, framkvæmdastjóra Fjórðungs- sambands Norðlendinga, en það samband hefur á margan hátt verið brautryðjandi, og eru önnur landshlutasamtök mikiö farin aö tileinka sér starfshætti þess. Við spuröum Askel fyrstaf öllu, hvort hann teldi að lögfesta ætti lands- hlutasam tökin. — Margir forystumenn lands- hlutasamtakanna hafa lagt á það ofurkapp að lögfesta eigi lands- hlutasamtök sveitarfélaga. Þeir hafa lika efnt til umræðna, ótima- bærra vildi ég segja, áður en þau hafa haft tækifæri til að sýna gildi sitt. Svo virðist sem sum lands- hlutasamtök hafi haldið að sér höndum i starfi, og biði eftir þvi, að þeim verði trónað i stjórnar- kerfinu með lögfestingu. Þetta er iila farið og hefur jafnvel sett til- veru landshlutasamtakanna i hættu. Það skal ekki dregið i efa, að það er óeðlilegt, að ekki séu i sveitarstjórnarlögum ákvæði um landshlutasamtökin. En þetta þarf ekki aö standa framgangi þeirra fyrir þrifum, ef þeim tekst i senn að verða leiðandi afl i sin- um landshluta fyrir sveitarfélög- in, og félagslegur aflvaki um mótun byggðarstefnu, en á þessu sviði er óunnið mikið starf. Það fer eftir árangri á þessu sviði, hvort landshlutasamtökin löghelga sér stöðu og rétt I þjóðfé- laginu, svo aðekkiverðurhægt að sniðganga viðurkenningu þeirra, þegar staða sveitarstjórna er á- kveðin I lögum. Fyrir Fjórðungs- samband Norðlendinga er þetta ekki ný vitneskja. Það átti 30 ára starfsafmæli á siðasta ári, sem baráttuvettvangur I byggðarmál- um Norðlendinga. Nú á fjóröa áratugnum leggur það enn meiri áherzlu á félagslega þáttinn og sjálfstæðan málefnaundirbúning en oft áður. Þrjátiu ára reynsla sannar, að sambandið verður að treysta á eigin störf og gildi þeirra fyrir Norölendinga. Það er sú löggilding, sem skiptir öllu máli. Askell Einarsson. — Timamynd: ASK Á að Ieggja niður sýslurnar? — Gætu landshlutasamtökin komið I stað þess fyrirkomulags á sýslum, sem við búum við i dag? — Við erum nú búnir aö fá um það bil aldar reynslu af lýðræðis- legri sveitarstjórn á Islandi. Sú gamla mynd, sem hið upphaflega sveitarstjórnarskipulag speglaði, er brotin. ömtin, sem voru full- trúaráð sýslnanna með rikisskip- uöum embættismanni, voru lögð niður 1907. Kaupstaðirnir, þar sem bæjarfógeti var i senn odd- viti bæjarstjórnar og fram- kvæmdastjóri, þróuðust til lýö- ræðislegri stjórnarhátta, með kjörnum bæjarstjóra, þar sem slitin voru bein tengsl við rikis- kerfið. Sýslunefndirnar starfa enn I upphaflegri mynd, þar sem sýslumaður er I senn oddviti sýslunefndar og framkvæmda- stjóri. Þessi stutta lýsing sýnir, aðfyrstféllu ömtin úr fatinu, sem voru fasttengd embættiskerfinu. Sýslurnar, sem enn eru i tengsl- um við embættiskerfiö, hafa si- fellt veriö að missa eitthvað af hlutverki sinu. Aftur á móti blómgast kaupstaðakerfið eftir að rofin voru tengslin við rikis- kerfið. Hin beinu tengsi sýslnanna viö embættiskerfi rikisins hefur dregið úr hlutverki þeirra gagn- vart sveitarfélögunum. Hins veg- ar sýnir það engan veginn að sýslufélögin séu óþörf. Það væri röng stefna aö afnema þær eins ogömtin. Eftilvill færi eins ognú er raunin að landshlutasamtökin kæmu i stað amta. Ef sýslunefnd- ir væru afnumdar munu koma ný héraðssamtök i þeirra stað. Staö- reyndin er þvi sú, að landshluta- samtökin voru ekki stofnuð til að leysa sýslunefndir af hólmi, þau eru sameiningarsamtök héraðs- svæða innan landshluta, eins og ömtunum var ætlaðhér áður fyrr. Nauðsynlegt að endur- skipa sýslufélagaskipu- lagið — Þaö er hins vegar hverjum manni ljóst, að sýslufélagaskipu- lagið riðar til falls, nema að það sé endurskipuiagt, með virkri þátttöku sveitarstjórnanna sjálfra á viðkomandi héraös- svæði. t þvi sambandi má geta þess, að Fjórðungssambandiö hefur lagt á þaö áherzlu, að svæði sýslufélaganna verði endurskipu- lögð og sniðin með tilliti til eðli- legs þjónustusvæðis við héraðs- kjarna. Þá hefur sambandið lagt tÚ, að kaupstaöirnir verði aðilar að hinum nýju starfsnefndum. Sýsluneindirnar skipi fulltrúar sveitarstjórna eftir sömu reglum og fulltrúar til fjórðungsþings. Hver sýslunefnd kjósi sér 3-5 manna sýsluráö. Sýslunefndum sé heimilað að ráða sér fram- kvæmdastjóra. Verkefni sýslu- nefnda verði öll samstarfsverk- efniá sveitarstjórnarstigi á svæð- inu. Þær samræmi verkefni sveit- arstjóra, komi á fót og starfræki sameiginlega þjónustu og stofn- anir fyrir héraðssvæðin að ein- hverju eða öllu leyti. — Gæti þetta komið til góða fyrir minni sveitarfélög? — Já, ef sýslurnar tækju enn- fremur að sér þjónustustörf i stjórnsýslu fyrir oddvita þeirra sveitarfélaga sem eru tiltölulega litil.En það, sem ég hef drepið á i þessu sambandi, er llka lykillinn aö raunhæfu samstarfi milli sveita og þéttbýlis. Með fyrir- komulagi sem þessu geta sýsl- urnar komið á vaxandi hag- kvæmni og stórbættri þjónustu, vegna sveitarfélaganna og Ibúa þeirra. Það er ljóst að landshluta- samtökingeta ekki leyst slik hér- aðsbundin verkefni, nema að stofna til röskunar innan lands- hlutans og misræmis á milli hér- aðssvæöa. Landshiutasamtökin eiga ekki að vera framkvæmda- aðili, vegna sveitarfélaga á hér- aðsvettvangi, heldur þjónustu- aðili og málefnalegur vettvangur fyrir heildina. Minni áhugi á endur- skipulagningu sýslu- nefnda, þar sem þær eru dottnar úr samhengi við sveitarfélögin — Er alls staðar jafnmikill á- hugi á þvi að endurskipuleggja sveitarfélögin? — Nei, eðlilega er hann mis- mikill. Þar sem sýslunefndirnar eru dottnar úr samhengi við sveitarfélögin er hann tiltölulega litill. Þar sem þetta hefur komið fyrir blasir viö sú hætta, að lands- hlutasamtökin neyðist til að taka að sér hlutverk samstarfssveitar- félags og knýja saman landshlut- ann i eitt héraðssvæði — utan um einn þéttbýlisstað. Þessi þróun blasir við á Vesturlandi, Suður- landi og jafnvel á Vestfjörðum og Austfjörðum. Gallinn viö þróun sem þessa er sá, að jaðarsvæðin verða útundan við uppstokkun- ina. Hins vegar er allsendis ótæk sú þróun, sem hefur átt sér stað á Suðurnesjum. Þáttur Sambands ís- lenzkra sveitarfélaga — Ef sýslunefndir yrðu endur- skipulagðar, hvert yrði þá hlut- verk Sambands isl. sveitarfé- laga? — Það, sem skilur á milli á vettvangi sveitarstjórnarmála er, hvort sveitarfélögin skuli fást við fagleg verkefci eða láta sig varða ýmiss konar byggöamál- efni. Hlutverk Sambands isl. sveitarfélaga er að annast hvers konar málefni, sem varðar stöðu sveitarfélaga, rekstur þeirra, tekjuöflun og samskipti innan stjórnkerfisins. Hins vegar er það ekki hlutverk Sambandsins að fást við atvinnumál, áætlanagerð og ýmiss konar rekstur sveitarfé- laganna i sambandi við atvinnu- hagsmuni Ibúanna. I þessum efn- um hlýtur að myndast verka- skipting á milli landshlutasam- takanna annars vegar og Sam- bands Isl. sveitarfélaga hins veg- ar. Meginhluti Sambands isl. svéit arfélaga er að verða baráttuvett- vangur á landsvisu, en lands- hlutasamtakanna einna sér eða i sameiningu, að vinna að byggða- þróunarmálum, sem ekki ná til alls landsins. Þetta sýnir á ljósan hátt, að bæði landshlutasamtökin og Samband isl. sveitarfélaga gegna samofnu hlutverki fyrir sveitarfélögin. Það, sem þarf að gerast, er að skapa verður beinni tengsl á milli landshlutasamtak- anna og Sambands fel. sveitarfé- laga. Það verður bezt gert með þvi að aðalfundir landshlutasam- takanna kjósi fulltrúa i fulltrúa- ráð Sambands fel. sveitarfélaga. Jafnframt þvi fá fulltrúaráð sveitarfélaganna sömu stöðu gagnvart Alþingi og rikisstjórn eins og t.d. Búnaðarþing. En sumir halda þvi eflaust fram að núverandi félagsskipulag sveitarstjórnarkerfisins sé yfir- hlaðið, ogað sýslurnar séu óþarf- ar, með stofnun landshlutasam- takanna. Enn aðrir benda á, að með þvi að efla sýslurnar sé landshlutasamtökunum ofaukið. Ég tel mig hins vegar hafa fært rök að þvi, að hvorki sýslur eða landshlutasamtök geti leyst hina félagseininguna af hólmi. Megin- leiðin til að auka valddreifinguna i þjóðfélaginu er að efla sveitar- stjórnarstigið, bæði i heild og i hinum einstöku byggðarlögum. Efling samtaka sveitarfélaga verður að fýlgja breytilegum stigum samstarfsverkefnanna. Sveitarfélagskerfið byggir á þeim grundvelli, að stærð sveitarfélaga skuli ráðast af skiptingu landsins i byggðarlög, en fylgi ekki höfða- tölu. Verði kippt stoðum undan félagsuppbyggingu sveitarfélag- anna, blasir ekkert annað við en sameining sveitarfélaganna, sem strfðir gegn byggðakennd viða umlandið. Þaðer nauðsynlegt, að menn gerisér þetta almennt ljóst, þegar rætt er um endurskoðun sveitastjórnarkerfisins. Mönnum er að verða ljóst, að sveitarfélög- in verða að fylgja landsháttum, og hinir mörgu dreifðu og smáu einingar efla mest mátt sinn með samtökum. Þetta á að verða kjarninn i þeirri endurskoðun, sem nú er stefnt að. Starf landshlutasamtak- anna hefur borið góðan ávöxt — Að lokum Askell, gætir þú nefnt nokkur atriði sem náðst hafa vegna starfs landahluta- samtakanna? — Það er eðlilega ljóst, að erf- itt er aö færa sönnur á árangur af félagslegri baráttu samkvæmt mælistiku, en ef nefna ætti áþreif- anleg dæmi um einstök efnisatriði skal m.a. bent á: Lagasetningu um byggingu 1000 leiguibúða á vegum sveitarfélaga. Lagasetn- ingu um aukaframlag úr Jöfnun- arsjóði til að jafna aðstöðu. A- kvæðin um 25% af þéttbýlisvega- fé til sérstakra verkefna. Breyt- ingar á g jaldskrá slmans til jöfn- unar. Fyrir baráttu landshluta- samtakanna er unnið að undir- búningi landshlutavirkjana. Við setningu byggðarlaga er rætt um nýskipan svæðabyggingarfull- trúa. Það er fásinna að halda þvi fram, að aðrir aðilar hafi ekki átt hlut að þessu máli, en staðreynd- in er þó sú, að mjög mörg þessara mála hafa verið kynnt fyrir al- þingismönnum á samstarfsfund- um með fulltrúum landshluta- samtakanna. Hvað sem þessu liö- ur er það tvimælalaust mesti ár angurinn af starfi samtakanna, að það hefur tekizt að vekja landsbyggðina til vitundar um stöðu sina og baráttu, sagði As- kell Einarsson, framkvæmda- stjóri Fjórðungssambands Norð- lendinga að lokum. Raunvisindastofnun Háskólans óskar að rdða skrifstofumann karl eða konu, nú þegar. Nauðsynlegt er að umsækjandi sé vanur vélritun og hafi kunnáttu i tungumálum. Laun skv. kjarasamningi opinberra starfsmanna. Nánari upplýsingar um starfið eru veittar I sima 21340 kl. 10-12 næstu daga. Umsóknir með upplýsingum um mennt- un, aldur og fyrri störf sendist Raunvisindastofnun Há- skólans, Dunhaga 3, fyrir 22. september n.k. Birgðastýring — sérfræðingur Innflutningsdeild Sambandsins óskar eftir að ráða starfsmann til að vera tengiliður milli starfsemi hinnar nýju Birgðastöðvar Sambandsins og þeirrar úrvinnslu, sem ætlað er að fari fram i skýrsluvélum. Meginverkefni eru birgðastýring og tengsl hennar við önnur verkefni. Menntun á þessu sviði svo og nokkur þekking á tölvu- vinnslu nauðsynleg. Umsóknir ásamt upp- lýsingum um menntun og fyrri störf send- ist starfsmannastjóra, sem gefur nánari upplýsingar, fyrir 20. þessa mánaðar. Samband isl. samvinnufélaga.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.