Fréttablaðið - 30.11.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
> Markaðurinn
Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ...
FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Norska kauphöllin
Laxinn sækir
til Noregs
Saga Jarðborana skoðuð
Borfyrirtæki
kveður Kauphöllina
Tími jólabónusa
Kökunum
skipt
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 30. NÓVEMBER 2005 – 35. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Meira virði | Greiningardeild KB
banka hvetur hluthafa í Jarðbor-
unum til að ganga ekki að líklegu
yfirtökutilboði Atorku Group sem
hefur eignast meira en helming
hlutafjár í Jarðborunum.
Segir upp 100 | Bakkavör Group
mun segja upp hundrað manns á
skrifstofu félagsins í Bretlandi
sem hluti samþættingar- og hag-
ræðingaraðgerðum í kjölfar yfir-
töku á Geest Ltd.
Gott uppgjör | Sterk króna setur
mark sitt á afkomuna hjá HB
Granda sem hagnaðist um 585
milljónir á þriðja ársfjórðungi.
Hagnaður var 78 milljónir á sama
tímabili í fyrra.
Hafnar samruna | Kauphöll Ís-
lands ætlar ekki að hefja sam-
runaviðræður við norrænu OMX-
kauphallirnar en OMX leitaðist
eftir samruna Kauphallarinnar
við samstæðuna.
Kaup frágengin | Íslandsbanki
hefur fest kaup á öllum hlutabréf-
um í norska verðbréfafyrirtækinu
Norse Securities ASA. Er þetta
liður í uppbyggingu bankans í
Noregi.
Lýsir áhyggjum | Í umsögn Royal
Bank of Scotland um KB banka
var bent á að bankinn er mjög
háður lánsfjármörkuðum um fjár-
mögnun.
Stærstur í Scribona | Banda-
ríski fjárfestirinn David Marcus
er orðinn stærsti hluthafinn í
sænska fyrirtækinu Scribona.
Straumur-Burðarás á um sautján
prósent í félaginu.
Vextir óbreyttir | KB banki hefur
ekki tekið neina ákvörðun um að
hækka vexti íbúðalána og eru
íbúðalánavextir bankans áfram
4,15 prósent.
Nike frá
Austurbakka
Austurbakki ætlar að selja frá
sér íþróttadeildina og víndeild-
ina. „Íslandsbanki hefur séð um
söluna fyrir okkur en það er ekki
búið að ganga frá henni,“ segir
Margrét Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Austurbakka.
Þekktasta vörumerki Austur-
bakka í sportvörunum er tví-
mælalaust Nike en samstarf fyr-
irtækjanna nær tvo áratugi aftur
í tímann. Nike náði sterkri mark-
aðsstöðu snemma á 10. áratugn-
um þegar NBA-æðið var í há-
marki og hefur haldið stöðu sinni
síðan. „Þetta er flott merki og
hefur allt með sér,“ segir
hún.
Ástæðan fyrir sölunni
er sú að um áramótin sam-
einast Austurbakki,
Icepharma og Ísmed í
eitt, stórt heildsölufyrir-
tæki á heilbrigðismark-
aði og vilja stjórnend-
ur félagsins einbeita
sér að lyfjasölu og
lækningavör-
um. Áætluð
velta hins nýja félags er
um fjórir milljarðar
króna á ári. - eþa
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á
Íbúðalánasjóði er gagnrýnt að sjóðurinn hóf að
kaupa lánasamninga banka og sparisjóða og skil-
greindi það sem hluta af áhættustýringu sinni án
þess að tilkynna það markaðsaðilum. Tekur Ríkis-
endurskoðun ekki beina afstöðu til þess hvort
þessi lánasamningar, sem nema tugum milljarða
króna, hafi verið í samræmi við lög og reglur. Er
bent á að Fjármálaeftirlitið hafi verið upplýst um
gerð þessara lánasamninga og látið þá viðgangast.
Með hliðsjón af stöðu og hlutverki Fjármálaeftir-
litsins, sem sjálfstæðs eftirlitsaðila með fjármála-
starfsemi eins og Íbúðalánasjóðs, sé rétt að eftir-
litið úrskurði um slík álitamál í samræmi við lög.
Vegna mikilla uppgreiðslna íbúðalána hjá Íbúða-
lánasjóði stóð sjóðurinn uppi með mikið fé. Í upp-
hafi þessa árs fór Íbúðalánasjóður að kaupa lána-
samninga banka og sparisjóða við viðskiptavini fyr-
ir þessa milljarða. Var það gert til að samræmi yrði
milli eigna og skulda sjóðsins, það er til að fá tekj-
ur af peningunum sem Íbúðalánasjóður hafði tekið
að láni og þurfti að greiða afborganir af. Þannig fær
Íbúðalánasjóður greiðslur af íbúðalánunum til sín
sem viðskiptavinir banka og sparisjóða greiða.
Í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar kemur
fram að Fjármálaeftirlitið hafi tæplegu hálfu ári
eftir að lánasamningar voru fyrst gerðir, eða 10.
maí 2005, gert Íbúðalánasjóði það ljóst að samning-
ar af þessu tagi væru orðnir verulegur þáttur í
starfsemi hans. Áður hafði eftirlitið ekki gert at-
hugasemdir enda var talið í upphafi að samningarn-
ir hefðu verið gerðir til að bregaðst við vanda á til-
teknum tímapunkti og væri liður í áhættustýringu.
Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, gaf svo út
nýja reglugerð í september þar sem tekin voru af
öll tvímæli um að Íbúðalánasjóði væri heimilt að
kaupa lánasamninga.
Ríkisendurskoðun fjallar um álitsgerð
Jóhannesar Sigurðssonar, hæstaréttarlögmanns og
prófessors í fjármálafræðum við Háskólann í
Reykjavík. Sagði hann meðal annars að
lánasamningar uppfylltu ekki skilyrði sem
Íbúðalánasjóði væru sett varðandi áhættustýringu.
Ríkisendurskoðun tekur ekki beint undir þetta
heldur skýrir afstöðu Íbúðalánasjóðs, sem segir að
áhættustýring sjóðsins sé alls ekki bundin við
viðskipti með verðbréf.
Önnur atriði sem Ríkisendurskoðun fjallar um
er að síðasta uppgjör Íbúðalánasjóðs hefði mátt
vera ítarlegra. Þá hefði sjóðurinn í ljósi mikilla
uppgreiðslna íbúðalána átt að fara hægar í sakirnar
við útgáfu nýrra íbúðabréfa. – sjá nánar bls. 10
F R É T T I R V I K U N N A R
14 12-13 6
Útrásarvísitala
Markaðarins:
Hækkar um
þrjú prósent
Útrásarvísitala Markaðarins
hækkar um 2,91 prósent á milli
vikna og mælist nú 119,15 stig.
Sænska félagið Scribona hækk-
aði mest frá því í vikunni á undan
eða um 9,4 prósent en Straumur-
Burðarás á hlut í félaginu. Næst-
mest hækkaði danska fasteigna-
félagið Keops um 8,9 prósent á
milli vikna en Baugur Group á
hlut í því félagi.
Mest lækkuðu bréf í deCode,
alls um 6,5 prósent á milli vikna.
Þá lækkuðu bréf í NWF, sem At-
orka Group á hlut í, um 6,5 pró-
sent. - hb
Gagnrýnir upplýsinga-
gjöf Íbúðalánasjóðs
Íbúðalánasjóður fór ekki á svig við lögin þegar hann keypti lána-
samninga fjármálastofnana samkvæmt stjórnsýsluúttekt Ríkisend-
urskoðunar. Vanda hefði mátt til upplýsingagjafar í kjölfarið.
JORDAN SPILAÐI Í NIKE Nike-
umboðið er á leið frá Austurbakka
ásamt öðrum íþróttavörum og vín-
deildinni.
Magnúsi Jónssyni, forstjóra At-
orku Group, sem er stærsti hlut-
hafinn í Jarðborunum, finnst
vinnubrögð Greiningardeildar
KB banka ófagleg vegna grein-
ingar bankans á Jarðborunum.
„Við skiljum ekki þær forsendur
sem KB banki gefur sér. Þeir
hljóta að búa yfir meiri upplýs-
ingum en við sem erum í félaginu
og þeir innherjar sem seldu okk-
ur bréfin.“
Yfirtökutilboð Atorku í Jarð-
boranir verður lagt fram innan
skamms og hafa forsendur þess
ekkert breyst að sögn Magnúsar.
Magnús bendir á það að Jarð-
boranir hafi tilkynnt um sölu á
Einingaverksmiðjunni sem þýði
tekjusamdrátt upp á hálfan millj-
arð. Ekkert tillit sé tekið til þess
en samt sé gert ráð fyrir nærri
25 prósent vexti á næsta ári.
Hann efast einnig um þær for-
sendur sem KB banki gefur sér
um vöxt Jarðborana til ársins
2014. Félagið gaf út rekstrará-
ætlun sem miðast við að velta fé-
lagsins verði allt að 4,3 milljarð-
ar á þessu ári. KB banki spáir
hins vegar fimm milljarða veltu
á árinu.
„Venjan er sú að óskað er eftir
fundum með félögum sem verið
er að greina til þess að leggja
mat á forsendur. Það var ekki
gert í þessu tilfelli.“
Magnús furðar sig einnig á
orðum KB banka að það séu slök
býtti að skipta á bréfum í Jarð-
borunum og Atorku Group.
„Þetta gerir greiningardeildin án
þess að vinna greiningu á félag-
inu eða óska eftir fundi með At-
orku. - eþa
Ófagleg vinnubrögð KB Banka
Atorka Group leggur fram innan skamms yfirtökutilboð í Jarðboranir.
01_24_Markadur-24 lesin vantar 29.11.2005 16:11 Page 3
Sími: 550 5000
MIÐVIKUDAGUR
30. nóvember 2005 — 324. tölublað — 5. árgangur
GRIMMILEG MEÐFERÐ Blettatígrar eru
fótfráustu skepnur jarðarinnar. Tegundin er í
útrýmingarhættu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ADDIS ABABA, AP Bandarískir her-
menn og dýralæknir á vegum
Eþíópíustjórnar frelsuðu um helg-
ina tvo blettatígursunga úr klóm
veitingamanns sem lét þá berjast
viðskiptavinum sínum til skemmt-
unar.
Á ferð sinni um fjarlægari
héruð landsins rákust Bandaríkja-
mennirnir á ungana fyrir tilviljun.
Þeir voru illa á sig komnir og var
annar þeirra blindur eftir að veiði-
þjófar höfðu sparkað í andlit hans.
Veitingamaðurinn neitaði að
afhenda ungana með góðu og því
tók embættismaður stjórnvalda,
með aðstoð hermannanna, þá í sína
vörslu. Þeir dvelja nú í góðu yfir-
læti í höfuðborginni. ■
Tveimur blettatígrum bjargað:
Voru látnir
fljúgast á
ANNE MARIE REINHOLDTSEN
Opnar dyr
Hjálpræðishersins
jól nám ferðir bílar
Í MIÐJU BLAÐSINS
GUÐNI ÁGÚSTSSON
Fann engan mun
Smakkaði mjólk frá Mjólku
FÓLK 38
Syngur og syngur
Hallveig Rúnarsdóttir
sópran syngur að-
ventulög á Háskólatón-
leikum í hádeginu og
treður svo upp með
Sinfóníunni í Há-
skólabíó annað
kvöld.
MENNING 26
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Ríkisendurskoð-
un gerir athugasemdir við lán-
veitingar Íbúðalánasjóðs til banka
í kjölfar umfangsmikillar upp-
greiðslu lántakenda hjá sjóðnum.
Frá september í fyrra fram á mitt
þetta ár greiddu lántakendur upp
158 milljarða króna hjá sjóðnum.
Í skýrslu sem Ríkisendurskoð-
un birti í gær segir að tryggara
hafi verið að skoða betur heim-
ildir sjóðsins og treysta laga-
grundvöll fyrir aðgerðum sjóðs-
ins þegar hann þurfti að tryggja
áframhaldandi tekjur þrátt fyrir
uppgreiðsluna.
Fram kemur að frá áramótum
hefur Íbúðalánasjóður með sér-
stökum samningum lánað bönkum
og sparisjóðum 85 milljarða króna
til allt að 40 ára á grundvelli reglna
og fyrirmæla um áhættustýringu,
sem Ríkisendurskoðun telur að séu
að ýmsu leyti óskýrar.
Ríkisendurskoðun telur hlut-
verk og umfang starfsemi Íbúða-
lánasjóðs á húsnæðis- og fjár-
magnsmarkaði þess eðlis að hafa
þurfi víðtækt samráð helstu stjórn-
valda um breytingar á starfsem-
inni. „Að mati Ríkisendurskoðunar
voru þær aðgerðir sem sjóðurinn
taldi sig nauðbeygðan til að grípa
til á sviði áhættustýringar haustið
2004 þess eðlis að æskilegt hefði
verið að bæði forsvarsmenn hans
og félagsmálaráðuneytið ... hefðu
haft samráð við þau stjórnvöld sem
helst koma að fjárstjórn ríkisins og
stjórn efnahagsmála.“
Ríkisendurskoðun telur að með
umræddum lánasamningum við
banka og sparisjóði hefði Íbúða-
lánasjóður stigið ákveðið skref í
þá átt að breyta hlutverki sínu í
þá veru að verða einnig endurfjár-
mögnunarsjóður. „Langeðlilegast
er að löggjafinn sjálfur taki slík-
ar ákvarðanir enda mjög brýnt að
hafa víðtækt pólítísk samráð um
slík mál,“ segir í skýrslunni.
Árni Magnússon félagsmála-
ráðherra segir skýrsluna staðfesta
að Íbúðalánasjóður hafi farið að
lögum við gerð lánasamninga og
komið í veg fyrir tjón sjóðsins
vegna uppgreiðslu lána. Skýrslan
geti þó jafnframt gefið tilefni fyrir
löggjafann til þess að endurskoða
lög um sjóðinn og hlutverk hans.
Sjá Markaðinn síðu 1 og 10 / - jh
Skortir samráð um
gríðarlega hagsmuni
Ríkisendurskoðun gerir athugasemd við að Íbúðalánasjóður hafi breytt hlut-
verki sínu án þess að löggjafinn hafi komið þar nærri. Húsnæðiseigendur
greiddu upp lán sín hjá sjóðnum fyrir 158 milljarða króna á tíu mánuðum.
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Hefur lánað bönkum
og sparisjóðum 85 milljarða frá áramótum.
Íslandísering
Ólafur Hannibalsson segir aðalfrétt
helgarinnar hafa verið að bandarísk
hernaðaryfirvöld hafa nú opinberlega
lýst yfir að þau sjái enga ógn steðja
að Íslandi sem réttlætt geti stöðuga
nærveru herafla þeirra.
Í DAG 18
HAMFARIR „Það lágu ljósastaurar
og pálmatré með rótum hingað og
þangað,“ segir Birna Guðjónsdótt-
ir sem búsett er ásamt eiginmanni
og tveimur stúlkum á Santa Brigi-
da nálægt Las Palmas á Kanarí-
eyjum.
Hún var akandi á heimleið frá
Playa del Ingles í fyrrinótt þegar
hitabeltisstormurinn Delta gekk
yfir. „Svo þegar heim var komið
var rafmagnið alltaf að fara af
en það gerist nú venjulega ef eitt-
hvert óveður er,“ segir Birna. Ekk-
ert skólahald var á svæðinu í gær
vegna ástandsins þó versta veðrið
væri gengið niður.
Ekkert tjón varð á eigum fjöl-
skyldunnar en víða brotnuðu
gluggar í nágrenninu auk þess sem
fjölmargir bílar skemmdust. Birna
hefur þó ekki enn haft fregnir af
því að neinn af hennar kunningjum
hafi orðið fyrir verulegu tjóni.
Klara Björnsdóttir sem býr
og rekur veitingastað á Playa del
Ingles á vesturströnd eyjunnar
Gran Canarias segir hátt í fimm-
tíu Íslendinga vera þar á slóðum
en til allrar lukku náði stormurinn
ekki þangað. „Þetta var bara svona
eins og íslenskt suddaveður hér og
maður er nú ekki að kvarta yfir
því,“ segir hún. - jse
Íslendingar í hitabeltisstorminum Delta á Kanaríeyjum:
Tré rifnuðu upp með rótum
DAGINN EFTIR DELTU Ljósastaurar og tré
máttu sín lítils frammi fyrir feiknarkrafti
Deltu sem reið yfir Kanrieyjar í fyrrinótt.
Þessi mynd er tekin í Santa Brigida þar sem
Birna býr. MYND/BIRNA GUÐJÓNSDÓTTIR
RIGNING EÐA SLYDDA í borginni
og til stranda sunnan og vestan til en
snjókoma til landsins. Stöku él á Norð-
ur- og Austurlandi. VEÐUR 4
��
�
��
�
�
��
�
��
��
�
��
�
�
��
�
��
�
�
��
�
�
��
���������������
����
���
����������������
�������������
�������������� ������������������������������
������� ����������������������
LITLAR SKEMMDIR Enginn var hætt kominn þegar krani féll við nýbyggingu í Kórahverfi í Kópavogi en hann er talinn ónýtur. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
SLYS Byggingakrani valt við
nýbyggingu í Kórahverfi í Kópa-
vogi um miðjan dag í gær en
engin slys urðu á fólki.
Tildrög slyssins eru ókunn en
Ragnar Þór Ólason, kranastjóri
og smiður, segist ekki muna eftir
því áður að krani sem þessi velti
án þess að óveður sé.
„Við höfum enga hugmynd
um hvað gerðist sem olli þessu
en það slasaðist enginn og
Vinnueftirlitið er að rannsaka
þetta,“ segir Ragnar og bætir
við: „Það var fínt veður og það er
nákvæmlega ekkert sem útskýr-
ir hvað hér átti sér stað. Vonandi
finnur Vinnueftirlitið orsökina
við rannsókn sína.“ - aöe
Óhapp við framkvæmdir:
Krani valt í
Kópavogi
Jafntefli í hörkuleik
Valur og Stjarnan gerðu 32-32
jafntefli í miklum slag í DHL-deild
karla í handbolta í gær.
Patrekur Jóhannesson
rotaðist í
leiknum og
var fluttur á
sjúkrahús.
ÍÞRÓTTIR 34
ANNA AGNARSDÓTTIR
Kjörin forseti Sögufélags
Fyrsta konan í 103 ár
TÍMAMÓT 22
Framkvæmda-
stjóri FÍB
Runólfur Ólafsson
segir tuttugu prósent
ungmenna lenda í slysi
fyrsta árið.
BÍLAR 24