Fréttablaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 8
8 30. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
PÁFAGARÐUR, AP Páfagarður hefur
gefið út leiðbeiningar um samkyn-
hneigð og prestdóm þar sem fram
kemur að ekki mega vígja þá sem
haldnir eru rótgróinni samkyn-
hneigð. Hins vegar má vígja þá
sem ekki hafa sýnt slíkar hneigðir
í þrjú ár.
Leiðbeiningarnar hafa verið
í smíðum í nokkur ár og í ágúst
síðastliðnum lagði Benedikt páfi
XVI blessun sína yfir þær. Skjal-
ið var svo birt opinberlega í gær
en raunar höfðu ítalskir fjölmiðl-
ar lekið efni þess fyrir nokkrum
dögum.
Skjalið hefur fengið blendnar
viðtökur. Íhaldsmenn segja að
með því muni „hommamenning“,
sem sögð er landlæg í bandarísk-
um prestaskólum, verða upprætt
en frjálslyndari klerkar benda
á að leiðbeiningarnar muni síst
verða til að bæta úr brýnum skorti
á prestum. Auk þess setja þeir
spurningarmerki við hugtakið
„rótgróin samkynhneigð“.
Séra Timothy Radcliff, fyrrver-
andi yfirmaður reglu Dóminíkana,
segir að sjálfsagt sé átt við menn
sem hafa alla tíð verið samkyn-
hneigðir. „Þetta getur hins vegar
ekki staðist því ég þekki fjölmarga
frábæra presta sem eru hommar
og þeir hafa afdráttarlausa köllun
frá Guði.“ - shg
Páfagarður gefur út leiðbeiningar um prestdóm og samkynhneigða:
Rótgrónir hommar vígist ekki
BENEDIKT XVI Hann er hlynntur nýju regl-
unum enda þótt ekki sé fyllilega ljóst hvað
átt sé við með rótgróinni samkynhneigð.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEISTU SVARIÐ
1 Hvaða embætti gegnir Karl Steinar Valsson?
2 Hver stjórnar Fatah-hreyfingunni?
3 Hver var valinn besti knattspyrnu-maður Evrópu að þessu sinni?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38
DÓMSMÁL Tveir Litháar, 55 og 27
ára, hafa verið dæmdir í þriggja
ára fangelsi hvor í Héraðsdómi
Austurlands.
Mennirnir smygluðu hingað
tæpum fjórum kílóum af metamf-
etamíni sem falið hafði verið í Cit-
roën-bifreið um borð í farþegaferj-
unni Norrænu. Tollverðir fundu
efnið 30. júní sl. Leitarhundar urðu
áhugasamir um bílinn og var hann
því færður til nánari skoðunar.
Mennirnir gátu við yfirheyrslu
hvorki bent á neinn hér sem þeir
áttu að hitta né heldur nokkurn
ytra sem skipulagði för. Eldri
maðurinn sagðist hafa verið við
bílainnflutning. - óká
Litháar dæmdir í fangelsi:
Fengu þrjú ár
fyrir að smygla
Opið hús
hjá SVFR
Föstudaginn
2. desember
• Sr. Pálmi Mattíasson flytur stutta jólahugvekju veiðimanna
• Veiðistaðalýsing á Svalbarðsá
• Bjarni Júlíusson formaður SVFR kynnir söluskránna
og ný veiðisvæði
• Hilmar Hansson ræðir um „hitch“
• Myndagetraun
• Happahylurinn sívinsæli verður á sínum stað og er í boði Intersport
Skemmtinefndin
Félagar SVFR eru hvattir til mæta og taka með sér gesti.
Athugið að ALLIR áhugamenn um stangveiðar
eru hjartanlega velkomnir. Veitingar á vægu verði.
verð frá 4.490,-
7.590,-
F4
BYGGÐAMÁL Valgerður Sverrisdótt-
ir, ráðherra byggðamála, hefur
óskað eftir því við stjórn Byggða-
stofnunar að hún hefji útlán á
ný, en stofnunin hætti útlánum í
október þegar eigið fé hennar fór
niður fyrir leyfileg mörk.
Starfshópur, sem fjallað hefur
um framtíð Byggðastofnunar, skil-
aði tillögum sínum í fyrrakvöld.
Þar er lögð áhersla á að stofnun-
in haldi áfram lánastarfsemi um
leið og unnið verði að stefnumót-
un og samþættingu stofnana sem
fást við atvinnuþróun og nýsköp-
un eins og Nýsköpunarsjóður og
Iðntæknistofnun.
Gert er ráð fyrir að þróaðar
verði nýjar leiðir til fjármögnun-
ar í samstarfi við banka og önnur
fjármálafyrirtæki. Í því sambandi
er fremur gert ráð fyrir ábyrgðum
af hálfu Byggðastofnunar fremur
en beinum lánum.
Ekki er gert ráð fyrir fækkun
starfa í höfuðstöðvum Byggða-
stofnunar á Sauðárkróki og ráð-
gert er að atvinnuþróunarstarf-
semi á Ísafirði, Egilsstöðum og
Akureyri verði efld.
Valgerður Sverrisdóttir segir
að hundruð milljónir króna þurfi
til þess að koma eigin fé Byggða-
stofnunar upp fyrir tilskilin
mörk.
Anna Kristín Gunnarsdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar,
segir afar sérkennilegt að nú sé
verið að ljúka umræðum um fjár-
lög og fjáraukalög og engin tillaga
sé frá stjórnvöldum um framlög
til Byggðastofnunar. „Þó er það
fyrirséð að slík framlög verða að
koma. Þessi stofnun þjónar svæð-
um sem hafa orðið fyrir mestum
áföllum til dæmis vegna kvóta-
kerfisins.“
Anna Kristín telur greinilegt
að flytja eigi vandann fram yfir
áramót til að skekkja ekki tölurn-
ar í fjárlögum. „Þannig að unnt
verði að sýna fallegri glansmynd
en ella. Það gefur auga leið að það
þarf aukið fjármagn til stofnunar-
innar.“
Ríkisstjórnin samþykkti áður-
greind áform á fundi sínum í gær.
Jafnframt hefur starfsmönnum
Byggðastofnunar verið gerð grein
fyrir stöðu mála.
„Ég lít á þetta sem tækifæri
ekki síst fyrir landsbyggðina því
stoðkerfi atvinnulífsins er ekki
nægilega sterkt eins og það er í
dag og með þessu getum við styrkt
það verulega,“ segir Valgerður.
johannh@frettabladid.is
Byggðastofnun láni
á ný án fjárframlags
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra gefur fyrirmæli um að Byggðastofnun hefji útlán
á ný. Ekki er gert ráð fyrir framlögum ríkisins til stofnunarinnar á þessu ári þrátt
fyrir að eigið fé sé undir löglegum mörkum. Hlutverki hennar verður breytt.
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR IÐNAÐAR- OG
VIÐSKIPTARÁÐHERRA Tækifæri til að styrkja
stoðkerfi atvinnulífs á landsbyggðinni.
ÚTGÁFA Læknafélag Íslands hefur
skipað nýja ritstjórn Læknablaðs-
ins í stað bráðabirgðaritstjórnar-
innar sem stýrt hefur blaðinu und-
anfarnar vikur. Nýja ritstjórnin
kemur fyrst saman í næstu viku.
Samhliða þessum breytingum
hefur Vilhjálmur Rafnsson rit-
stjóri verið rekinn. Ábyrgðarmað-
ur og aðalritstjóri verður Jóhannes
Björnsson prófessor. Aðrir ritstjór-
ar verða Bryndís Benediktsdóttir
heilsugæslulæknir, Engilbert Sig-
urðsson geðlæknir, Karl Andersen
hjartalæknir og Þóra Steingríms-
dóttir kvensjúkdómalæknir.
Bæði Jóhannes og Karl voru í
gömlu ritstjórninni. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins hafa
þeir verið í samstarfi við Kára
Stefánsson, til dæmis hafa þeir
þrír ritað saman fræðigreinar í
erlend tímarit.
Sigurbjörn Sveinsson, formað-
ur Læknafélags Íslands, er ósam-
mála því að Vilhjálmur hafi verið
rekinn og segir að ágreiningur
innan ritstjórnar Læknablaðsins
vegna greinar Jóhanns Tómas-
sonar læknis hafi reynst djúps-
tæður og málið virst óleysanlegt.
Allir ritnefndarmenn að ábyrgð-
armanni undanskyldum hafi beð-
ist lausnar. Bráðabirgðaritstjórn
hafi verið skipuð.
„Það var ákveðið að skipa rit-
stjórnina upp á nýtt. Niðurstaðan
var sú að það yrði mest sátt innan
læknasamfélagsins um þá leið
sem valin var ef gamli ritstjórinn
yrði ekki með,“ segir hann.
Vilhjálmur hefur óskað eftir
fundargerð Læknafélagsins þar
sem ákvörðunin um uppsögnina
var tekin auk rökstuðnings fyrir
uppsögninni. Hann hefur feng-
ið þau svör að engin fundargerð
hafi verið haldin og rökstuðning-
ur liggi ekki fyrir. Hann hefur
ekki ákveðið hvort hann aðhefst
eitthvað frekar í málinu. - ghs
Vilhjálmur Rafnsson, ritstjóri Læknablaðsins, rekinn:
Ný ritstjórn með
hluta þeirrar gömlu
LÆKNABLAÐIÐ FÆR
NÝJA RITSTJÓRN
Jóhann Tómasson
læknir skrifaði grein
um afleysingaráðn-
ingu Kára Stefánsson-
ar, forstjóra Íslenskrar
erfðagreiningar,
á Landspítalann í
sumar. Nú hefur Vil-
hjálmur Rafnsson verið látinn fjúka og ný
ritstjórn skipuð með gömlum ritstjórnar-
meðlimum.
KÁRI STEFÁNSSON
Var ósáttur við skrif
Jóhanns um afleysinguna á
Landspítalanum.