Fréttablaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 10
30. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
GROSNÍ, AP Flokkur sem efla vill
tengslin við yfirvöld í Moskvu
vann yfirburðasigur í þingkosn-
ingunum í Tsjetsjeníu á sunnu-
daginn. Mannréttindasamtök bera
brigður á að kosningarnar hafi
verið frjálsar og óháðar.
Þegar tveir þriðju hlutar
atkvæða höfðu verið taldir virtist
allt stefna í að Eining Rússlands,
flokkur bandamanna Vladimirs
Pútín Rússlandsforseta, hefði feng-
ið 60 prósent þingsæta. Kommún-
istaflokkurinn fékk tólf prósent og
frjálslyndir ellefu prósent.
Á ríkisstjórnarfundi í gær
sagði Pútín ljóst að þingkosning-
arnar, sem eru þær fyrstu síðan
átök blossuðu upp á ný árið 1999,
hefðu fest lýðræðið enn betur í
sessi og hrósaði kjósendum fyrir
einurðina.
Andreas Gross, talsmaður
Evrópuráðsins í Tsjetsjeníu sagði
hins vegar að „andrúmsloft ótta“
gegnsýrði allt þjóðlífið í ríkinu og
því væri ómögulegt að halda þar
lýðræðislegar kosningar.
Tatiana Lokshina, meðlimur í
rússneskum mannréttindasamtök-
um kvaðst hafa heimsótt sex kjör-
staði þar sem margir hefðu sagt
sér að þeir hefðu eingöngu kosið
vegna skipunar frá yfirvöldum.
Því væri við því að búast að tök
þeirra sem vilja styrkja tengslin
við sambandsstjórnina í Rússlandi
myndu herðast enn frekar. - shg
Skjólstæðingar stjórnvalda í Moskvu sigruðu í tsjetsjensku þingkosningunum:
Efast um lögmæti kjörfundar
INNILEGAR HAMINGJUÓSKIR Vladimir
Pútín, forseti Rússlands, óskaði Alu Alk-
hanov, starfsbróður sínum í Tsjetsjeníu til
hamingju með kosningarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UPPÁHALDSBJÓR MARGRA KYNSLÓÐA
Tékkneskur
gullmoli
Tékkneska byggið
er einstakt í Evrópu
og oft nefnt tékkneska
gullið. Það leggur
grunninn að hinu
kjarnmikla bragði
og gullna lit sem hefur
gert Budweiser Budvar
að heimsfrægri
gæðavöru.
Kornið sem fyllir mælinn!
LÉ
TT
Ö
L
UMHVERFISMÁL Tony Blair, forsæt-
isráðherra Bretlands, tilkynnti
í gær að ríkisstjórn hans væri
alvarlega að hugleiða að stórauka
raforkuframleiðslu sína með vin-
nslu kjarnorkueldsneytis. Stjórn-
völd á Íslandi fylgjast grannt með
þróun mála en telja of snemmt að
hafa af þessu verulegar áhyggjur.
Blair hugðist kynna nýja orku-
málastefnu ríkisstjórnarinnar á
fundi samtaka iðnaðarins í Bret-
landi í gær en nokkur töf varð
á því þar sem félagar í samtök-
um grænfriðunga klifruðu upp
í rjáfur ráðstefnusalarins og
breiddu úr mótmælaborða sem
á stóð: „Kjarnorka: Rangt svar.“
Ákveðið var að færa ráðstefnuna
inn í lítinn hliðarsal en þar kröfð-
ust grænfriðungarnir þess að fá
að ávarpa fundinn áður en forsæt-
isráðherra tæki til máls. Því var
hins vegar hafnað og þeir færðir
á brott í járnum.
„Orkuverð hefur hækkað,
framboð á eldsneyti er ekki
tryggt. Breytingar á loftslagi
jarðar kallar á brýna þörf,“ sagði
Blair í ræðu sinni á þinginu þar
sem hann ræddi um breytingar
á orkumálastefnu stjórnarinn-
ar. Hann tjáði fundarmönnum að
næsta sumar yrði gefin út sérstök
stefnuskrá í þeim málaflokki þar
sem að öllum líkindum verður
boðuð uppbygging nýrrar kyn-
slóðar kjarnorkuvera.
Fimmtungur raforku Breta er
framleiddur í tólf kjarnorkuver-
um landsins. Þau eru hins vegar
komin til ára sinna og verði þau
ekki endurnýjuð munu þau ein-
ungis framleiða fjögur prósent
orkunnar árið 2010. Forkólfar
atvinnulífsins telja að öruggt og
nægt framboð raforku sé brýn-
asta hagsmunamál þjóðarinnar.
Hækkandi raforkuverð og aukn-
ar kröfur um takmörkun á losun
gróðurhúsalofttegunda geri það
að verkum að nauðsynlegt sé að
leita nýrra orkugjafa.
Um hver f i sver nd a rs i n n a r
benda aftur á móti á að hættuleg-
ur kjarnorkuúrgangur falli alltaf
til við slíka vinnslu sem taki tug-
þúsundir ára að brotna niður. Auk
þess er aldrei hægt að útiloka
slys í kjarnorkuverum, ekki síst
á tímum vaxandi hryðjuverka-
hættu. Þótt möguleikinn á því sé
lítill þá yrðu afleiðingarnar af
slíku geigvænlegar.
Íslensk stjórnvöld hafa lengi
haft áhyggjur af meðhöndlun
kjarnorku á Bretlandseyjum, sér-
staklega kjarnorkuendurvinnslu á
borð við þá sem stunduð er í Sell-
afield í Englandi. Magnús Jóhann-
esson, ráðuneytisstjóri í umhverf-
isráðuneytinu, segir þótt áfram
verði grannt fylgst með framvindu
mála sé ekki enn þá ástæða til að
bregðast sérstaklega við þessum
áformum Breta sem kynnt voru í
gær. „Ef þau liggja hins vegar í að
auka endurvinnsluna í Sellafield
þá myndum við að sjálfsögðu
af fremsta megni leggjast gegn
þeim.“ sveinng@frettabladid.is
Boða byggingu
kjarnorkuvera
Breska ríkisstjórnin hyggst fjölga kjarnorkuverum
í landinu til að mæta aukinni orkuþörf. Íslensk
stjórnvöld fylgjast grannt með framvindu mála.
ÁFORMUNUM MÓTMÆLT Tveir grænfriðungar gerðu sér lítið fyrir í gær og klifruðu upp í
rjáfur ráðstefnumiðstöðvarinnar í Islington í gær þar sem Blair hugðist tala. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MAGNÚS JÓHANNESSON Íslensk stjórn-
völd óttast helst að frekari uppbygging
kjarnorkuvera í Bretlandi leiði af sér aukna
endurvinnslu í Sellafield.
SAMGÖNGUR Göng um Reynisfjall,
ný Ölfusárbrú og miklar endurbæt-
ur Suðurlandsvegar eru meðal hel-
stu ályktana aðalfundar Samtaka
sunnlenskra sveitarfélaga sem fram
fór um síð-
ustu helgi.
S a m -
g ö n g u r
voru mönn-
um ofar-
lega í huga
og bar þar
hæst endurbætur á Suðurlandsvegi.
Vegna sívaxandi umferðar sé orðið
nauðsynlegt að breikka veginn á
köflum. Þá er talið eðlilegt að ný
Ölfusárbrú sé framar í forgangs-
röðinni en verið hefur auk þess sem
göng undir Reynisfjalli á þjóðvegi
eitt yrðu veruleg samgöngubót. Þar
er einn af fáum hættulegum farar-
tálmum á öllum þjóðveginum. - aöe
Sveitarfélög á Suðurlandi:
Vilja úrbætur
í samgöngum
GAMLA ÖLFURSÁRBRÚIN
Liggur í miðbæ Selfoss.