Fréttablaðið - 30.11.2005, Síða 24
[ ]
Staflarar
einnig úrval af pallettutjökkum
• Lágmúli 9 / 108 Reykjavík
• Sími: 533 2845 / GSM: 896 0515
• www.sturlaugur.is
Nýtt
Nissan Almera
2000 ->
Eigum til á lager
kristal afturljós og
stefnuljós á margar
bíltegundir
´
Kristal afturljós
AG Mótorsport - Klettháls 9
110 Reykjavík - s. 587 5547
Verslun á netinu : www.agmotorsport.is
Barnageisladiskar geta komið sér vel í bílum þegar aka þarf
langar vegalengdir með börn. Lítil börn verða oft óþolinmóð ef þau
þurfa að sitja lengi í bíl og þá er ágætt að hafa ofan af fyrir þeim
með einhverju sem þeim þykir skemmtilegt.
Nýlega birti Umferðarstofa
niðurstöður rannsóknar sem
sýndi að umferðaróhöppum
ungra ökumanna, sérstaklega
karlmanna, hefur fækkað
verulega. Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri F.Í.B., segir
að enn megi gera mun betur.
„Það er gleðilegt að þessi árangur
hafi náðst. Aftur á móti er þessi
hópur í einna mestri áhættu allra
aldurshópa í umferðinni. Enn sem
fyrr eru 20% líkur á að ökumaður
á fyrsta ári lendi í óhappi og það
er alltof hátt hlutfall. Þetta er
áfram barátta, við höfum ekki
unnið neinn stórsigur með þessum
árangri heldur verður að halda
áfram þessu markvissa starfi. Það
er margt óunnið en þessi þróun
er vissulega gleðiefni,“ segir
Runólfur Ólafsson framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra bifreiða-
eigenda. Hann telur ekki óeðli-
legt að Íslendingar fari að dæmi
nágrannaþjóðanna og hækki öku-
leyfisaldur í átján ár.
Eins og kom fram í blaðinu á
laugardaginn voru niðurstöð-
ur athugunar Umferðarstofu
birtar í síðustu viku þess efnis
að mikil fækkun hefur orðið á
umferðarslysum á meðal ungra
ökumanna. Þar kom sérstaklega
fram að mikil fækkun hefur orðið
á umferðarslysum meðal ungra
karlmanna á meðan umferðarslys
meðal ungra kvenmanna hefur
nær staðið í stað. Kjartan Þórð-
arson, sem tók saman skýrsluna
fyrir Umferðarstofu, segir þar að
helst megi þakka þennan árang-
ur nýju refsipunktakerfi og því
að æfingaakstur með öðrum hafi
gefið ungum ökumönnum mikil-
væga reynslu.
Sé miðað við önnur Evrópu-
ríki standa ungir íslenskir öku-
menn ekki nógu vel að vígi en
Runólfur telur helstu skýringu
þess vera að mun algengara sé
að Íslendingar fái ökuréttindi um
leið og þeir nái aldri. „Hlutfalls-
lega fleiri unglingar eru að skila
sér út í umferðina hér en í þeim
löndum sem við miðum okkur
við, það getur verið að það hafi að
einhverju leyti haft áhrif á þá töl-
fræði,“ segir Runólfur að lokum.
steinthor@frettabladid.is
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri F.Í.B., segir að enn sé mikið starf framundan við að
fækka umferðaróhöppum yngri ökumanna.
20% ungra ökumanna
lenda í óhappi fyrsta árið
Hlutfallslega fleiri fá ökuréttindi þegar þeir hafa aldur til hér á landi en í öðrum Evrópuríkjum.
89% karla og 95% kvenna
segjast taka eftir því hvernig
bíl tilvonandi elskhugar aka.
Þessar niðurstöður fékk Ford út
úr könnun sem framkvæmd var
á fjögur hundruð manns í ýmsum
borgum í Bandaríkjunum. Það
var ekki einungis bílategundin
sem skipti máli heldur hversu vel
bílnum var haldið við og hversu
snyrtilegur hann var. Svo virðist
sem kvenþjóðin leggi meira upp
úr snyrtimennsku því 69% þeir-
ra létu ástand ökutækjanna hafa
áhrif á hrifningu sína á meðan
47% karlmanna játuðu að subb-
uskapur hefði neikvæð áhrif á
ímynd kvenna.
„Oftar en ekki færðu aðeins eitt
tækifæri til að koma vel fyrir og
yfirleitt er bíllinn þinn það fyrsta
sem fólk sér. Rétt eins og klæða-
burður þinn segir bíllinn þinn
sitthvað um þig og lífsstíl þinn,“
segir Ellen Fein, höfundur stefnu-
mótarbókarinnar The Rules.
Þegar þátttakendur voru beðn-
ir að rifja upp vandræðalegasta
augnablikið sem upp hafði komið
í bíl á stefnumóti var algengast að
vera kallaður slæmur ökumaður.
Mun fleiri konur en karlar höfðu
fengið þá athugasemd. Í öðru sæti
var að að kasta upp í bílnum og
í þriðja sæti að lenda í laganna
vörðum fyrir of hraðan akstur.
Bíllinn skiptir máli
Það er betra að hafa bílinn hreinan ef
heilla á hitt kynið.