Fréttablaðið - 30.11.2005, Qupperneq 37
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 9
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
!!" # "
$
%
&
'
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+
Microsoft segist hafa fengið tals-
vert af tilkynningum um bilanir
vegna nýju Xbox 360 leikjatölv-
unnar sem kom á markað í
Bandaríkjunum í síðustu viku.
Sumir eigendur hinnar nýju
tölvu sögðu að tölvur þeirra
hefðu hrunið þegar þeir voru að
spila leiki í þeim.
Microsoft vonast til að selja
2,5 til 3 milljónir tölva á fyrstu 90
dögunum en æstir tölvuleikja-
spilarar röðuðu sér upp fyrir
utan verslanir til að fá fyrstu ein-
tökin af tölvunni eftirsóttu.
Talsmenn Microsoft sögðu að
um væri að ræða smáhnökra sem
kippt yrði í liðinn og að fyrirtæk-
ið myndi greiða fyrir sendingar-
kostnað og annað fjártjón sem
neytendur yrðu fyrir ef þeir
keyptu gallaða vöru. - hb
Vandræði með
Xbox 360
MEÐ XBOX 360 Ánægðir tölvuleikjaeig-
endur.
Þeir sem eru orðnir þreyttir á tónlist-
inni á ölstofunum geta nú sjálfir tekið
völdin og komið með sína eigin tónlist
á barinn. Þetta verður sífellt vinsælla
á skemmtistöðum í Bandaríkjunum.
„Allir vilja vera plötusnúðar og núna fá
menn betra tækifæri til þess en nokkurn
tímann áður,“ segir bargestur í Chicago.
Gömlu glymskrattarnir, sem hingað til
hafa verið eins konar tákngervingar tón-
listarinnar á börum vestanhafs, þurfa því
hugsanlega að víkja fyrir nýjustu tækni
Apple. Framleiðendur hljóðkerfa leggja nú áherslu á að aðlaga nýj-
ustu gerð af tækjum fyrir skemmtistaði og bari þannig að auðvelt
verði að tengja iPod spilara við. - hb
IPOD Í TÖSKU
Hægt er að
taka iPod-inn
sinn með sér á
bari og láta
spilar eftirlæt-
islögin sín í
stað þess að
hlusta á val
barþjóns-
ins.
Ekkert klink í glymskrattann
iPod tekur völdin á kvöldin
Þann 30. nóvember árið 1900 lést
Oscar Wilde eftir viðburðaríka
ævi. Hann var leikritaskáld og
skrifaði auk þess skáldsögur,
ljóð og smásögur. Hann var einn
umtalaðasti karakter síns tíma
og þekktur fyrir sitt hárbeitta
háð.
Wilde var framúrskarandi
nemandi og sýndi ungur mikla
skáldhæfileika. Hann hlaut
námsstyrk til að nema í Magd-
alen-háskóla í Oxford. Þar varð
Wilde þekktur fyrir að vera fag-
urkeri. Hann lét hár sitt vaxa og
skreytti herbergi sitt með
páfuglsfjöðrum, blómum og hin-
um ýmsu listmunum. Hann varð
eitt helsta tákn þeirrar hreyfing-
ar sem elskaði fegurðina og var
dáður og hataður í senn.
Þegar Wilde útskrifaðist úr
háskóla sneri hann aftur á
heimaslóðir í Dublin og varð ást-
fanginn af ungri konu. Þegar hún
trúlofaðist öðrum manni yfirgaf
hann Írland og kom einungis
tvisvar þangað aftur það sem
eftir var ævinnar. Hann bjó í
London, París og Bandaríkjunum
og kenndi meðal annars fagur-
fræði. Í London kynntist hann
dóttur auðkýfings, Constance
Lloyd, og þau giftu sig árið 1884.
Heimamundurinn sem fylgdi
henni nægði til að þau gætu lifað
í vellystingum.
Kynhneigð Wilde var mikið
umtalsefni og hann var þekktur
fyrir sambönd sín við unga
menn. Árið 1895 var hann hand-
tekinn í London og ákærður fyr-
ir að stunda ósiðasamlegt athæfi
með öðrum karlmönnum. Í rétt-
arhöldunum hélt Wilde fræga
varnarræðu um ást milli tveggja
karlmanna. Hún dugði ekki til og
hann var dæmdur í tveggja ára
hegningarvinnu. Fangelsisvistin
fór illa með heilsu Wildes, hann
lifði í felum fyrir samfélaginu
og listinni næstu þrjú árin þang-
að til hann lést úr heilahimnu-
bólgu, einn á hótelherbergi í Par-
ís. - hhs
S Ö G U H O R N I Ð
Dánardagur
Oscar Wilde
FAGURKERINN OSCAR WILDE
Syngjandi borgarísjakar
Borgarísjakar syngja þegar þeir
eru undir þrýstingi. Þetta segja
þýskir vísindamenn frá German
Alfred Wegener-stofnuninni sem
sér um heimskauts- og sjáv-
arrannsóknir. Vísindamennirnir
tóku eftir óvenju skýrum hljóð-
merkjum þegar þeir voru að taka
upp jarðbylgjumerki til að mæla
jarðskjálfta og jarðskorpuhreyf-
ingar á Suðurskautslandinu. Þeg-
ar þeir ráku hvaðan hljóðið kom
fundu þeir borgarísjaka sem
hafði rekist á neðansjávarskaga
og var smám saman að nuddast
fram hjá honum. Við það mynd-
aðist mikill þrýstingur og ísjak-
inn fór að syngja. „Lagið fer upp
og niður, alveg eins og í alvöru
melódíu,“ sögðu vísindamennirn-
ir sem birtu niðurstöður sínar í
tímaritinu Science á föstudag. -
hhs
BORGARÍSJAKAR SYNGJA Þegar borg-
arísjakar rekast á hafsbotn myndast mikill
þrýstingur og þeir fara að syngja.
08-09 Markadur-lesin 29.11.2005 15:02 Page 3