Fréttablaðið - 30.11.2005, Side 40
Margt bendir til þess að innan skamms falli
Jarðboranir í hóp flóttamannanna sem hafa
yfirgefið Kauphöll Íslands á undanförnum
árum. Fjárfestingafélagið Atorka Group hef-
ur eignast rúmlega 56 prósent hlutafjár í
Jarðborunum og hyggst kaupa allt hlutafé í
eigu annarra aðila. Það yrði nokkur sjónar-
sviptir að brotthvarfi Jarðborana, enda hafa
aðeins FL Group, Hampiðjan, HB Grandi og
Marel verið lengur skráð á íslenskum hluta-
bréfamarkaði.
FYRSTA EINKAVÆÐINGIN TIL ALMENNINGS
Hlutafélagið Jarðboranir var stofnað árið
1986. Eigendur fyrirtækisins voru ríkissjóð-
ur og Reykjavíkurborg (Hitaveita Reykjavík-
ur) sem hvort um sig eignaðist helmingshlut.
Með þessum hætti vildu eigendur treysta á
það að hér væri fyrirtæki sem gæti annast
borverkefni. Meginstarfsemi félagsins hefur
falist í því að hagnýta sér auðlindir jarðar
með borunum eftir heitu og köldu vatni, gufu
og jarðsjó og rekstri tengdum því og ýmiss
konar rannsóknum og þróunarstarfi sem snýr
að vinnslu og notkun jarðvarma. Starfsemin
hefur á seinni stigum undið upp á sig með
ýmsum hætti, til dæmis með kaupum á félög-
um sem starfa við landvinnslu og uppbygg-
ingu húsnæðis.
Jarðboranir voru skráðar á Verðbréfaþing
Íslands árið 1993 en ári áður höfðu ríki og
borg selt stóran hluta af hlutafé sínu til al-
mennings fyrir 138 milljónir króna. Jarðbor-
anir marka stóran sess í sögu einkavæðingar
á Íslandi þar sem fyrirtækið var fyrsta félag-
ið í opinberri eigu sem var einkavætt og sett
á hlutabréfamarkað og var jafnframt í hópi
fyrstu fyrirtækja sem voru einkavædd hér-
lendis. Hluthöfum hafði fjölgað úr tveimur í
ársbyrjun 1992 í 448 í lok sama árs.
Á sjöunda rekstrarárinu árið 1992 varð um
21 milljóna króna hagnaður á starfsemi fé-
lagsins en Jarðboranir hafa ávallt skilað
hagnaði nema árið 1988. Fjárhagsstaða þess
var mjög sterk í árslok 1992 en eigið fé nam
um 550 milljónum króna og eiginfjárhlutfall-
ið var um 86 prósent.
Ríkið fór að öllu leyti út úr fyrirtækinu
árið 1996 í hlutafjárútboði sem gekk framar
vonum. Markmiðið með útboðinu var að ná
dreifðri eignaraðild að félaginu og átti það að
standa yfir í einn mánuð. Upphaflega ætluðu
ríkið og Hitaveitan að selja samanlagt 18,5
prósent af sínu hlutafé. Allt seldist hins veg-
ar á einum degi, það er 43 milljónir hluta á
genginu 2,25. Ríkið ákvað í framhaldinu að
selja fimmtungshlut sem eftir stóð. Alls seld-
ust því 38,5 prósent hlutafjár fyrir rúmar tvö
hundruð milljónir króna og keyptu 900 aðilar
hlutabréf í Jarðborunum.
FLJÓTT Í ÚTRÁS
Jarðboranir hafa í gegnum tíðina unnið fjöl-
mörg verkefni fyrir stóru orkufyrirtækin hér
heima eins og Landsvirkjun, Hitaveitu Suður-
nesja, Orkuveitu Reykjavíkur og RARIK.
Markaðsstaða fyrirtækisins varð strax sterk
á heimavelli en vaxtartækifæri að sama skapi
takmörkuð miðað við orkuframkvæmdir.
Því var snemma tekin sú ákvörðun að
horfa út á við. Árið 1992 fengu Jarðboranir
sitt fyrsta verkefni á erlendri grundu þegar
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN12
Ú T T E K T
Jarðboranir hafa vaxið gríðarlega á síðustu árum og er fyrirtækið í fremstu röð borfyrirtækja í heim-
inum. Verkefnastaðan er afar góð eftir að félagið tryggði sér stærsta borverkefni Íslandssögunnar á
Hellisheiði. Yfirtaka Atorku Group á Jarðborunum gæti verið í uppnámi eftir að Greiningardeild KB
banka ráðlagði hluthöfum að hafna tilboðinu. Eggert Þór Aðalsteinsson fer yfir sögu Jarðborana.
Arðsamt borfyrirtæki kveður Ka
R E K S T U R J A R Ð B O R A N A – F I M M Á R A Y F I R L I T
( Í M I L L J Ó N U M K R Ó N A )
2005* 2004 2003 2002 2001
Rekstrartekjur 3.561 3.871 1.808 1.265 1.105
Rekstrargjöld 2.601 3.140 1.495 1.089 1.036
Rekstrarhagnaður
fyrir afskriftir (EBITDA) 871 933 439 273 162
Hagnaður ársins 510 432 232 143 17
Eignir 8.718 7.345 5.731 1.798 1.526
Eigið fé 2.847 2.659 2.342 1.051 943
Gengi hlutabréfa 20,6 20,2 9,95 7,15 7,2
Markaðsvirði 8.600 8.080 3.980 1.856 1.869
Eiginfjárhlutfall 32,70% 36,20% 42,40% 58,40% 61,70%
Arðsemi eigin fjár 29,80% 19,50% 16,80% 16,00% 1,90%
* Miðað við fyrstu níu mánuði ársins
BORINN GEYSIR Ofurborinn
sem kemst dýpst á 4000
metra dýpi. Bókfært virði hans
nam um sex hundruð milljón-
um króna í lok síðasta árs.
12_13_Markadur-lesið 29.11.2005 14:25 Page 2