Fréttablaðið - 30.11.2005, Síða 48

Fréttablaðið - 30.11.2005, Síða 48
Norski olíusjóðurinn stækkaði um rúmar 900 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi vegna mikill- ar hækkunar á olíuverði og hluta- bréfaverði á flestöllum mörkuð- um. Stendur sjóðurinn nú í tólf þúsund milljörðum króna. Jafn- gildir það því að hver Norðmaður eigi 2,6 milljónir króna. Tekjur af olíuframleiðslu renna í sjóðinn sem fjárfestir svo í erlendum hlutabréfum og skuldabréfum. Frá áramótum hefur olíusjóðurinn vaxið um fjórðung en ávöxtun af eigna- safninu hefur verið um 8,2 pró- sent. Bandarísk hlutabréf gáfu 3,8 prósenta ávöxtun á þriðja árs- fjórðungi, hlutabréf í bresku FTSE-vísitölunni hækkuðu um 8,2 prósent og japönsk hlutabréf skiluðu langmestu eða um 21 pró- sent. „Norðmenn munu ætla sér að nota sjóðinn til að fjármagna líf- eyrisgreiðslur framtíðarinnar en þar í landi er gegnumstreymis- kerfi og lítil sjóðasöfnun í lífeyr- iskerfinu fyrir utan olíusjóðinn. Það má því segja að Norðmenn séu með lífeyrissjóðskerfi sem er mjög ólíkt því sem gerist hér á landi,“ segir Greining Íslands- banka. Til samanburðar námu hrein- ar eignir íslensku lífeyrissjóð- anna 1.123 milljörðum króna í lok september þannig að eign hvers Íslendings í lífeyris- sjóðum er um 3,8 milljónir króna. - eþa MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN20 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Glitnir 20 ára Glitnir hélt upp á 20 ára af- mæli sitt nú í nóvember en fyrirtækið má muna tímana tvenna. Glitnir starfar á sviði fjármögnunar á Íslandi og var brautryðjandi á því sviði. Nú til dags á fólk jafnt sem fyrirtæki mun auðveldara með að fá lánað fjármagn hvort heldur sem er til starf- semi eða bílakaupa. Glitnir styður við bakið á fyrirtækj- um og finnur heildarlausnir sem sniðnar eru að þörfum hvers og eins fyrirtækis. Fyr- irtækið opnaði nýjan vef í sumar og hefur umferð um hann frá þeim tíma aukist um 50 prósent og hann er einnig tilnefndur til íslensku vef- verðlaunanna í þremur verð- launaflokkum. ALDA SIGURÐARDÓTTIR, VIÐSKIPTASTJÓRI HJÁ SJÁ VIÐMÓTSPRÓFUNUM, STÝRÐI FUNDINUM AF RÖGGSEMI Fundurinn var vel sóttur og mættu til hans um 100 manns. Þar töluðu einnig Magnús Bergsson, markaðsstjóri CCP sem framleiðir tölvuleikinn Eve online, Halldór Harðarson, forstöðumaður markaðssviðs Icelandair og Soffía Sigurgeirsdóttir, markaðsstjóri Netbankans. Fjölluðu þau um hvernig þau nálgast markaðinn og hvaða aðferðum þau beita til þess en öll hafa náð góðum árangri á netinu. FYLGST MEÐ FRUM- MÆLENDUM Á HÁ- DEGISVERÐARFUNDI ÍMARKS Á hádegis- verðarfundi Ímarks sem haldinn var fimmtudaginn 24. nóv- ember var fjallað um ímynd, vefþróun, við- mót, útlit og markaðs- setningu á vefnum. Þar kom fram að vefurinn er sífellt að verða mikil- vægari sem andlit og ímynd fyrirtækja. Það er ekki nóg að setja upp heimasíðu. Hún verður að virka, vera bæði aðlaðandi og notendavæn. Um þetta atriði voru allir sam- mála auk þess að það þarf að vera auðvelt að finna heimasíðuna og hún þarf að koma fram á leitarsíðum. Niður með Námsgagnastofnun Viðskiptaráð Íslands hvatti til þess í skoðun sinni sem gefin var út í síðustu viku að starfsemi Námsgagnastofnunar verði endurskoðuð. Telur ráðið að vel komi til greina að leggja stofnunina alfarið niður. Að öðrum kosti verði hlutverki hennar breytt í þá veru að hún ann- ist frekar úttekt og ráðgjöf vegna námsgagnavals skólanna. Ráðið telur óeðlilegt að hið opinbera hafi afskipti af út- gáfu námsbóka þar sem öflug bókaforlög hafa hasl- að sér völl í námsgagnagerð. Engin rök bendi til þess að námsgagnagerð á grunnskólastigi lúti öðrum lögmálum en þeim sem framhaldsskólastigið lýtur, það er markaðslögmálinu. Somerfield loks afskráð Yfir 95 prósent hluthafa Somer- field hafa tekið yfirtökutilboði frá fasteignmógúlnum Robert Tchenguiz, Apax Partners og Barclays fjárfestingarbankan- um. Lýkur þar með baráttunni um fyrirtækið sem hófst í febrú- ar á þessu ári þegar Baugur Group gerði tilboð í fyrirtækið. Yfirtökutilboð var gert á 197 pensum á hlut. Gert er ráð fyrir því að Somerfield, sem er fimmta stærsta verslanakeðja Bretlands, verði afskráð fjórum dögum fyr- ir jól úr Kauphöllinni í Lundún- um. - hb Kaupa hús á Hvanneyri Borgarland ehf., sem er í eigu Sparisjóðs Mýrarsýslu og Kaup- félags Borgfirðinga, hefur fest kaup á öllu hlutafé í Hvönnum ehf. sem á húseignina á Hvann- eyrarbraut 3 á Hvanneyri. Frá þessu er greint í Bændablaðinu. Borgarland er fasteignafélag sem meðal annars á verslunar- miðstöðina Hyrnutorg auk lóða í Borgarnesi sem félagið ætlar að byggja á en það er nú með í und- irbúningi byggingu á íbúðar- blokk í miðbæ Borgarness. - hb Norski olíusjóðurinn bólgnar áfram Nýtur góðs af hækkun japanskra hlutabréfa og olíuverðs FRÁ TOKÝÓ Norski olíu- sjóðurinn fjárfestir grimmt í Japan og hefur notið góðs af miklum hækkun- um þar í landi. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI 20_21_Markadur- lesið 29.11.2005 15:26 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.