Fréttablaðið - 01.12.2005, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
Sími: 550 5000
FIMMTUDAGUR
1. desember 2005 — 325. tölublað — 5. árgangur
Jólaskemmtun TM
Jólahátíð TM
á Ingólfstorgi
í dag kl. 10.00
JÓHANNA AXELSDÓTTIR
Hannar og selur
prjónles
tíska heimili heilsa jól
Í MIÐJU BLAÐSINS
MIÐBORGIN
KISAN Á LAUGAVEGI
Heimsborgarar
í Ævintýralandi
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
�����������������
����������������������
�����������������������
����������������������
�����������������
�����������
��������������������������
��������������������������
�����������������������������
�
���������������������
������������
����������������
���������������� ����������
������������������������������
�������������������������
�������� ����
������������������������ �
�����������������������
������������������
�����������������������������
��������
������������
��� �������������������
������
�������������������������������
��
��
��
�
��
�
��
��
��
Galdrar og töfrabrögð
Alexander og félagar finna galdrabók í
nýju jóladagatali Stöðvar 2.
FÓLK 58
63%
39%
Innkaupastjórar
heimilanna kjósa
Fréttablaðið!
*Lestur á fimmtudegi samkvæmt
fjölmiðlakönnun Gallup í september 2005.
LESTUR MEÐAL KVENNA 20-40 ÁRA
NEYTENDUR Íslenskir farsímanot-
endur senda árlega 154 milljónir
smáskilaboða, svokölluð SMS,
sem þýðir að hver farsímanotandi
sendir rúmlega 500 smáskilaboð
árlega.
Hvert og eitt kostar tíu krón-
ur sé um textaskeyti að ræða og
því er ljóst að íslensku símafyr-
irtækin hagnast um einn og hálf-
an milljarð króna á ári eingöngu
vegna þessa. Og Vodafone hefur
reyndar tilkynnt hækkun á gjald-
skrá sinni frá og með deginum í
dag og verður gjaldið fyrir hvert
skeyti eftir það 10,70 krónur.
Engar haldbærar tölur eru til
um fjölda myndskilaboða sem
færst mjög í vöxt með tilkomu far-
síma með innbyggðum myndavél-
um. Öllu dýrara er að senda slík
skeyti eða frá tæpum 30 krónum
upp í 49 krónur hver mynd.
- aöe / sjá síðu 24
Farsímanotkun Íslendinga:
SMS fyrir 1,5
milljarða á ári
RIGNING EÐA SLYDDA í borginni
og til stranda sunnan og vestan til en
snjókoma til landsins. Stöku él á Norður-
og Austurlandi.
VEÐUR 4
Biblían og hjónabandið
Heilagleiki hjónabands og heimilis
ræðst hvorki af líkams-
byggingu hjónanna á
heimilinu eða kirkju-
legum athöfnum eins
og hjónavígslu,“ segir
Bjarni Karlsson.
UMRÆÐAN 30
LÖGREGLA Lögreglan á Eskifirði
lagði í fyrrakvöld hald á rúmlega
hálft tonn af hráu kjöti sem fjór-
tán skipverjar á Jóni Kjartanssyni
SU og Hólmaborginni SU reyndu
að smygla til landsins. Tollgæsl-
an á Eskifirði fann matvælin við
komu skipanna frá Færeyjum.
„Þetta er ein umfangsmesta til-
raun til smygls á matvælum síðari
ár,“ segir Aðalsteinn Guðmunds-
son hjá tollgæslunni. Hann segir
að matvælin verði brennd og að
skipverjarnir eigi von á sektum.
Haukur Björnsson hjá Eskju,
útgerð skipanna, segir ekki verða
eftirmál af hálfu útgerðarinnar.
„Þetta eru bara strákar að reyna
að bjarga sér um smávegis af kjöti
fyrir jólin,“ segir hann og kveðst
frekar líta á málið sem sjálfs-
bjargarviðleitni manna sem verið
hafi tekjulausir vegna aflaleysis
mánuðum saman. „Manni finnst
að tollurinn ætti frekar að snúa
sér að alvarlegri málum.“ - kk/óká
Sjómenn staðnir að smygli:
Tollgæslan tók
jólasteikurnar
VIÐSKIPTI Félag í eigu Björgólfs
Thors Björgólfssonar hefur
tryggt sér yfirráð yfir búlgarska
símafélaginu BTC sem er skráð í
kauphöllinni í Búlgaríu.
Félag í eigu Björgólfs gekk í gær
frá kaupum á félagi sem átti 65
prósent í BTC. Björgólfur átti
fyrir hlut í félaginu sem keypti
hlut búlgarska ríkisins í BTC.
Samkvæmt heimildum keypti
Björgólfur um tíu prósenta hlut
á markaði í gær svo hann ræður
nú yfir 75 prósentum í félaginu.
Viðskiptin leiða ekki til yfirtöku-
skyldu, en viðbótarkaupin kunna
að leiða til þess að smærri hlut-
höfum verði gerð tilboð í það sem
út af stendur.
Í tilkynningu sem send var
kauphöllinni í Búlgaríu í gær-
kvöld er kaupverðið ekki gefið
upp. Samkvæmt heimildum
nemur umfang viðskiptanna um
hundrað milljörðum króna.
Kaupin eru því í hópi stærstu
viðskipta Íslendinga erlendis.
Miðað við eignarhlutinn má
búast við að Björgólfur Thor
stefni að því að eignast félagið
að fullu. Hann er umsvifamesti
erlendi fjárfestirinn í Búlgaríu
en hann er stærsti eigandi Act-
avis sem rekur lyfjaverksmiðju í
landinu.
BTC er upprunalega rík-
issímafyrirtæki Búlgaríu og
hefur svipaða stöðu þar í landi
og Síminn hér. Björgólfur er auk
þess umsvifamikill í fjarskipta-
fjárfestingum í nágrannalandi
Búlgaríu, Grikklandi, auk þess
sem hann hefur fjárfest í fjar-
skiptafyrirtækjum í Finnlandi og
Póllandi. - hh
Hundrað milljarða fjárfesting Björgólfs Thors í Búlgaríu:
Tryggir sér búlgarska Símann
Páll verður aldrei rekinn
Deila þjálfarans Atla Eðvaldssonar og
fyrir-
liðans
Páls
Einars-
sonar
hjá Þrótti er
enn í hnút eftir
stjórnarfund hjá
félaginu í gærkvöld.
Stjórnin mun leitast
við að ná sáttum í
málinu.
ÍÞRÓTTIR 52
VINNUMARKAÐUR „Lögreglan hefur
gögn í höndunum sem sýna það
svart á hvítu að starfsmaður hjá
fyrirtæki Hjörleifs Jónssonar
vantar allt að 300 þúsund í laun
fyrir einn mánuð. Og ef lögreglan
getur ekki tekið á því, hvert á þá
Verkalýðsfélag Akraness að leita?“
spyr Vilhjálmur Birgisson formað-
ur verkalýðsfélagsins.
Jón Sigurður Ólason yfirlög-
regluþjónn sagði í gær að rannsókn
á litháískum starfsmönnum sem
störfuðu hjá Trésmiðju Hjörleifs
Jónssonar væri að mestu lokið. Eins
og áður hefur komið fram í Frétta-
blaðinu reyndust tveir starfsmenn
vera án tilskilinna leyfa. „Grunur
lék á að hugsanlega væru þeir fleiri
en ekkert kom fram við rannsókn
sem staðfesti þann grun,“ segir Jón
Sigurður. Hann segir að lögreglan
rannsaki ekki atriði sem varði kjör
mannanna en segir verkalýðsfélag-
ið hafa það með höndum. Við þetta
er Vilhjálmur mjög ósáttur og spyr
hvort ekki sé til það yfirvald sem
taki á því ef vinnuveitendur hlunn-
fari starfsmenn sína.
Vilhjálmur hefur einnig mikið
út á ummæli Hjörleifs Jónssonar
að setja sem hann lét falla í Frétta-
blaðinu síðastliðinn sunnudag. Þá
sagði hann afskipti yfirvalda og
verkalýðsfélagsins vera óviðun-
andi fyrir starfsmennina og að
ekkert ætti eftir að koma úr rann-
sókninni sem gerð er á stafsmann-
amálum fyrirtækisins. „Okkur hjá
verkalýðsfélaginu er vart hlátur
í huga yfir þessum ummælum,“
segir Vilhjálmur. „Stéttarfélagið
hefur gögn og upplýsingar í hönd-
um sem staðfesta að fyrirtækið er
ekki að greiða þau laun sem ráðn-
ingasamningar Litháanna kveða á
um. Ef Hjörleifur telur sig ekkert
hafa að fela en er samt að greiða
300 þúsund minna en starfsmaður
á að fá, þá er ég hættur að skilja.
Þeir atvinnurekendur sem ekki
fara eftir þeim leikreglum sem
gilda á íslenskum vinnumarkaði
eiga að hafa vit á því að skammast
sín,“ segir Vilhjálmur.
Hjörleifur Jónsson hafði ekki
fengið nein gögn frá lögreglunni
um að rannsókn væri lokið og kýs
því að tjá sig ekki um málið að svo
stöddu. -jse
Verkalýðsleiðtogi bit
á sinnuleysi lögreglu
Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir trésmíðafyrirtæki í bænum hlunn-
fara verkamenn um allt að 300 þúsund á mánuði. Hann undrast að lögreglan
ætli ekki að aðhafast í málinu og segir vinnuveitenda að skammast sín.
Á FLUGI TIL FRELSIS Thelma Ásdísardóttir var valin kona ársins af tímaritinu Nýju lífi í gær og fékk að gjöf málverk eftir Þuríði Á. Sigurðar-
dóttur. Verkið heitir Á flugi til frelsis. „Er það ekki bara ég,“ varð Thelmu að orði í lok athafnarinnar og uppskar lófatak fyrir. Hér sjást Vigdís
Finnbogadóttir, fyrrum forseti, og Gullveig Sæmundsdóttir, ritstjóri Nýs lífs við hlið Thelmu. Sjá síðu 2 FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN