Fréttablaðið - 01.12.2005, Page 34
1. desember 2005 FIMMTUDAGUR
Ásta Guðmundsdóttur fatahönn-
uður hefur vakið mikla athygli
á erlendi grundu undanfarin ár
fyrir fatalínu sína „ásta creative
clothes“. Hönnun sem þykir ein-
stök og áhugaverð sökum tærrar
skírskotunar í íslenska náttúru.
Við litum inn á vinnustofu Ástu
við Laugaveginn og fengum inn-
sýn í hönnun hennar og framtíð-
arsýn.
Andi frjórrar og skapandi hugsun-
ar tekur á móti okkur á vinnustofu
Ástu við Laugaveg. Fatnaður svo
langt sem augað eygir, ýmist full-
kláraður eða í vinnslu. Hrá og
óunnin efnin bíða skapandi handa
hennar. Í loftinu ríkir smá spenna
en verið er að undirbúa opnun
verslunar á vinnustofunni næst-
komandi laugardag.
Ásta notar mikið silkiorganza
og bómull en þó fer mest fyrir
íslensku ullinni sem hún segir gott
hráefni, öðruvísi en aðra ull. „Allt
frá upphafi hef ég fengist við að
tvinna saman ólíkum efnum, mér
finnst fallegt að setja saman gróft
og fínt og er þannig að reyna að
endurspegla Ísland í áferð og útliti.
Hvítur og svartur litur er ríkjandi
hjá mér en svo slæðast aðrir litir
inn á milli. Ég vinn efnið mikið,
þvæ, lita og markmiðið er að gera
efnið „veðrað“.
En hvernig er að vera íslensk-
ur hönnuður á Íslandi? „Þetta
er barningur og erfiður bran-
si,“ segir Ásta. Hún segir Ísland
vera lítinn markað og lítla hefð í
hönnun nytjavöru. Hún hafi fram
að þessu lagt meiri áherslu á að
kynna sig á erlendri grundu.
Ásta sýndi nýverið í Banda-
ríkunum ásamt Steinunni Sig-
urðardóttur. „Sýningin þótti mér
merkileg sakir þeirrar jákvæðu
umfjöllunar sem við fengum en
ég átti kannski ekki alveg von á.
Það er eitthvað öðruvísi við okkar
hönnun, hún er evrópsk og norræn
og það virðist vekja mikinn áhuga
fyrir vestan haf og möguleikarnir
þar óþrjótandi“ segir Ásta. Hún
segir hins vegar vera kominn
tíma til að kynna sig hér heima
og leggja meiri áherslu á íslensk-
an markað. „Ég sel mína hönnun í
Kirsuberjatrénu, er farin að selja
í versluninni á Hótel Nordica og
er að opna verslun í vinnustofunni
minni hér á Laugaveginum. Íslend-
ingar eru að vakna til vitundar um
íslenska hönnun og ég finn að eftir-
spurn eftir flíkunum er að aukast.
„Þá er bara að svara því kalli.“
Verslun Ástu verður opnuð í
vinnustofu hennar 3. desember kl.
14. Vinnustofan er á Laugavegi 25,
þriðju hæð. Nánari upplýsingar um
hönnun Ástu eru á slóðinni: www.
astaclothes.is.
Haust í
Skarthúsinu
Alpahúfur kr 990
Sjöl og treflar frá kr 1290
Belti frá kr 1990
Buxur kr 3990
Sokkabuxur frá kr 1290
Kínaskór kr 1290
Flísfóðraðir
hjartavettlingar kr 1490
SKARTHÚSIÐ
Laugavegi 12, s. 562 2466
Sendum í póstkröfu
Laugavegur 17 og Kringlunni
Sími 552-6744 og 588-6750fiú fær› jólagjafirnar hjá okkur
Foldatorgi • Sími 577 4949
Jólasprengja í Næs
- Grafarvogi
Full búð af nýjum vörum
góðar stærðir...ótrúleg verð
allar vörur frá
2400 til 5900
kápur - jakkar - pils - buxur - toppar - bolir
ll
r t r ir... tr l r
ll r r r fr
r - j r - ils - r - t r - lir
Grafarvogi
NÝBÝLAVEGUR 12,
KÓPAVOGUR
SÍMI 554 4433
Opnunartími í desember:
1. – 22. desember 10 – 20
23. desember 10 – 22
24. desember 10 – 12
Svartur bómullarfatnaður, sumar 2006.MYNDIR/ANNETTE SCHEVING
Hvítur kjóll, silkiorganza og bómull, sumar
2006.
„Litapaletta mín er ekki litrík, hvítur og svartur
er ríkjandi.“
Tær skírskotun í land og þjóð
Veðruð og hrá hönnun úr smiðju Ástu Guð-
mundsdóttur.
Einstök og áhugaverð hönnun með tæra
skírskotun í íslenska náttúru.
„Íslenska ullin er gott hráefni,“ segir Ásta
Guðmundsdóttir fatahönnuður.