Fréttablaðið - 01.12.2005, Qupperneq 46
■■■■ { miðborgin & jólin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■8
Gæði, ending og góð þjónusta
Skólavörðustíg 21 • Sími 551 4050 • Reykjavík
Borðdúkar í úrvali
Full búð af nýjum vörum
Figus
150cm
Mikið
úrval af
vönduðum
og fallegum
silkitrjám
SKARTHÚSIÐ
Laugavegi 12, s. 562 2466
Sendum í póstkröfu
Ný sending af
PILGRIM skarti
Laugaveg 30a
Þau segja sjálf að lífið í litlu borg-
inni Reykjavík sé eins og að upplifa
ævintýri fyrir stórborgarbörn frá
Frakklandi, en ævintýrin eiga svo
sannarlega heimkynni sín í Kisunni;
fágætri búð þeirra sem geymir ein-
ungis drauma og dýrðlegan varning
sem aldrei hefur áður fengist á land-
inu kalda.
„Við eiginmaður minn, Olivi-
er Brémond, bjuggum í París og
stýrðum þar franska framleiðslu- og
dreifingarfyrirtækinu Marathon í
fimmtán ár, en með okkur blundaði
Íslandsþráin; að leyfa börnum okkar
þremur að verða Íslendingar og læra
lýtalausa íslensku,“ segir Þórunn
Edda Anspach, dóttir Högnu Sigurð-
ardóttur arkitekts sem bjó og starf-
aði í París meðan Þórunn Edda sleit
barnsskónum.
„Við Íslandskomuna vildum við
söðla um og opna verslun þar sem
allar vörur væru sérvaldar og ein-
stakar. Þetta eru allt vörumerki sem
við elskum bæði og eru í miklu uppá-
haldi; allt frá Annick Goutal ilm-
vötnum, Bonpoints-barnafötum, sem
þykja þau fínustu í heimi, stórkost-
legum barnaskóm frá ítalska fram-
leiðandanum Pépé, frönsku dúkk-
unum Petit Collin sem breiða sjarma
sinn yfir börn sem fullorðna í takt
við tuskuleikföng frá Sigkid,“ segir
Þórunn Edda um dýrgripi Kisunnar,
sem er konseptbúð sem býður vörur
á ýmsum sérsviðum og heimshorn-
um: barnatísku, innanhússmuni,
fylgihluti, ilmvötn, bækur, tónlist,
myndlist og fleira.
„Við erum með vörur frá 80
framleiðendum, þar á meðal ómót-
stæðilega Epice-trefla, töskur Jamin
Puech sem eru hrein listaverk, sem
og töskur og hulstur frá Louison,
húfur og skart frá Jerome Gruet og
ljóðræna hatta frá Girl and Gorilla.
Þá erum við með nytjalist eftir Tsé
Tsé, Catherine Levy, Sigiléne Pré-
bois, Caravan og Lux Model; vefn-
aðarvörur frá Maison Georgette og
bestu handklæði heims frá Abys,“
segir Þórunn Edda í fagurri umgjörð
búðarinnar sem Högna móðir hennar
hannaði af listfengi.
„Það kom aldrei annað til greina
en að finna búðinni stað í miðbænum.
Það er yndislegt að sjá hve miðbær-
inn breytist ört, en fyrst eftir að við
komum heim þótti okkur sérkenni-
legt að aðalgata höfuðborgarinnar
skyldi vera jafn fátæk af búðum og
raun bar vitni. Hér er himneskt að
vera; við erum byrjuð að þekkja æ
fleiri og allir eru svo skemmtilegir og
jákvæðir, og ómótstæðilegt að geta
labbað eftir kaffibolla í Kaffitári,
kaupa sér blað og lifa dagana eins og
í litlu ævintýraþorpi,“ segir Þórunn
Edda með hamingublik í augum.
Heimsborgarar í
Ævintýralandi
Gamli góði Mikki mús er meðal þess sem
fæst í Kisunni.
Kisan er fágæt búð með spennandi
varningi.
Mokka er elsta kaffihús
borgarinnar en það var
opnað 24. maí 1958. Sömu
eigendur hafa rekið kaffi-
húsið frá upphafi en það
eru hjónin Guðný Guð-
jónsdóttir og Guðmundur
Baldvinsson.
Mokka hefur lítið breyst frá því að
kaffihúsið opnaði og allar innrétt-
ingarnar eru upprunalegar. Guðný
segir að það sé stefnan hjá þeim að
halda því þannig á meðan þau reki
kaffihúsið. „Fólk sem býr erlendis og
kemur á margra ára eða jafnvel árta-
tuga fresti verður alltaf mjög ánægt
þegar það kemur og segir að það sé
gott að finna að það sé eitthvað sem
er alltaf eins.“
Guðný segir að það sé alltaf mikið
að gera fyrir jólin og margir sem
komi heim yfir hátíðarnar noti tæki-
færið og kíki á Mokka. „Við höfum
sérstaklega orðið vör við að skóla-
krakkar sem eru að læra hér og þar
eru að hittast á Mokka.“ Hún segir
að það sé mjög gaman að fylgjast
með krökkunum stækka og núna
séu þau komin með þriðju kynslóð
fastakúnna. „Við erum mjög þakk-
lát fyrir það hvað gömlu kúnnarnir
halda mikilli tryggð við okkur. Það
er ábyggilega af því að þeir finna
ennþá gamla staðinn þó að borgin sé
að breytast. Við þurfum öll að eiga
einhverjar rætur,“ segir Guðný.
Þriðja kynslóð fastakúnna
Guðný Guðjónsdóttir eigandi Mokka við nýju kaffivélina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA