Fréttablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 51
FIMMTUDAGUR 1. desember 2005
Húsgögn og gjafavara
Skeifan 3A við hlið Atlantsolíu
108 Reykjavík
Sími: 517 3600 • Fax: 517 3604
mylogo@mmedia.is
www.local1.is
Tilboð á
völdum vörum
Vísindaheiti: Hippeastrum x hortorum
Notkunarsvið: Blómstrandi laukjurt. Jól, vetur og vor.
Birtuskilyrði: Bjart — en ekki sterkt sólskin á blómin.
Hitaskilyrði: Stofuhiti, 18-24°C — eða ögn svalara (15-18°C).
Vökvun: Haldið moldinni rakri — en varist ofvökvun.
Umpottun: Oftast fleygt eftir blómgun. Endurblómgun krefst
sérstakra skilyrða.
Áburðargjöf: Óþörf — en sjá annars hér að neðan.
Saga
Riddarastjarnan, eða amaryllis eins og plantan er oftast kölluð,
á sér um þriggja alda þróunarsögu. Hún er manngerður blend-
ingur milli nokkurra náskyldra tegunda sem vaxa í fjallahlíðum
Mið- og Suður-Ameríku.
Fyrstu tegundirnar af riddarastjörnum sem bárust til Evrópu
komu frá Vestur-Indíum. Fyrst kom Hippeastrum equestre (hin
eiginlega „riddarastjarna“) um 1630 og svo Hippeastrum reg-
inae (eiginlega „riddarastjarna drottningar“) árið 1728. Þær
þóttu skara öllu öðru framar vegna þess hve blómin voru stór
og eldrauð. Þessar riddarastjörnur nutu mikilla vinsælda og
voru á skömmum tíma komnar í söfn helstu heldri heimila víðs
vegar um Evrópu þegar önnur tegund barst frá Suður-Ameríku.
Sú hafði enn stærri blóm — en þau voru bleik með rauðum
langröndum eftir krónublöðunum. Þessi tegund fékk nafnið
Hippeastrum vittatum (þ.e. „riddarastjarna með rönd“). Og um
nokkurra áratuga skeið voru þessar tegundir ræktaðar hlið við
hlið.
Svo var það árið 1799 að skósmiður nokkur í enska bænum
Prescot í Lancashire á Englandi, Johnson að nafni, fiktaði við
það að æxla saman tegundunum H. reginae og H. vittatum
með þeim árangri að afkomendurnir fengu mun stærri blóm
í ýmsum litbrigðum sem hvorugt foreldranna hafði. Hin fræga
amaryllis-mynd Ásgríms Jónssonar sýnir einmitt einn af þess-
um Johnsons-blendingum.
Upp úr 1960 hófust svo nýjar kynbætur og kynblandanir með
riddarastjörnur. Farið var að blanda saman fleiri tegundum ekki
síst til að fá fram ný blómform og blómliti sem helst hentuðu
til blómaframleiðslu í stórum stíl og svöruðu kröfu tímans um
sterka stilka og lengri blómgunartíma en áður var þekktur. J
Riddarastjarna sem pottablóm
Riddarastjörnur eru fáanlegar stóran hluta úr árinu. Á haustin
og vorin er hægt
að kaupa lauka
sem tilbúnir eru til
gróðursetningar í
potta og henta til
ræktunar í heima-
húsum. Þegar
líður nær jólum fer
að bera á forrækt-
uðum Riddarastjörnum í blómabúðunum. Plönturnar eru þá
alveg komnar að því að blómgast og tilbúnar sem híbýlaprýði.
— En síðast og ekki síst eru afskornar riddarastjörnur til sölu frá
því í nóvember og langt fram eftir vetri.
Riddarastjarna sem afskurðarblóm
Sem afskurðarblóm er riddarastjarnan afar góð kaup. Blómin
standa um það bil tvær vikur í vasa. Þau eru stórar klukkur,
12-15 cm í þvermál, oftast fjórar á hverjum legg. Blómin eru
dæmigerð fyrir þau blóm sem frjóvgast af kólibrífuglum. Ridd-
arastjarnan er fáanleg í ýmsum hreinum litum. Rautt er vin-
sælast um jólaleytið en þegar á líður veturinn fara ýmsir aðrir
litir að gera sig gildandi, s.s. hvítt, bleikt, laxableikt og jafnvel
órans.
Endurræktun riddarastjörnulauka
Þegar riddarastjörnulaukarnir hafa lokið blómguninni og blöðin
orðin fullvaxta, þarf að stækka pottana fyrir hvern lauk. Setja þá
rótarhnausinn í 4-5 lítra pott, eða stærri, með góðri pottamold
og hafa á björtum og hlýjum stað, helst í gróðurhúsi, og vakta
með vökvun og vikulegri áburðargjöf út septembermánuð. Þá
er hætt að vökva og moldin látin þorna hægt. Gjarnan má setja
pottana á hliðina undir borð eða inn í skáp, þannig að plönt-
urnar búi sig undir þurrkatímabil og felli allt lauf og falli í eins
konar dvala. Þannig þurfa þær að vera við 10-12°C hita í svo
sem 20-24 vikur*). Eftir þann tíma, venjulega í lok febrúar eða í
byrjun mars, er þurra moldin hrist af laukunum. Ræturnar snyrt-
ar og skertar eftir þörfum og síðan er lauknum aftur komið fyrir
í potti í sömu hlutfallsstærð og byrjað var með þegar laukurinn
var nýr. Eftir það er farið með plöntuna eins og lýst er hér að
ofan. Þessi leikur getur endurtekið sig í mörg ár.
*) (Það er hægt að drífa laukana öllu fyrr, eftir svo sem 8-12
vikur, en birtan hér á norðurslóðum markar okkur bás, svo
betra er að bíða þar til daga hefur lengt nægilega, laukarnir
bíða bara rólegir).
Riddarastjarna - Amaryllis
Í GARÐINUM HEIMA
HAFSTEINN HAFLIÐASON SKRIFAR UM
POTTAPLÖNTUR