Fréttablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 59
FIMMTUDAGUR 1. desember 2005 31
Marta var ein af
Thorsurunum
„Í ævisögu Péturs
[Benediktssonar] segir að
hann hafi einhverju sinni
vorið 1945 hitt vin sinn,
Bjarna Guðmundsson
blaðafulltrúa, á förnum
vegi við veitingahúsið
Uppsali, á horni Túngötu
og Aðalstrætis. Þeir hafi
orðið vitni að því að
bandarískur hertrukkur
ók í veg fyrir fólksbíl sem
kom brunandi niður
Túngötuna. Til að forðast
árekstur hafi fólksbíllinn
snarbremsað svo harkalega
að það drapst á honum.
„Ung kona með mikið
liðað hár stígur þá út og
opnar vélarhlíf bílsins.
Á fáum augnablikum
kemur hún bílnum í gang
undir gali og blístri
hermannanna, stekkur
síðan upp í bílinn og kallar
til amerísku dátanna með
bros á vör: Thank you,
boys! Pétur og Bjarni
höfðu fylgst með þessu og
Pétur spyr: Hver var þetta?
Bjarni segir honum að
þetta hafi verið Marta,
dóttir Ólafs Thors. Er hún
lofuð spyr Pétur. Nei, segir
Bjarni. Svo skal ekki lengi
vera, segir Pétur.“
Útgáfudagur
desember2.
edda
edda.is
SKIPT_um væntingar
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
PAKKINN
Ver› a›eins 2.690.000 kr.
N†R X-TRAIL ME‹ TVÖ HUNDRU‹ OG FIMMTÍU fiÚSUND
KRÓNA JÓLAGJÖF Í KAUPBÆTI. TAKMARKA‹ MAGN!
X-TRAIL
JÓLA–NISSAN
250.000 KALL Í JÓLAGJÖF!
KAUPAUKI100.000 kr.GJAFABRÉF HJÁ
TAKMARKA‹ MAGN
Vetrardekk og dráttarbeisli fylgja me›.
VINNINGS
Líklega hafa ýmsir vaknað til
vitundar um mengandi áhrif
umferðar á höfuðborgarsvæðinu
í síðustu viku. Í fréttum var frá
því sagt að magn tiltekinna efna
hefði verið meira en góðu hófi
gegndi og að á slíkum þurrum
og köldum vetrardögum færi
mengun frá útblæstri bifreiða og
svifryk frá umferð yfir hámörk
sem sett eru til verndar heilsu
manna.
Síðan fór að blása, en vindur-
inn blæs þessu að mestu á haf út
- og lengi tekur víst sjórinn við.
Umhverfissvið Reykjavíkur-
borgar hefur vakið athygli á loft-
mengun og fleiru með kynning-
arátaki í haust. Það liggja fyrir
upplýsingar um mengun og bent
hefur verið á leiðir til úrbóta.
Eitt er vistvænn (mjúkur) akst-
ur, annað betra skipulag ferða
(engir óþarfir skreppitúrar) og
þriðja notkun strætó, reiðhjóla
eða tveggja jafnfljótra fyrir þá
sem það geta.
Önnur atriði sem eru til athug-
unar er m.a. frekari takmörkun á
notkun nagladekkja sem rífa upp
malbikið og dreifa malbiksryki
yfir umferðaræðar og nærliggj-
andi svæði. Svo þarf að huga að
því hvernig við nýtum borgar-
landið, en það er ótrúlegt að nær
helmingur þess skuli fara undir
umferðarmannvirki og tengd
svæði.
Aðventan er kannski ekki
besti tíminn til breytinga í þess-
um efnum, því þá þurfa allir
óhindrað að komast ferða sinna
til að lenda ekki í jólakettinum.
Ég get þó ekki stillt mig um að
nefna að áramótin eru líklega sá
tími þegar loftmengun er hvað
mest vegna flugeldagleði lands-
manna. Ég hef hingað til lagt
minn skerf til þeirra hluta og
stutt mitt íþróttafélag, sem aflar
tekna með flugeldasölu, í leið-
inni. Um hver áramót togast á í
mér annars vegar tryggðin við
félagið og stráksleg gleðin við
að framleiða sem mestan hávaða
og læti og hins vegar nagandi
samviska yfir þeirri mengun og
sóðaskap sem þessu fylgir.
Til þessa hafa tryggðin við
félagið og stráksskapurinn haft
yfirhöndina, en samviskan sækir
þó í sig veðrið eftir því sem ald-
urinn færist yfir. Kannski ég fái
mér risatertu til að skjóta upp
um áramótin og láti hana verða
hina síðustu!
Höfundur er fulltrúi í umhverf-
isráði Reykjavíkurborgar og sæk-
ist eftir 3.sæti í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar.
Vitundarvakning í umhverfismálum
UMRÆÐAN
MENGUN
STEFÁN JÓHANN STEFÁNSSON