Fréttablaðið - 01.12.2005, Page 72
1. desember 2005 FIMMTUDAGUR44
bio@frettabladid.is
Nældu þér í eintak í næstu verslun!
Glæsileg, tvöföld ferilsplata
frá einni bestu og fjölhæfustu
söngkonu landsins.
Missið ekki af afmælistónleikum
Diddúar í Salnum 2. og 3. desember!
Plata 1
Blue • Hún og verkarinn • Nei sko • Skýin
• Húsin mjakast upp • Ekki bíl • Tunglið, tunglið
taktu mig • Einskonar ást • Gæfa eða gjörvileiki
• Elliheimilið Grund • Valdi skafari • Sagan af
Nínu og Geira • Þegar amma var ung
• Drykkjuvísa • Bréfið hennar Stínu • Stella í
orlofi • Við stóran stein • Vorið kemur (Vikivaki I)
• Systir mín góða í dali • Betlarinn • Það brennur
• Þegar ég sigli • Söngur hjartans • Can’t Help
Loving That Man
Plata 2
Barnagæla úr Silfurtunglinu (Hvert örstutt spor)
• Draumalandið • Svanasöngur á heiði
• Huldumál • Hjarðmærin • Maður hefur nú
• Recuerdos de la Alhambra • Il Bacio • Regnava
nel silenzio • Caro nome • O, mio babbino caro
• Una voce poco fa • Song to the moon • In
Trutina • Mercè dilette amiche • Mi chiamano
Mimi • È strano ... sempre libera
Íslenskir tónar kynna
Hryllingsmyndir hafa á und-
anförnum árum verið að ryðja
sér til rúms á ný eftir að hafa
legið í dvala um nokkurt skeið.
Kvikmyndaverin hðfðu gleymt
því að hryllingsmyndir verða
að vera hráar, ódýrar og helst
illa leiknar svo þær dragi að
sér ákafa fylgismenn þessarar
kvikmyndagerðar.
Ein af þeim kvikmyndum sem
hófu þessar myndir til vegs og
virðingar á ný var kvikmyndin
Saw sem sló í gegn meðal hryll-
ingsmyndaaðdáenda í fyrra og nú
er að sjálfsögðu komið framhald.
Að hætti góðra hryllingsmynda
er Saw II bæði ódýr og hrá. Hún
kostaði einungis fjórar milljónir
dollara en hefur nú þegar þénað
85 milljónir.
Hinn andstyggilegi Jigsaw er
mættur aftur og nú hefur lög-
reglumaðurinn Eric Matthews
komist á snoðir um illvirki hans.
Reyndar er eltingaleikurinn
hluti af ógeðfelldri áætlun þessa
viðurstyggilega fjöldamorðingja
því átta manneskjur eru nú þegar
að berjast fyrir lífi sínu. Það sem
Matthews veit ekki er að hann er
hluti af heildarmyndinni og Jig-
saw ætlar sér að gera hann hluta
af leiknum.
Það er fyrrum New Kids on
the Block-stjarnan Donnie Wahl-
berg sem fer með aðalhlutverkið
í myndinni en hann er stóri bróð-
ir leikarans Marks Wahlberg.
Það þarf varla að taka það fram
að Saw II er stranglega bönnuð
innan sextán ára.
Sögin snýr aftur
Jólamyndin Noel segir sögu fjög-
urra ólíkra persóna í stórborginni
New York um það leyti sem jólahá-
tíðin er að ganga í garð. Þeir sem
þekkja til segja stórborgina engu
líka þegar hátíð ljóss og friðar er
í hámarki.
Bókaútgefandanum Rose gengur
allt í haginn í vinnunni en einkalífið
er í molum. Hún er nýfráskilin og á
erfitt með að líta við karlmönnum.
Systir hennar talar ekki við hana og
hún þarf því að sjá ein um Alzheim-
er-veika móður sína. Það stefnir því
í einmanaleg jól hjá henni. Mike
Riley er lögregluþjónn sem telur
sig vera í hamingjusömu sambandi
við fegurðardísina Ninu. Hann er
hins vegar sjúklega afbrýðisamur
út í alla karlmenn sem gefa henni
auga og þetta neyðir stúlkuna til
að endurskoða hug sinn til hans.
Fjórða söguhetjan er síðan Jules
Calvert, sem er glaumgosi af bestu
gerð en langar til endurupplifa jóla-
stemninguna frá fyrri tíð. Það er
Chazz Palminteri sem leikstýrir
þessari rómantísku mynd en í aðal-
hlutverkum eru Susan Sarandon,
Penelope Cruz og Paul Walker.
Kvöldsögur úr Stóra eplinu
SUSAN SARANDON OG PENELOPE CRUZ
Fara með aðalhlutverk í rómantískri mynd
sem gerist í New York um jólin.
Fótboltabullur hafa sem betur fer
ekki náð hingað til lands að neinu
marki. Þetta er hins vegar vanda-
mál sem lengi hefur loðað við
ensku knattspyrnuna en úrvals-
deildin hefur barist ötullega gegn
þessum hópi sem enn er þó með
lífsmarki í neðri deildunum. Kvik-
myndin Green Street Hooligans
segir frá Matt Buckner en hann er
rekinn frá Harvard fyrir brot sem
hann framdi ekki. Buckner leitar
huggunar á Englandi hjá systur
sinni en kemst fljótlega í kynni við
heldur vafasaman hóp boltabullna
sem þrífast á ótta og ógn.
Það er Elijah Wood sem leik-
ur aðalhlutverkið í þessari mynd
en hann er hvað þekktastur sem
Fróði í Hringadróttinssögu. Það
er óhætt hægt að segja að það er
fátt sem minnir á ævintýraheim
Tolkiens í þessari mynd um heim
þjakaðan af ofbeldi og vesæld.
Boltabullur
á Bretlandi
MATT BUCKNER Eftir að hafa verið rekinn úr
Harvard flýr Buckner til Englands þar sem
hann kemst í kynni við boltabullur.
FRUMSÝNDAR UM HELGINA
Noel
Internet Movie Database 6,1 / 10
Metacritic.com 6,0 / 10
Rottentomatoes.com 25% / Rotin
Saw II
Internet Movie Database 7,2 / 10
Metacritic.com 6,4 / 10
Rottentomatoes.com 34% / Rotin
Green Street Hooligans
Internet Movie Database 7,3 / 10
Metacritic.com 9,7 / 10
Rottentomatoes.com 47% / Rotin
„He doesn‘t want us to cut
through our chains! He
wants us to cut through
our feet!“
- DR. LAWRENCE GORDON,
LEIKINN AF CAREY ELWES GERIR
SKELFILEGA UPPGÖTVUN Í SAW.