Fréttablaðið - 23.12.2005, Page 30

Fréttablaðið - 23.12.2005, Page 30
 23. desember 2005 FÖSTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Matthías Johannessen, skáld og fyrrverandi ritstjóri, gerði á dögunum greinarmun á góðu auðvaldi og vondu. Hann kvaðst sjálfur hafa þjónað góðu auðvaldi í ritstjóratíð sinni, en það var á honum að skilja, að nú léti annað og miklu verra auðvald að sér kveða opinberlega. Ég held, að Matthías hafi bæði rétt og rangt fyrir sér. Til eru tillitslausir, kaldrifjaðir og skammsýnir fjárplógsmenn, þar sem glottið er ein glæpasaga (eins og Einar Benediktsson orti). Lesa má um einn slíkan mann í nýlegri bók eftir Einar rithöfund Kárason, þótt mynd- in þar sé snyrt og fegruð eftir megni. Til eru líka ágætir menn, sem kunna um leið að græða, og hef ég verið svo lánsamur að kynnast nokkrum þeirra. Nefni ég sérstaklega Pálma heitinn Jónsson í Hagkaup og Björgólf Guðmundsson bankamann. Í þessum skilningi er til gott og vont auðvald. En minn gamli vinur Matthías hefur rangt fyrir sér, ef hann telur til dæmis, að nýríkir menn þurfi að vera verri en gamalríkir. Sjálfum finnst mér raunar meira til um það, þegar menn skapa auðæfi sín sjálfir en þegar þeir erfa þau, þótt það sé vissulega líka ærið verk- efni og vanmetið að varðveita fé og ávaxta. Sömu ásakanir dynja á nýríkum Íslendingum okkar tíðar og gerðu á fyrra helmingi tuttugustu aldar, eins og allir vita, sem lesið hafa skrif Jónasar frá Hriflu: Þeir séu eyðslusamir og menningarsnauðir, hafi ask- lok fyrir himin og gefnir fyrir að sýnast fremur en vera. Þess- ar ásakanir eru ekki alltaf út í bláinn, en bera stundum frek- ar vitni um öfund en sanngirni. Við eigum að samfagna þeim, sem komist hafa í álnir af eigin rammleik. Matthías hefur líka rangt fyrir sér, ef hann telur, að aðal- atriðið sé, hvernig fjárgróða- menn eru innrættir. Hitt skiptir meira máli að mínum dómi, við hvaða skilyrði þeir starfa, hvaða leikreglum þeir þurfa að fylgja. Í framkvæmdamönnum býr ólg- andi kraftur, sem á að virkja til almannaheilla. Það er unnt í skipulagi frjálsrar samkeppni og séreignar, sem lýtur tveimur lögmálum: Til þess að græða fé verður maðurinn að hafa á boð- stólum jafngóða vöru eða þjón- ustu og keppinautarnir. Og hann hirðir betur um það, sem hann á einn, en hitt, sem allir eiga í orði kveðnu og enginn ber ábyrgð á. Það er ekki líklegt til árangurs að vanda um við fjárgróðamenn eða halda yfir þeim langar prédik- anir um það, að nú skuli þeir bæta ráð sitt. Hitt er vænlegra að búa svo um hnútana, að hagur þeirra fari saman við almannahag. Það gerist, ef þeir ávaxta eignir sínar af kostgæfni og keppa af krafti um hylli almennings. Ég ætla að leyfa mér að ganga lengra og segja, að fjárgróðamenn geri miklu meira gagn með þessu en því að gefa fé til líknar- og mann- úðarmála, eins og sumir þeirra iðka í því skyni að geta sér gott orð. Tökum þróunarlöndin til dæmis. Hvort gerum við fátæk- um íbúum þeirra meira gagn með því að senda þeim fé að gjöf eða með því að stunda við þau frjáls viðskipti? Reynslan hefur fyrir löngu skorið úr um rétta svarið. Þeir, sem vilja bæta kjör fátækra þjóða, ættu ekki að senda þeim fé að gjöf, heldur berjast fyrir frjálsum viðskipt- um á alþjóðavettvangi og fjár- festa í arðvænlegum fyrirtækj- um í þróunarlöndum, sem skapa íbúum þar betri störf en þeir ættu annars kost á og færa um leið hinum vestrænu eigendum kærkominn gróða. Að lokum þarf auðvitað ekki að fjölyrða um það, að fjárgróðamenn eiga eins og aðrir að nota frelsi sitt innan marka laga og almenns velsæmis. Sá sannleikskjarni er þrátt fyrir allt í orðum Matthí- asar skálds, að veita verður fjár- gróðamönnum eins og öðrum hið siðferðilega aðhald, sem felst í öflugu almenningsáliti. Þá verð- ur auðvaldið gott. ■ Gott auðvald og vont? Í DAG RÍKIDÆMI HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON Þessar ásakanir eru ekki alltaf út í bláinn, en bera stundum frekar vitni um öfund en sann- girni. Við eigum að samfagna þeim, sem komist hafa í álnir af eigin rammleik. Einni mestu jólakauptíð Íslandssögunnar lýkur senn og verslunareigendur flestir hverjir hljóta að vera ánægðir með jólaverslunina. Það tilheyrir jólum að menn geri vel við sig í mat og drykk og gefi hverjir öðrum gjafir. Þetta hvort tveggja getur þó farið út fyrir skynsamleg mörk, en efnahag- ur hvers og eins og eins ræður hér för eins og varðandi margt annað í lífinu. Með aukinni velsæld og stöðugt fleiri einstakling- um sem hafa ofurlaun, hlýtur neyslumunstrið og verðmætamat- ið að breytast. Bækur hafa löngum verið vinsælar jólagjafir hér á landi og þótti enginn maður með mönnum hér áður fyrr, nema hann fengi svo og svo margar bækur í jólagjöf. Með innreið tónlistarinn- ar á jólamarkaðinn voru margir svartsýnir á stöðu bókarinnar, en hún heldur enn velli og er það vel. Bókaútgáfan blómstrar og ef eitthvað er þá hefur þeim bókaútgáfum fjölgað sem virð- ast ætla að lifa og dafna, eftir mikið samþjöppunarskeið fyrir nokkrum árum. Bókmenntaþjóðin Íslendingar stendur því enn undir nafni, þótt skáldverkin og útgáfan hafi breyst mikið á allra síðustu árum. Ótrúlegur fjöldi sakamálabóka kemur út fyrir þessi jól, og það er eins og velgengni eins höfundar kalli á fleiri og fleiri höfunda í þessari grein svo manni þykir nóg um. Hefðbundnar skáldsögur hafa fallið í skuggann af sakamálasög- unum. Fjölmargar skáldsögur hafa að vísu komið út nú á síðustu vikum, en umræðan í þjóðfélaginu beinist frekar að sakamála- sögunum, og ekkert nema gott um að það segja á meðan bækur eru til umræðu. En mitt í öllu amstrinu fyrir jólin og um það bil sem jólakaup- tíðinni er að ljúka er hollt að minnast þess að það búa ekki allir við allsnægtir. Hjálparstofnun kirkjunnar hefur um langt skeið safnað handa bágstöddum á aðventunni, og gerir það líka nú. Að þessu sinni verður söfnunarfénu varið til vatnsöflunar í fátæk- um Afríkuríkjum, einkum þó Mósambik, sem er eitt fátækasta land í heimi. Það eru til margar frásagnir af því hve vatnsöflun til dag- legra nota getur verið miklum erfiðleikum bundin í þessum löndum. Við sem skrúfum hugsunarlaust frá krananum mörgum sinnum á dag, og spörum ekki vatnið, getum varla sett okkur í spor þeirra sem þurfa sumstaðar að verja mörgum tímum á dag til að afla nauðsynlegs vatns þótt sparlega sé með það farið. Það er því full ástæða til þess að minna fólk á að „skrúfa frá krananum“ og styrkja með því vatnsöflun fátæks fólks í Afríku. Lítil upphæð getur gert kraftaverk, hvað þá þegar hópar vina, kunningja eða starfsfélaga taka sig saman og gefa myndarlegar upphæðir í þessa söfnun eins og dæmi eru um nú á aðventunni. SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Munum eftir fátækum bræðrum okkar og systrum. Jólakauptíð að ljúka Bókaútgáfan blómstrar og ef eitthvað er þá hefur þeim bókaútgáfum fjölgað sem virðast ætla að lifa og dafna, eftir mikið samþjöppunarskeið fyrir nokkrum árum. Bókmenntaþjóðin Íslendingar stendur því enn undir nafni, þótt skáldverkin og útgáfan hafi breyst mikið á allra síðustu árum. Afmælistónleikar Ríkisútvarpið er 75 ára um þessar mundir. Hefur þess verið minnst með ýmsum hætti í dagskránni svo sem sjálfsagt er og hlustendur hafa orðið varir við. Rás eitt, sem segja má að sé hinn upprunalegi hluti Ríkisút- varpsins, hélt meðal annars upp á afmælið með því að senda út vandaða tónlistardagskrá frá Hallgrímskirkju. Tónleikarnir voru einnig sendir á öldum ljósvakans til útlanda fyrir milligöngu sambands evrópskra útvarpsstöðva og munu hafa náð eyrum allt að sex milljón hlustenda í Evrópu. Um þetta ágæta framtak Rásar eitt mátti lesa á forsíðu Fréttablaðsins á mánudaginn. Afgangsstærð? Tónleikarnir í Hallgrímskirkju virðast enga athygli hafa vakið hjá Sjónvarpinu. Hvorki voru þeir sendir út né frá þeim skýrt í fréttum. Hermt er að þetta hafi vakið undrun og nokkur sárindi meðal starfsmanna Rásar eitt. Þeim finnst hið upprunalega útvarp orðið að afgangsstærð innan Ríkisútvarpsins. Er í þessu sambandi nefnt að mun yngri deild Ríkisútvarpsins, Rás tvö, stóð á dögun- um fyrir samkeppni um jólalag og uppskar fyrir það mikla athygli fréttastofu Sjónvarpsins. Þarna þykir halla á klassíkina á kostnað dægurtónlistar. Jólsveinar Eftir að Alþingi var sent heim virðist eitt helsta deiluefnið í þjóðfélaginu vera hvort jóla- sveinninn sé til eða ekki. Sannarlega mjög áhugavert. Framlag séra Flóka Kristinssonar á Hvanneyri til málsins hefur vakið mikla athygli en samkvæmt DV fullyrðir hann í sunnudagsskóla sóknarinnar að sögur um jólasveina séu hreinn tilbúningur. Haft er eftir honum í blaðinu: „Ég gat ekki hugsað mér að ljúga að börnunum.“ Illugi Jökulsson veitti prestinum harða ádrepu á NFS fyrir tiltækið. „Ekki grunaði mig að til væru menn sem teldu sig svo heilaga og innblásna af sannleiksást að þeir gætu ekki unnt litlum sex ára krökkum þess að trúa á jólasveininn í friði. Því þetta voru sex ára krakkar! Sex ára og hinn heilagi séra Flóki þóttist ekki geta logið að þeim um tilvist jólasveinsins! Mér liggur við að spyrja hversu lágt er eiginlega hægt að leggjast?“ sagði Illugi. gm@frettabladid.is AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA Mest lesna vi›skiptabla›i› G al lu p k ö n n u n f yr ir 3 6 5 p re n tm i› la m aí 2 0 0 5 . Komdu í spennandi heim afþreyingar og upplýsinga Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 3 06 37 12 /2 00 5 KOMDU Í SPENNANDI HEIM AFÞREYINGAR OG UPPLÝSINGA 14.900 kr. NOKIA 6020 SÍMI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.