Fréttablaðið - 23.12.2005, Síða 35
FÖSTUDAGUR 23. desember 2005 5
Krabbameinsfélagið hefur
notið góðs af sölu Engils vonar-
innar sem er nú seldur annað
árið í röð.
Engill vonarinnar er gripur gerð-
ur úr messing með 24 karata gyll-
ingu. Gripurinn er hannaður af
Hönnu S. Magnúsdóttur. Engillinn
er merktur með ártalinu 2005 og
er seldur í verslun Guðlaugs A.
Magnússonar á Laugavegi 22a.
Engill vonarinnar kostar 3.490
krónur og rennur hluti af and-
virði hans til Krabbameinsfélags
Íslands. Verslunin afhenti Krabba-
meinsfélaginu nýlega ágóðahlut
síðasta árs sem nam 68.700 krón-
um. Ágóðinn verður nýttur í þágu
krabbameinssjúklinga, meðal ann-
ars til umönnunar þeirra.
Einnig má styrkja Krabba-
meinsfélagið með því að hringja
í styrktarsíma félagsins 907 5050
og verða þá eitt þúsund krónur
skuldfærðar af viðkomandi sím-
reikningi.
Engill vonarinar
styrkir Krabba-
meinsfélagið
Engill vonarinnar er seldur í verlsun
Guðlaugs A. Magnússonar við Laugaveg og
rennur hluti af söluverðinu til Krabba-
meinsfélagsins.
Armeníska Shenoraavor nor dari
Spænska Feliz navidad
Danska Glædelig jul
Hollenska Vrolijk Kerstfeest
Estóníska Ruumsaid juulup
Færeyska Gledilig jol
Finnska Hyvaa joulua
Franska Joyeux Noel
Gríska Kala Christouyenna!
Ítalska Buone Feste Natalizie
Serbneska Hristos se rodi
Víetnamska Chung mung giang sinh
Þýska Froehliche Weihnachten
Úsbeska Yangi Yiligiz Mubarak
Bolsun
Georgíska Gilotsavt Krist‘es Shobas
Grænlenska Juullimi Ukiortaassamilu
Pilluarit
Makedóníska Srekan Bozik
Ástraslka ‚Ave a bonza Chrissy, Mate
Gleðileg jól }
á ýmsum tungu-
málum
Öll þekkjum við jólasveinana
þrettán, bíðum spennt eftir
komu þeirra, syngjum um þá
vísur og lærum nöfin þeirra í
æsku. Hins vegar hafa jóla-
sveinarnir ekki alltaf verið
þrettán og ekki alltaf heitið
þeim nöfnum sem við þekkjum
í dag.
Séu skoðaðar gamlar vísur frá
því fyrir aldamótin 1900 má finna
þar vísbendingar um að jólasvein-
arnir séu „einn og átta“ eða „tólf
og tíu“, það er níu eða tuttugu og
tveir. Í Sögu daganna, sem Árni
Björnsson ritaði, er vitnað í konu
úr Biskupstungunum, sem var
fædd 1912, sem minntist þess úr
sinni æsku að jólasveinarnir hafi
verið 18 talsins en síðar hafi þeir
týnt tölunni niður í 13 eða 9.
Í kringum aldamótin 1900 voru
einnig notuð nöfn á jólasveinum
sem okkur eru nokkuð ókunn í
dag. Þar á meðal eru Faldafeykir,
Pönnuskuggi, Guttormur, Banda-
leysir, Klettaskora, Lampaskuggi,
Bitahængi, Froðusleikir, Syrju-
sleikir, Baggalútur, Dúðadurtur,
Flotnös, Kleinusníkir, Litlipung-
ur, Smjörhákur og Örvadrumbur.
Nöfnin sem við þekkjum í dag
eiga rætur sínar að rekja til seinni
hluta 19. aldar. Séra Jón Árnason
sendi þjóðsagnabindi í prentun
til Leipzig. Þá hafði hann safnað
saman nöfnum jólasveinanna og
háttalagi þeirra. Jólasveinanöfn-
in sem við þekkjum í dag voru
prentuð í þjóðsagnabindið og hafa
haldið sér að mestu leyti síðan þá.
Reyndar hefur nafnið Hurðaskell-
ir leyst Faldafeyki af.
Faldafeykir og Lampaskuggi
Jólasveinar hafa gengið sinn þróunar-
stig, þeim ýmist fjölgað eða fækkað
í gegnum tíðina og sérkennileg nöfn
þeirra fallið í gleymsku.
Nonni GULL