Fréttablaðið - 23.12.2005, Qupperneq 36
23. desember 2005 FÖSTUDAGUR6
Þessa dagana eru þeir eflaust
margir sem lofa sjálfum sér að
taka upp siði Gísla Einarsson-
ar og fjölskyldu hans.
„Það má kalla það fjölskylduhefð
hjá okkur að við reynum alltaf að
vera búin að öllum undirbúningi
snemma,“ segir Gísli Einarsson,
fréttamaður RÚV á Vesturlandi.
„Það er reyndar konan sem stjórnar
því og það liggur við að það sé búið
að kaupa allar jólagjafirnar á miðju
sumri,“ bætir hann við og hlær dátt.
Ástæðan er sú að hér á árum
áður var oft afar mikið að gera hjá
þeim hjónum fyrir jólin og lítill tími
fannst til þess að sinna tiltekt og
innkaupum.
„Við vorum bæði að vinna kannski
fram á nótt á Þorláksmessu. Ég man
ég sofnaði einu sinni uppréttur við
tiltektina á aðfaranótt aðfangadags.
Þess vegna höfum við reynt að vera
búin tímanlega að öllu og hafa þá
frekar tíma til þess að bjóða gest-
um og gera eitthvað skemmtilegt á
aðventunni,“ segir hann.
Gísli og kona hans eru iðulega
með danskan julefrokost á aðvent-
unni og bjóða þá vinum sínum og
vandamönnum í hann. Þá er hefð-
bundið danskt svínaflesk á borðum
og síld frá Hofsósi, ásamt öðru lost-
æti.
Fjölskylda Gísla var vön að gera
laufabrauð saman, en seinustu árin
hefur sá siður farist fyrir vegna
anna. Þó helst skötusiðurinn áfram,
en Gísli mætir alltaf í skötuna til
móður sinnar á Þorláksmessu með
börnin sín þrjú, 7, 9 og 15 ára. ■
Reynir að ljúka undir-
búningnum snemma
Gísli Einarsson, fréttamaður RÚV, segist reyna að vera búinn að öllu snemma fyrir jólin.
Árið 1897 skrifaði átta ára
stúlka, Virginia O‘Hanlon, bréf
til blaðsins The New York Sun
og spurði hvort jólaveinninn
væri til. Svarið fékk hún í ein-
um af frægustu leiðurum í sögu
blaðamennskunar.
O‘Hanlon fjölskyldan var vön að
senda spurningar í Spurt og svarað-
dálkinn í The Sun þegar upp komu
vafamál um sögulegar staðreyndir.
Því ákvað Virginia að spyrja blað-
ið, sem aldrei hafði logið að henni,
hvort jólasveinninn væri í raun og
veru af holdi og blóði eða uppspun-
inn einn.
Bréfið rataði alla leið inn á skrif-
borð til Francis P. Church ritstjóra
sem vanalega sá um umdeildustu
málin, og hann sá strax að þetta var
bréf sem hann þyrfti að svara sjálf-
ur. Í svarinu stóð meðal annars:
Jólasveinninn er til, rétt eins og
ást, gjafmildi og
staðfesta. Allt
eru þetta hlutir
sem gefa lífinu
fegurð og gleði.
Sjá!, hversu
d r u n g a l e g u r
yrði heimur-
inn ef enginn
jólasveinn væri
meðal oss! Hann
væri jafn drung-
alegur og ef
engar Virginiur
væru til. Þá væri
engin barnstrú,
engin ljóðlist og engin rómantík
til að gera tilveruna þolanlega. Við
gætum einskis notið, nema sjá það
og skynja. Hið lýsandi ljós, sem
barndómurinn heiminn fyllir, yrði
kæft. ■
Jólasveinninn er til
Ullarbolur
barna, verð frá
3.600 kr.
fullorðins
5.900 kr.
Nýtt frá 66°NORÐUR
100% Merino-ullarnærföt
www.66north.is
REYKJAVÍK: Kringlan - Bankastræti 5 - Faxafen 12
GARÐABÆR: Miðhraun 11 - Akureyri: Glerárgata 32
Gefðu mjúka gjöf
Ullarbuxur
barna, verð frá
3.100 kr.
fullorðins
4.900 kr.
ICETREND OUTLET
FÖT Á LÆGRA VERÐI
Leiðbeiningar
ICETREND
OUTLET
Síðumúli
Fe
lls
m
úl
i
Komið og kaupið
síðustu jólagjafirnar
í Síðumúla 34.
Opið frá kl.11:00 til 21:00 í kvöld
Verð frá 200, – til 3.750, –
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI