Fréttablaðið - 23.12.2005, Síða 51
23. desember 2005 FÖSTUDAGUR 39
[ METSÖLULISTAR ]
EYMUNDSSON
MÁL OG MENNING
PENNINN
AÐALLISTINN - ALLAR BÆKUR
1. VETRARBORGINARNALDUR INDRIÐASON
2. SÓLSKINSHESTURSTEINNUNN SIGURÐARDÓTTIR
3. MEÐ LÍFIÐ AÐ LÁNIJÓHANN INGI GUNNARSS. & SÆMUND-
UR HAFSTEINSS.
4. THORSARARNIRGUÐMUNDUR MAGNÚSSON
5. ÉG ELSKA ÞIG STORMUR GUÐJÓN FRIÐRIKSSON
6. ROKLAND HALLGRÍMUR HELGASON
7. HUGMYNDIR SEM BREYTTU HEIMINUMFELIPE FERNÁNDEZ-ARNESTO
8. FORÐIST OKKURHUGLEIKUR DAGSSON
9. GÆFUSPOR - GILDIN Í LÍFINUGUNNAR HERSVEINN
10. TÍMI NORNARINNARÁRNI ÞÓRARINSSON
SKÁLDVERK - INNBUNDNAR BÆKUR
1. VETRARBORGINARNALDUR INDRIÐASON
2. SÓLSKINSHESTUR STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR
3. ROKLAND HALLGRÍMUR HELGASON
4. TÍMI NORNARINNAR ÁRNI ÞÓRARINSSON
5. ÞRIÐJA TÁKNIÐ YRSA SIGURÐARDÓTTIR
6. ARGÓARFLÍSIN SJÓN
7. Í FYLGD MEÐ FULLORÐNUM STEINUNN ÓLÍNA ÞORSTEINSDÓTTIR
8. HÆTTIR OG MÖRK - LJÓÐ ÞÓRARINN ELDJÁRN
9. VIÐ ENDA HRINGSINS TOM EGELAND
10. SKUGGI VINDSINS CARLOS RUIZ ZAFÓN
SKÁLDVERK - KILJUR
1. FORÐIST OKKUR HUGLEIKUR DAGSSON
2. BJARGIÐ OKKUR HUGLEIKUR DAGSSON
3. ENGLAR OG DJÖFLAR DAN BROWN
4. ALKEMISTINN PAULO COELHO
5. KARÍTAS ÁN TITLS KRISTÍN MARJA BALDURSDÓTTIR
6. KLEIFARVATN ARNALDUR INDRIÐASON
7. MÓÐIR Í HJÁVERKUM ALLISON PEARSON
8. DA VINCI LYKILLINN DAN BROWN
9. SKUGGA BALDUR SJÓN
10. SAGAN AF PÍ YANN MARTEL
BARNABÆKUR
1. ERAGON CHRISTOPHER PAOLINI
2. FÍASÓL Í HOSILÓ KRISTÍN HELGA GUNNARSDÓTTIR
3. HARRY POTTER OG BLENDINGS…J.K. ROWLING
4. KAFTEINN OFURBRÓK OG LÍFT…DAV PILKEY
5. JÓLASVEINASAGABERGLJÓT ARNALDS / FRÉDÉRIC
BOULLET
6. SUDOKU- FYRIR KÁTA KRAKKATARA FORLAG
7. TÖFRABRAGÐABÓKINJÓN VÍÐIS JAKOBSSON
8. HERRA JÓLIROGER HARGREAVES
9. EINHYRNINGURINN MINN…LINDA CHAPMAN
10. ARTEMIS FOWL - BLEKKINGIN EOIN COLFER
LISTINN ER GERÐUR ÚT FRÁ SÖLU
DAGANA 14.12.05 - 20.12.05 Í
BÓKABÚÐ MÁLS OG MENNINGAR,
EYMUNDSSON OG PENNANUM
Í miðborginni má búast við iðandi
mannlífi í kvöld eins og jafnan á
Þorláksmessu. Og þótt einhverj-
ir þreytist á búðarrápinu þá er
ýmislegt annað í boði.
Í anddyri Íslensku óperunn-
ar ræður klassísk stemning
ríkjum frá klukkan 19 til 23.
Afstressandi óperutónlist mun
hljóma um salinn og hafa nokkr-
ir þekktir óperusöngvarar boðað
komu sína. Davíð Ólafsson bassi
stjórnar dagskránni eins og
honum einum er lagið.
Þar á staðnum verður einnig
hægt að nálgast gjafakort á
nokkra hinna glæsilegu viðburða
vormisseris í Óperunni, þannig
að þeir sem eiga eftir að kaupa
síðustu jólagjafirnar eiga enn
von. Einnig verða léttar veitingar
til sölu og eru allir velkomnir.
Þeir sem ekki hætta sér inn
í anddyri Íslensku óperunnar
þurfa þó ekki að missa af fögr-
um söng úr þrautþjálfuðum
hálsum óperusöngvara. Á svöl-
um kaffihússins Sólon, sem er í
næsta nágrenni Óperunnar, ætla
„tenórarnir þrír“ að gefa frá sér
himneska tóna sem berast yfir
mannþröngina á horni Banka-
strætis og Ingólfsstrætis í þann
mund sem fólk er að sinna síðustu
jólainnkaupunum.
Í ár eru það þeir félagar, Gunn-
ar Guðbjörnsson, Jóhann Frið-
geir Valdimarsson og Þorgeir
J. Andrésson sem þenja raddir
sínar og flytja vel valin jólalög
og þekktar aríur af svölunum.
Með söng þeirra leikur Steinunn
Birna Ragnarsdóttir á píanó.
Tónleikar tenóranna þriggja
hefjast klukkan 19.30 og verða
endurteknir klukkan 21. ■
Óperusöngur á Þorláksmessu
DAVÍÐ ÓLAFSSON SÖNGVARI
Stjórnar eins og honum einum
er lagið dagskrá með klass-
ískum söng í anddyri Íslensku
óperunnar.