Fréttablaðið - 23.12.2005, Qupperneq 65
FÖSTUDAGUR 23. desember 2005 53
FÓTBOLTI Aðdáendur Chelsea eru
vafalaust orðnir nokkuð öruggir
um að velgengni Chelsea haldi
áfram nú um jólin og eftir áramót.
Frank Lampard hefur hins vegar
varað við of mikilli bjartsýni
þar sem jólavertíð knattspyrnu-
manna hefur löngum verið erfið
og varhugaverð fyrir toppliðin.
Sigur Chelsea á Arsenal um
seinustu helgi viðhélt forskoti
Mourinho og félaga á hin liðin og
fór endalega með titilvonir Ars-
enal fyrir þetta árið. Þetta for-
skot gæti hins vegar verið fljótt
að fara ef Chelsea misstígur sig
um jól og áramót. Frank Lamp-
ard heldur því fram að enginn hjá
klúbbnum hafi efni á því að slaka
á næstu vikur.
,,Titilbaráttunni er ekki lokið
og það skilja allir hér hjá Chel-
sea að þessu er hvergi nærri
lokið. Bilið á milli okkar og næsta
liðs er níu stig og við erum full-
ir sjálfstrausts um að hið góða
gengi okkar haldi áfram. Það
getur samt allt gerst og ef við
töpum einum til tveimur leikjum
yfir jólin og Mancester United
vinnur þá er allt galopið í barátt-
unni um titilinn. Tími jólanna er
því mikilvægasti tími ársins fyrir
okkur.“
Næsti leikur Chelsea er gegn
Fulham á annan í jólum en þrjár
umferðir fara fram á fimm dögum
á Englendi um jólin. ■
Frank Lampard varar við of miklu öryggi:
Baráttunni ekki lokið
FRANK LAMPARD Biður félaga sína um að halda sig á jörðinni.
FÓTBOLTI Arsene Wenger hefur
látið hafa eftir sér að Joan Laporta,
forseti Barcelona, beri enga virð-
ingu fyrir reglum og hefur hótað
því að kæra hann fyrir að reyna
að nálgast framherjann Thierry
Henry án leyfis.
,,Ef þeir vilja kaupa hann
verða þeir að hringja í okkur og
láta okkur vita þar sem hann á 18
mánuði eftir af samningi sínum
við okkur. Ég neyðist til þess að
bregðast við svona dónaskap þar
sem þetta setur alla úr jafnvægi,
jafnt leikmenn og þjálfara sem og
stuðningsmenn. Þetta sýnir bara
að þessi maður ber enga virðingu
fyrir okkur eða þeim reglum sem
eru í gildi í knattspyrnunni í dag.
Það á ekki að skipta máli hvort þú
heitir Doncaster eða Barcelona,
það eiga allir að fara eftir settum
reglum.“ ■
Arsene Wenger:
Brjálaður út í
Joan Laporta
ARSENE WENGER Ekki sáttur með forsvars-
menn Barcelona.
FÓTBOLTI Að mati Alans Curbis-
hley, þjálfara Charlton Athletic,
eru uppraðanir leikja í kringum
jól og áramót fáránleg. Charlton
þarf að spila tvo útileiki, gegn
Newcastle og Everton, um jólin og
segir Curbishley að það sé allt of
löng ferðalög með of stuttu milli-
bili fyrir stuðningsmenn liðsins.
,,Við höfum verið frekar heppn-
ir með uppraðanir heimaleikja
okkar en útileikirnir eru alveg út
í hött. Þetta er klárlega eitthvað
sem knattspyrnusambandið þarf
að athuga og það fljótt,“ segir
öskureiður Alan Curbishley. ■
Ósáttur við fjölda leikja:
Útileikirnir
eru út í hött
ALAN CURBISHLEY Ekki ánægður með
niðurröðun leikja um jólin.