Fréttablaðið - 23.12.2005, Side 66
23. desember 2005 FÖSTUDAGUR54
KÖRFUBOLTI Þeir eru fjölmargir karl-
mennirnir í heiminum sem horfa
öfundaraugum til Frakkans Tony
Parker. Hann er fjallmyndarlegur,
farsæll íþróttamaður og sefur við
hlið einni fegurstu konu heims, Evu
Longoria. Mikið vill meira segir
einhvers staðar og það á svo sann-
arlega við í tilviki Parkers enda vill
hann miklu meira.
Hann er ekki sáttur við það að
vera þriðja hjólið við hlið Tims
Duncan og Manu Ginobili. Hann
vill vera þekktur sem aðalstjarnan
í liðinu rétt eins og bakverðirnir
Jason Kidd, Steve Nash og Allen
Iverson eru hjá sínum liðum.
„Ég á mér stóra drauma og vil
vera í sömu stöðu og þeir,“ sagði
Parker, sem er á sínu fimmta tíma-
bili í NBA-deildinni og hefur aldrei
leikið betur. Hann er með rúm 20
stig að meðaltali í leik, gefur 6,3
stoðsendingar og er að stela rúm-
lega fjórum boltum í leik. Hann
er þar að auki með tæplega 54%
skotnýtingu utan af velli, sem er
með því betra í deildinni.
Frammistaða Parkers í vetur
er ein aðalástæðan fyrir því að
San Antonio Spurs hefur hangið í
Detroit Pistons enda hafa aðrir lyk-
ilmenn í liðinu verið mikið meidd-
ir. Gregg Popovich, þjálfari Spurs,
segir að Parker sé stöðugasti
leikmaður deildarinnar.
„Mér finnst Tony vera leikmað-
ur sem hefur eitthvað að sanna.
Hann hefur verið óður í allan vetur
og ég hef aldrei séð hann eins ein-
beittan fyrir tímabilið og í sumar,“
sagði Popovich en Parker hefur
mikið verið að vinna í stökkskotinu
sínu, sem hefur ekki verið að skila
miklu síðustu ár.
„Ég er að læra að halda rétt á
boltanum og annað álíka. Ég hafði
verið að skjóta eins í fjögur ár með
döprum árangri þannig að það var
kominn tími á að reyna eitthvað
nýtt,“ sagði Parker en sérfræðingar
segja að þegar skotið hans verður
komið í lag verði hann óstöðvandi
og klárlega einn af bestu mönnum
deildarinnar. henry@frettabladid.is
Kynþokkafulli körfubolta-
maðurinn vill meira
Franski leikstjórnandinn Tony Parker hefur unnið tvo NBA-titla, var á topp 50
yfir kynþokkafyllstu karlmenn heims og kynbomban Eva Longoria er kærastan
hans. Hann er samt ekki saddur og vill meira,
FARSÆLL FRAKKI Parker sést hér með NBA-bikarinn í annarri og unnustuna Longoriu í
hinni. Hann lifir draumalífi margra karlmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Hinn þeldökki markvörð-
ur Shaka Hislop er búinn að slíta
vinskapi sínum við Ítalann Paolo
Di Canio eftir að Ítalinn tók upp
á því að heilsa að hætti fasista og
þar með ganga í lið með mönnum
sem hafa áhuga á flestu öðru en að
lifa í sátt og samlyndi með öðrum
kynþáttum.
„Paolo gaf sig aldrei út fyrir
að vera slíkur róttæklingur þegar
við vorum saman hjá West Ham.
Ég er mjög svekktur yfir því
hvernig hann hagar sér enda taldi
ég okkur vera vini,“ sagði Hislop.
„Hann náði vel saman með kon-
unni minni og börnum og ég trúi
varla að hann sé að haga sér svona
því hann er að senda út slæm skila-
boð sem hafa víðtæk áhrif.“
Di Canio hefur neitað að láta af
athæfinu og sjálfur Silvio Berlus-
coni, eigandi AC Milan og forsæt-
isráðherra Ítalíu, styður fast við
bakið á honum.
„Di Canio er skemmtikraft-
ur. Þessar handahreyfingar hafa
enga merkingu enda er hann góður
strákur,“ sagði Berlusconi. - hbg
Shaka Hislop ekki sáttur við félaga sinn Di Canio:
Ég leit á Di Canio sem
vin minn og félaga
PAOLO DI CANIO Er að verða umdeildasti
knattspyrnumaður Evrópu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, skilur vel
reiði stuðningsmanna félagsins í
sinn garð og leikmannanna og þeir
mega gagnrýna á vellinum eins og
þeir vilja að mati Fergusons. Hann
biður stuðningsmennina samt um
að sitja á sér þar til leikirnir eru
búnir áður en þeir byrja að baula
ef þeir telja ástæðu til.
„Nokkrir áhorfendur munu
alltaf segja sína skoðun umbúða-
laust. Ég get vel sætt mig við
það. Fólk verður vonsvikið þegar
árangurinn lætur á sér standa og
það á við áhorfendur sem og leik-
menn,“ sagði Sir Alex Ferguson,
stjóri Man. Utd.
Sir Alex Ferguson tjáir sig um stuðningsmenn Man. Utd.:
Sættir sig við gagnrýnina
SIR ALEX FERGUSON Segist skilja raunir
stuðningsmanna Man. Utd.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Framherji Arsenal, Robin
van Persie, er meiddur og getur
lítið sem ekk-
ert spilað yfir
hina miklu
jólavertíð sem
fram undan er
hjá ensku lið-
unum. Hinn
22 ára Hol-
lendingur fór út af í fyrri hálfleik
í leik Arsenal og Doncaster á mið-
vikudagskvöldið. Arsene Weng-
er, þjálfari Arsenal, segir að van
Persie sé tæpur fyrir næstu leiki.
,,Hann fékk slæmt högg á hnéð.
Það er stökkbólgið þannig að við
gerum okkur ekki alveg grein fyrir
því hve langan tíma þessi meiðsli
taka. Hann verður alla vega ekki
með á mánudaginn.“ Arsenal fer
á The Valley og mætir grönnum
sínum í Charlton Athletic á annan
dag jóla.
Van Persie meiddur:
Slæmt högg
á hnéð
ROBIN VAN PERSIE