Fréttablaðið - 27.12.2005, Síða 6

Fréttablaðið - 27.12.2005, Síða 6
6 27. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna boðar hér með til sjóðfélagafundar, sem haldinn verður miðvikudaginn 28. desember nk. kl. 17 á Grand Hóteli, Sigtúni 38, Reykjavík. Dagskrá fundarins: Gerð grein fyrir tillögum stjórnar til breytinga á samþykktum sjóðsins. Sjó›félagar og lífeyrisflegar sjó›sins eiga rétt til setu á fundinum. Tillögur stjórnar liggja frammi á skrifstofu sjóðsins. Reykjavík 27. nóvember 2005 Stjórn Lífeyrissjó›s verzlunarmanna Sími: 580 4000 • Netfang: skrifstofa@live.is Sjóðfélagafundur ANKARA, AP Dómstóll í Istanbúl dæmdi í vikunni rithöfund og blaða- mann fyrir að móðga Tyrkland. Zulkuf Kisanak, höfundur bók- arinnar Týndu þorpin, þar sem sagt er frá ofsóknum gegn Kúrdum á tíunda áratugnum, var dæmd- ur í fimm mánaða fangelsi eða til greiðslu sektar. Aziz Ozer, ritstjóri tímaritsins Yeni Dunya Icin Cagri, fékk tíu mánaða fangelsisdóm fyrir greinar þar sem stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd. Refsingunni var breytt í 300.000 króna sekt. Samkvæmt landslögum er refsi- vert að móðga tyrkneska lýðveldið en lagaákvæðin hafa mjög verið gagn- rýnt af öðrum Evrópuþjóðum. ■ Rithöfundar dæmdir: Móðguðu sjálft föðurlandið RÓM, AP Armando Spataro, dóm- ari á Ítalíu, hefur gefið út hand- tökuskipun, sem gildir í öllum ríkjum Evrópusambandsins, á 22 útsendara bandarísku leyniþjón- ustunnar CIA. CIA-mennirnir eru sagðir hafa rænt íslömskum klerki, Abu Omar að nafni, á götu í Mílanó í febrúar 2003 og flutt hann til Egyptalands þar sem hann var pyntaður. Áður hafði Spataro gefið út handtökuskipun á mennina sem gilti einungis á Ítalíu en einnig hafði hann farið fram á framsal þeirra. Silvio Berlusconi, for- sætisráðherra Ítalíu, sagðist í upphafi síðustu viku ekki ætla að fylgja beiðninni eftir þar sem ekki væri fótur fyrir ásökunum dómarans. ■ Ítalskur dómari: CIA-menn má taka höndum BRÚNAÞUNGUR Armando Spataro vill láta handtaka mennina vegna aðildar þeirra að mannráni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KJÖRKASSINN Ertu með meira en kvartmilljón í yfirdrátt? Já 41% Nei 59% SPURNING DAGSINS Í DAG: Borðaðir þú rjúpur um jólin? Segðu skoðun þína á visir.is VARSJÁ, AP Lech Kaczynski sór emb- ættiseið sinn sem forseti Póllands á Þorláksmessu. Hann hét því að berjast gegn spillingu og viðhalda nánum tengslum við Bandaríkin. Í innnsetningarræðu sinni fjallaði Kaczynski einkum um landsmálin og virtist honum sér- staklega umhugað að uppræta spillingu og draga úr áhrifum gömlu kommúnistanna. „Ríkið rækir ekki skyldur sínar við borg- arana,“ sagði hinn 56 ára gamli fyrrverandi borgarstjóri Varsjár. „Því verður verður að hreinsa það og endurreisa.“ Einnig vék Kaczynski að hinum viðkvæmu tengslum við Rússland, sem hann sagði „afar mikilvæg“, svo og áframhaldandi samvinnu við Bandaríkin. Kaczynski sigraði hinn frjáls- lynda Donald Tusk í kosningum 23. október en mánuði fyrr hafði flokkurinn Lög og réttlæti, sem Jaroslaw bróðir hans leiðir, unnið stórsigur í þingkosningunum. Gott gengi þeirra bræðra er til marks um að íhaldssamari vindar blási nú um Pólland. Aleksander Kwasniew- ski, fráfarandi forseti, er fyrrum kommúnisti og Marek Belka, sem gegndi forsætisráðherraembætt- inu þar til í haust, þegar Kazimierz Marcinkiewicz tók við stjórnar- taumunum. - shg Aleksander Kwasniewski lætur af embætti sínu sem forseti Póllands: Kaczynski sver embættiseið MÓÐURINNI ÞAKKAÐ Þegar Kaczynski hafði flutt ræðu sína kyssti hann á hönd Jadwigu móður sinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL Þórir Karl Jónasson býður sig fram í fjórða til fimmta sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík, en prófkjör flokks- ins fer fram aðra helgi í febrúar næstkomandi. Þórir kveðst styðja Stein- unni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra í efsta sæti list- ans, en segist munu standa að baki þeim sem nær fyrsta sæt- inu. „Ég legg áherslu á hækk- un lægstu launa og tel brýnt að eyða launamun kynjanna. Ég vil að borgin greiði götu þeirra sem vilja byggja leigu- íbúðir fyrir fólk og borgin fjölgi leiguíbúðum Félagsbústaða,“ segir Þórir Karl og kveðst fylgjandi því að núverandi R-lista flokkar starfi áfram saman nái þeir meirihluta. - jh Prófkjör Samfylkingarinnar: Þórir fer fram ÞÓRIR KARL JÓNAS- SON Þórir Karl vill í fjórða eða fimmta sætið hjá Samfylking- unni í Reykjavík. VEÐUR Veðráttan getur verið grimm jafnvel á helgustu stund- um. Á Bolungarvík skall á aftaka- veður á um klukkan átta á jóla- dagsmorgun. Þak fór af Gamla stúkuhúsinu þar í bæ og fauk yfir þrjú nærliggjandi hús. Starfs- stúlka á sjúkrahúsinu segir guðs- mildi að ekki skuli hafa farið verr þegar klumpur sem fauk af Gamla Stúkuhúsinu fór inn um glugga sjúkrastofu og eftir endilögum ganginu og inn í aðra sjúkrastofu hinumeginn við ganginn. Enginn var í hvorugri stofunni en einn sjúklingurinn var við það að fara fram á gang þegar ósköpin dundu yfir. Brak fauk yfir tvö önnur hús, braut rúður og skemmdi klæðn- ingar að sögn lögreglunar í Bol- ungarvík. Þá fauk þak af fjárhúsi í Minni- Hlíð við Bolungarvík. Sigurgeir Jóhannsson sem þar hafði 160 kindur varð því að hafa snör hand- tök og kom hann ánum fyrir í fjár- húsi í Miðdal. Ekki varð því meint af volkinu. Á Vesturlandi fengu menn og skepnur einnig að finna til tevatns- ins sökum fárviðris. Rafmagn fór af í allri Kjósinni um klukkan hálf sex á jóladagsmorgun. „Menn eru almennt ekki svo árrisulir á þess- um tíma en á þessum slóðum þurfa þeir samt sem áður að mjólka en beljurnar urðu að bíða þar til rétt rúmlega níu að rafmagnið kom á aftur,“ segir Ingi B. Ingason sem stóð bilunarvaktina hjá Rarik á Vesturlandi. Hann segir að marg- ir hafi verið farnir að finna fyrir kulda í hýbílum sínum þennan jóladagsmorgun. Um sautján bæir urðu rafmagnslausir en einnig er mikið af sumarhúsum á svæðinu. Bilunin var á línu skammt hjá Grjóteyri við Meðalfellsvatn. „Það gekk bara ágætlega að gera við. Ég átti von á því að þetta stæði leng- ur yfir en við erum með svo býsna góða menn í þessu og það varð okkur til bjargar,“ segir Ingi. - jse ÞAKIÐ FAUK AF FJÁRHÚSINU Þakið fauk af fjárhúsinu í Minni-Hlíð við Bolungarvík. Bóndin kom ánum fyrir í annað fjárhús og ætlar ekki að endurbyggja þetta. SVEITARSTJÓRNARMÁL Óvissa um framtíðarstaðsetningu olíubirgð- astöðvar olíufélaganna á Ísafirði stendur viðhaldi fyrir þrifum, að mati bæjarstjórans. Hann vill að stöðin verði áfram á sama stað, meðan aðrir vilja flytja hana. Bryndís Friðgeirsdóttir, bæj- arfulltrúi Samfylkingar á Ísafirði, segist ósátt við að vera með olíu- birgðastöð í hjarta bæjarins. „Lítill hluti lóðaleigusamningsins er enn í gildi og stærsti hlutinn af runninn út. Búið er að bjóða þeim aðra lóð sem þeir afþökkuðu og þar með vill bæjarstjórinn meina að við getum ekkert gert því svo mikið kosti að flytja þá,“ segir hún og bendir á að nýtt skipulag geri ráð fyrir bryggju- hverfi og litlum íbúðum nálægt stöðinni. „Og það er alveg út úr kú að vera með starfsemina á þessum stað,“ segir hún og kveður nægt pláss til að flytja tankana, aðeins þurfi að koma til aukin uppfylling. „Mér heyrist hins vegar vera upp- gjafartónn í bæjarstjóranum gagn- vart olíufélögunum.“ Halldór Halldórsson bæjarstjóri kveðst oft hafa lýst þeirri skoðun sinni að illskásti staðurinn fyrir birgðastöð olíufélaganna sé þar sem hún er nú. „Hér þarf að vera hægt að skipa upp og afgreiða skip með olíu. Við fengum arkitekt til að velta fyrir sér öðrum staðsetningum, en þær eru allar haldnar sömu ann- mörkum,“ segir hann og bendir á að enn sé í gildi sé lóðaleigusamningur sem gerður hafi verið árið 1950 til 99 ára. Halldór bendir á að tankarnir séu á tveimur lóðum og segir að starf- semin fari af lóðinni við Mjósund þar sem samningur sé runnin út. „En þar hefur þetta mest farið í taugarnar á fólki út af draslaraskap.“ Hann segir bæði Olíudreifingu og Shell und- anfarin ár ítrekað hafa knúið á um svör frá bænum um hvar staðsetja ætti birgðastöðina til framtíðar, en vegna óvissunnar sem um það ríkti hafi þau ekki farið í nauðsynlegar kostnaðarsamar viðhaldsaðgerðir. Halldór segir að félögin hafi fyrir árslok átt að byggja nýja þró og gera birgðastöðina upp, en nú sé ljóst að þau þurfi undanþágu fyrir rekstur- inn. Hann boðar ákvörðun um málið snemma á nýju ári. Guðmundur Kristjánsson, hafnarstjóri Ísafjarðarhafnar, segir mál olíubirgðastöðvarinnar lítið hafa komið inn á borð til sín. Hann segist þó trúa að vaknað hafi vangaveltur um öryggi tank- anna eftir nýlegan stórbruna í olíubirgðastöð i Bretlandi. „Þetta hlýtur að vekja fólk til umhugsun- ar. Þessi birgðastöð er náttúrlega að verða inni í miðbæ Ísafjarðar og hlýtur að skoðast í samhengi, ef þetta spryngi nú í loft upp þá færu ansi margir með.“ olikr@frettabladid.is Íbúar vilja olíubirgðastöð burt vegna sóðaskaps Á Ísafirði er deilt um framtíðarstað birgðastöðvar olíufélaganna. Bærinn hefur rætt við olíufélögin um flutning en þau hafnað nýjum stað. Bæjarstjórinn segir að olíuafgreiðsla þurfi að vera við höfnina. Aftakaveður í Bolungarvík á jóladagsmorgun: Spýtnabrak fauk inn í sjúkrastofu OLÍUTANKAR Á ÍSAFIRÐI Bryndís Friðgeirsdóttir, bæjarfulltrúi á Ísafirði, efast um að allir bæjarbúar geri sér grein fyrir að verið geti að meirihluti bæjarstjórnar festi niður staðsetn- ingu olíutanka olíufélaganna þar sem þeir eru nú. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Vara við hatursáróðri Danskir prest- ar notuðu tækifærið í guðsþjónustum um jólin til að mótmæla neikvæðri um- ræðu um innflytjendur í Danmörku. Yfir 200 prestar hafa tekið sig saman um að vara við hatursfullum tón í umræðunni. DANMÖRK
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.