Fréttablaðið - 27.12.2005, Blaðsíða 59
27. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR42
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma
Ása Guðlaug Gísladóttir
f. 11.12.1917, Fannafold 125a Reykjavík
sem lést þann 18 des. verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 28. desember kl. 15.00
Gunnar Sighvatsson
Sigrún Sighvatsdóttir Jón Gústafsson
Ólöf Sighvatsdóttir Þorvaldur Bragason
Gísli Á. Sighvatsson Kristjana G. Jónsdóttir
Ástrós Sighvatsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Dánar_Ása 26.12.2005 17:04 Page 1
Elskuleg móðir okkar, fósturmóðir,
tengdamóðir og amma,
Hulda Þorbjörnsdóttir
sem lést á Hrafnistu Hafnafirði sunnudaginn 18. des-
ember verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnar-
firði miðvikudaginn 28. desember kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorbjörn Eiríksson
Gunnhildur Eiríksdóttir
Guðný Eiríksdóttir
D gbjört Guðmundsdóttir
Pétur Sigurðsson
Dánar_Hulda 26.12.2005 17:04 Page 1
AFMÆLI
Bjarni Felixson íþróttafréttamað-
ur er 69 ára.
Þórólfur Þórlindsson prófessor
er 61 árs.
Gunnar Ingi Gunnsteinsson
leikstjóri er 36 ára.
Linda Pétursdóttir, athafnakona
og fyrrum fegurðardrottning, er
36 ára.
Kjartan Sturluson knattspyrnu-
maður er þrítugur.
Hólmfríður Anna Baldursdóttir,
upplýsingafulltrúi UNICEF, er 28
ára.
Bjarni Hafþór Helgason tekur við
starfi fjárfestingastjóra Kaupfélags
Eyfirðinga um áramótin. Fjárfest-
ingastjóri er nýtt starf hjá KEA en í
því felst framkvæmdastjórn tveggja
nýlegra dótturfélaga KEA, fjárfest-
ingarfélaganna Hildings og Upphafs,
en samanlagt stofnfé þeirra er um 1,7
milljarðar króna.
Bjarni Hafþór fæddist á Húsavík
1957 og ólst þar upp við gott atlæti
þar til leið hans lá í Menntaskólann á
Akureyri. Fótbolti, útivist, náttúra og
fiskvinna er það sem kemur í huga
Bjarna Hafþórs þegar hann hugsar
til bernskuáranna og á Húsavík sleit
hann mörgum pörum af svörtum hvít-
botna gúmmískóm.
Húsvíkingar kölluðu hann ætíð
Haffa en menntskælingar á Akureyri
voru formlegri og þekkja hann betur
sem Bjarna eða Bjarna Hafþór. Sjálf-
ur kann hann vel við gælunafnið sem
honum var gefið í æsku. Að loknum
menntaskóla lá leið hans í Háskóla
Íslands og þaðan útskrifaðist hann
sem virðulegur viðskiptafræðingur
árið 1983.
Knattspyrnuáhuginn hefur loðað
við Bjarna Hafþór frá æsku og enn í
dag grípur hann reglulega í fótbolta.
Meðal afreka nefnir hann að árið 1981
varð hann Íslandsmeistari með liði
Víkings í Reykjavík og eitt sumarið
varð hann markakóngur Akureyrar
með Þór. Svo samdi hann knattspyrnu-
söng fyrir KA þegar þeir urðu Íslands-
meistarar 1989, „Áfram KA-menn“, og
þótti sumum Þórsurum það mjög hæp-
inn verknaður.
Húmor, sprell og léttleiki er aldrei
langt undan þegar Haffi á í hlut og
endurspeglast oft í hans tónlistarsköp-
un- og textagerð. Lögin Hryssan mín
blá, Aukakílóin og Tengja, öll flutt af
Skriðjöklum, eru löngu landsfræg og
hafa létt mörgum lundina.
Fjölmargir tónlistarmenn hafa
flutt lög eftir Bjarna Hafþór og nú á
aðventunni ómaði jólalagið „Við erum
jólasveinar“ eftir hann í verslunum
á Glerártorgi á Akureyri; í flutningi
Skyrgáms, Hurðaskellis og Bjúgna-
krækis. Sjálfur hefur Bjarni Hafþór
þó einungis verið í einni hljómsveit um
ævina, Ókyrrð, og í fyrra kom út disk-
ur með hljómsveitinni með fimmtán
lögum sem öll voru samin af honum.
Áratuginn 1986 til 1996 starfaði
Bjarni Hafþór við fjölmiðlun og lands-
þekktur varð hann fyrir dagskrárgerð
og fréttamennsku á Stöð 2. Hann á
margar góðar minningar frá veru
sinni á Stöð 2 og eitt af því sem stendur
upp úr er saklaus frétt um fyrsta barn
ársins sem olli því að símkerfi Stöðvar
2 brann yfir. „Mér varð það á að óska
móðurinni til hamingju með krógann
en sú orðnotkun telst ekki niðrandi á
Akureyri eða Húsavík og til að mynda
heitir einn leikskólinn á Akureyri
Krógaból. Þetta fór þó fyrir brjóstið
á fjölda fólks, vítt og breitt um land-
ið, og svo mikið var hringt og kvartað
að símkerfi Stöðvar 2 gaf sig,“ segir
Bjarni Hafþór.
Sem stendur er Bjarni Hafþór í fjar-
búð eins og hann kallar það en hann á
sautján ára stelpu og 27 ára strák frá
fyrra hjónabandi. „Ég er býsna upptek-
inn af samskiptum mínum við börnin
mín og held að stundum finnist þeim
sjálfum nóg um. En þau eru auðvitað
fullorðin og hafa ýmislegt fleira að gera
en tala við pabba gamla en í mínum
huga verða þau þó alltaf börn og aldrei
fullorðin,“ segir Bjarni Hafþór. ■
BJARNI HAFÞÓR HELGASON: HEFUR STÖRF HJÁ KEA UM ÁRAMÓT
Sprengdi símakerfi Stöðvar 2
BJARNI HAFÞÓR HELGASON Hefur brallað margt um ævina og er kunnur bæði af fréttamennsku á Stöð 2 og nokkrum vinsælum dægurlögum sem Skrið-
jöklar fluttu um árið. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
Á þessum degi árið 1985
réðust hryðjuverkamenn
á tvo flugvelli í Evrópu
samtímis; annars vegar
á flugvöllinn í Róm og
hins vegar flugvöllinn í
Vínarborg. Í Róm hófu
vígamennirnir skotárás
á farþega við innritun-
arborð hins ísraelska
flugfélags EI AI. Árásirnar
hófust á nálægt því sama
tíma klukkan rúmlega
átta um morguninn. Mikil
ringulreið varð í þær fimm mínútur sem árásin í
Róm stóð og farþegar köstuðu sér til jarðar til að
forðast kúlnahríðina sem dundi úr byssum hryðju-
verkamannanna þriggja.
Í Austurríki voru víga-
mennirnir einnig þrír
og köstuðu þeir hand-
sprengjum að farþegum
á leið til Tel Aviv. Alls lét-
ust 18 manns í árásunum
og 120 særðust. Í fyrstu
var talið að PLO, frelsis-
samtök Palestínu stæðu
fyrir árásinni, en leiðtogi
þeirra, Jasser Arafat, for-
dæmdi árásirnar. Líklegt
er talið að Abu Nidal, eða
Sabri al-Banna, hafi verið
heilinn á bak við ódæðin, en hann yfirgaf PLO árið
1974 og fór meðal annars fyrir Fatah-hreyfingunni.
Hann fannst látinn við dularfullar aðstæður í Írak árið
2002.
ÞETTA GERÐIST > 27. DESEMBER 1985
Hryðjuverk á flugvöllum
MERKISATBURÐIR
1831 Charles Darwin leggur af
stað í fimm ára könnunar-
leiðangur frá Plymouth um
borð í skipinu HMS Beagle.
1932 Stærsta leikhús innandyra
í heiminum, Radio City
Music Hall, er formlega
opnað í New York.
1960 Frakkar sprengja þriðju
atómsprengjuna í tilrauna-
skyni í Sahara-eyðimörkinni.
1977 Maður situr fastur í reykháfi
í átta klukkustundir í fjöl-
býlishúsi í Reykjavík. Hann
hafði verið á gangi á þaki
hússins til að stytta sér leið
á milli íbúða. „Ég er búinn
að vera hérna síðan á
annan í jólum,“ sagði mað-
urinn í viðtali við Dagblaðið
þegar hann var losaður.
1979 Sovétmenn ráðast inn í
Afganistan.
2004 Viktor Júsjenkó sigrar í for-
setakosningum í Úkraínu.
ALAN BATES (1934-2003)
„Ég held að tvær manneskjur geti
elskað hvor aðra án þess að þeim
semji nokkurn tímann.“
Alan Bates var breskur leikari sem var sleginn til
riddara sama ár og hann lést.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1571 Johannes Kepler, þýskur
stjörnufræðingur.
1717 Píus VI, páfi.
1822 Louis Pasteur, franskur
vísindamaður.
1901 Marlene Dietrich, þýsk söng
- og leikkona.
1948 Gérard Depardieu, franskur
leikari.
1971 Duncan Ferguson, skoskur
knattspyrnumaður.
JARÐARFARIR
13.00 Ingibjörg Stefánsdóttir, Star-
engi 28, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Grafarvogs-
kirkju.
14.00 Bettý Marsellíusdóttir,
Ásbyrgi, Hófsósi, verður
jarðsungin frá Hofsósskirkju.
14.00 Hreinn Elíasson listmálari,
Jörundarholti 108, Akranesi,
verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju.
15.00 Jóhanna (Stella) Haralds-
dóttir, til heimilis á Lindar-
götu 57, verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni.
ANDLÁT
Margrét Stefanía Hallgrímsdóttir,
Laugarvegi 24, Siglufirði, andaðist
á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar
að kvöldi miðvikudagsins 21.
desember.
Margrét Jónsdóttir, Arnarhrauni
14, Hafnarfirði, lést á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi miðviku-
daginn 21. desember.
Óli Björgvinsson, Sandbakka,
Höfn, andaðist á heimili sínu
fimmtudaginn 22. desember.
Sólveig Ósk Sigurðardóttir,
Veghúsum 31, lést á Landspít-
ala Fossvogi fimmtudaginn 22.
desember.
Sveinn Albertsson, Kirstinedalsvej
6, Valby, lést fimmudaginn 22.
desember.
Útskrifað var úr Fjöltækni-
skóla Íslands í fyrsta sinn,
þriðjudaginn 20. desember.
Fjöltækniskólinn varð til
á grunni Vélskóla Íslands
og Stýrimannaskólans í
Reykjavík en skólunum
tveimur var slitið í síðasta
sinn, síðastliðið vor.
Fjórtán nemendur
útskrifuðust frá skólanum
að þessu sinni, níu af vél-
stjórnarsviði og fimm af
skipstjórnarsviði, ýmist
með eða án stúdentsprófs.
Andri Leifsson hlaut
viðurkenningu fyrir hæstu
einkunn siglingagreina,
Atli Sigmar Hrafnsson
fyrir íslensku og Sigurð-
ur Bergmann Gunnarsson
og Bjarni Valur Einarsson
fyrir vélstjórnargreinar.
Þá hlutu fjórir nemendur
viðurkenningar fyrir full-
komna mætingu, þeir Davíð
Óðinn Bragason, Guðmund-
ur Grétar Bjarnason, Hall-
dór Ingi Ingimarsson og
Reynir Baldursson. ■
ÚTSKRIFAÐIR Fyrsti nemendahópurinn sem útskrifast frá hinum nýja Fjöl-
tækniskóla Íslands.
Útskrifað úr Fjöltækniskólanum