Fréttablaðið - 27.12.2005, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 27.12.2005, Blaðsíða 18
18 27. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR H im in n o g h a f / S ÍA Korngörðum 2 104 Reykjavík Sími 525 7000 Fax 525 7009 www.eimskip.is info@eimskip.is Hið sívinsæla og ómissandi dagatal Eimskips 2006 er komið út. Hluthafar geta nálgast dagatalið á næsta afgreiðslustað Eimskips eða skráð sig á eimskip.is og óskað eftir að fá það sent. Einnig er hægt að hringja í síma 525 7000 og panta eintak. Dagatal Eimskips er komið út BÓLIVÍA Öruggur sigur Evo Morales í forsetakosningunum í Bólivíu um helgina gæti haft breytingar í för með sér fyrir þetta fátækasta ríki Suður-Ameríku. Frjálslynd viðhorf Morales til ræktunar kókaplönt- unnar hafa einkum vakið athygli, en lauf plöntunnar nota Bólivíu- menn bæði til tegerðar og lækn- inga. Laufin eru einnig notuð til framleiðslu kókaíns. Evo Morales nýtur víðtækari stuðnings en nokkur forseti hefur gert frá stofnun lýðveldis í Bólivíu. Morales er jafnframt fyrsti forset- inn af indíánaættum sem kemst til valda í 180 ára sögu landsins, þrátt fyrir að meirihluti íbúa sé indíán- ar. Morales ólst upp í fátækt og gætti lamadýra í æsku en fjöl- skylda hans sneri sér síðar að kókarækt. Morales gerðist á full- orðinsárum verkalýðsleiðtogi og barðist hatrammlega gegn vilja Bandaríkjamanna til að uppræta ræktun plöntunnar. Ádeila hans vatt upp á sig og barðist hann síðar einnig gegn fátækt og hnattvæð- ingu. Fátækt er gríðarstórt vanda- mál í Bólivíu og er það að hluta til vegna mikillar spillingar sem þrifist hefur í landinu. Landsfram- leiðsla var á síðasta ári sambærileg við Afganistan og Angóla. Mikil verðmæti liggja þó í jörðu, en talið er að einungis Venesúela búi yfir meiri jarðolíubirgðum í jörðu af ríkjum Suður-Ameríku. Erlend olíufyrirtæki hafa síð- astliðið ár haldið að sér höndum vegna óstöðugleika í stjórn lands- ins. Nú hefur Morales hins vegar boðað þjóðnýtingu olíulindanna og vill ná betri samningum við erlend fyrirtæki sem sjá um framleiðslu olíunnar. Þá neitar Morales því alfarið að kókalaufið sé fíkniefni. Indí- ánar í fjallahéruðum Bólivíu hafi árhundruðum saman notað lauf- in, en þegar þau eru tuggin fást fram minni áhrif en þegar kaffi er drukkið. Fátækir Bólivíumenn líta þó margir hverjir svo á að lauf- in séu eina leið þeirra til þess að vinna allan daginn, en vinnutím- inn getur orðið fimmtán til átján klukkustundir á sólarhring. Morales segir notkun kókalauf- anna aldrei hafa valdið indíánum vandkvæðum og því sé rétt að taka á þeim vanda sem af misnotk- un kókaíns hlýst með því að veita neytendum sjálfum aðstoð, en ekki með því að loka plantekrunum. Stefna Morales í þessum málum er því í miklu ósamræmi við við- horf Bandaríkjastjórnar til laga- setningar og samstarfs milli land- anna, en þau hafa beitt sér gegn ræktun kókaplöntunnar. Hins vegar hafa embættismenn beggja þjóða lýst yfir vilja til þess að berj- ast gegn flutningi fíkniefna milli landa. Bandaríkjaforseti hefur þó lýst yfir stuðningi við Morales og stjórn hans, auk þess að óska honum til hamingju með kjörið. Það hafa leiðtogar nokkurra Evr- ópuríkja jafnframt gert, auk allra þjóðarleiðtoga í nágrannaríkjum Bólivíu. Það verður því spennandi að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir Bólivíu undir stjórn Evo Morales. Betri tíð fyrir kókabændur Frjálslynd viðhorf Evo Morales, nýs forseta Bólivíu, til ræktunar kókaplöntunnar hafa vakið athygli. Hann hefur barist fyrir ræktun plöntunnar, enda sé hún ekki bara notuð til framleiðslu kókaíns. KÓKARÆKT Bólivískir bændur sem rækta kókaplöntuna, sem er meðal annars notuð til framleiðslu kókaíns, vonast eftir betri tíð nú þegar nýr forseti hefur tekið við stjórnartaumum í landinu. Evo Morales, nýi forsetinn, trúir því að vandamál vegna kókaínneyslu eigi að leysa með því að hjálpa notendum efnisins í stað þess að loka plantekrum sem rækta kókaplöntuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.