Fréttablaðið - 27.12.2005, Blaðsíða 8
8 27. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Á eigin vegum um hátíðarnar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
05
89
12
/2
00
5
Ekkert jafnast á við að aka um frjáls í bíl frá Hertz. Ef þú átt ekki
bílinn sem hentar hverju sinni þá getum við hjá Hertz bætt úr því
fyrir lægra verð en þig grunar. Það er óþarfi að eiga jeppa til að
komast allt sem þú vilt fara. Engar áhyggjur, bara gleðilega hátíð.
50 50 600 • www.hertz.is
Sölustaðir: Keflavíkurflugvöllur, Reykjavík, Ísafjörður, Akureyri, Höfn, Egilsstaðir
Hátíðartilboð
Toyota Corolla
frá 3.571 kr. á dag
Toyota Rav4
frá 4.471 kr. á dag
Toyota Land Cruiser
frá 5.071 kr. á dag
Innifalið: 100 km á dag og CDW (kaskótrygging).
Verð miðast við 7 daga leigu.
Tilboð gildir til 15.01.2006
Sjá nánar á hertz.is
„Maíkvöld í Moskvuborg ´06”
Bjarmalandsför
til Moskvu og Pétursborgar
30. apríl – 10. maí 2006
Tvær merkustu borgir Rússaveldis verða heimsóttar undir öruggri leiðsögn Hauks
Haukssonar (hins eina sanna!). Menning og listir svíkja engan og heimamenn halda
tvær vorhátíðir á tímabilinu, 1. maí og 9. maí - Sigurdaginn í heimstyrjöldinni síðari.
Bjarmaland ferðaskrifstofa og samstarfsaðilar óska landsmönnum öllum og ferðalöngum
sínum fyrr og síðar góðra ferða á komandi ári. Lifið heil!
С Новым годом 2006!
Félagið MÍR - Menningartengsl Íslands og Rússlands er flutt af Vatnsstígnum á
Hverfisgötu 105, 1. hæð.
Í nýja MÍR salnum verður ferðakynning sunnudaginn 8. janúar 2006 kl 16:00,
allir velkomnir.
Nánari uppl.: www.austur.com
bjarmaland@strik.is
moskva@torg.is
Hafið samband við aðalfararstjóra Hauk Hauksson í
síma 848 44 29
Takmarkaður sætafjöldi!
ÁRAMÓT Sala á flugeldum hefst á á
morgun og þar með er almenn notk-
un flugelda heimil til 6. janúar en um
notkun þeirra gilda reglur sem lög-
reglan biður fólk að fara eftir.
Friðrik Gunnar Gunnarsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykja-
vík, segir að einungis sé heimilt að
skjóta upp á milli níu á morgnana
og miðnættis. Á gamlárskvöld er
hins vegar heimilt að skjóta upp alla
nóttina. Engin refsiákvæði eru til
við brotum á reglunum enda segist
Friðrik óttast að helmingur borgar-
búa myndi gista fangageymslur ef
svo væri.
Lögreglan gefur út leyfi til rúm-
lega þrjátíu söluaðila fyrir þessi
áramót og verða sölustaðir á höfuð-
borgarsvæðinu um fimmtíu talsins.
Jón Ingi Sigvaldason, sölu- og
markaðsstjóri flugeldasölu Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar, hvetur
fólk til að nota ávallt hanska og þar
til gerð hlífðargleraugu. Hann telur
afar óskynsamlegt að fólk geymi
ónotaða flugelda til næstu áramóta,
því varðveisla þeirra sé varhuga-
verð og gæta þurfi þess að ekki ber-
ist raki í þá því þá geta þeir verið
stórhættulegir. Gömlum flugeldum
er hægt að koma til björgunarsveit-
anna til förgunnar og segir Jón Ingi:
„Ég mæli með því að fólk skjóti upp
þeim flugeldum, sem eftir eru frá
áramótunum, á þrettándanum svo að
fólk sé ekki að geyma flugelda inni á
heimilunum á milli ára,“ segir Jón.
Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson,
yfirlæknir á slysadeild Landspítal-
ans í Fossvogi, segir að slysatilfell-
um fjölgi ávallt um þetta leyti. Af
þeim tilfellum eru ungir drengir
áberandi í meirihluta, enda segir
hann þá vera markhóp flugeldasala.
Á áramótunum bætast í hóp sjúk-
linga menn sem hafa slasað sig á
flugeldum eftir að hafa oft á tíðum
haft áfengi um hönd, en Ófeigur vill
brýna fyrir fólki að áfengi og flug-
eldar fari aldrei saman.
Á gamlárskvöld eru mun fleiri
hjúkrunarfræðingar og læknar á
vakt á slysadeild Landspítalans.
- æþe
Strákar slasa
sig oftast
Almenn sala og notkun á flugeldum verður heimil
frá og með morgundeginum. Lögregla hvetur fólk
til að sýna hvert öðru tillitssemi við notkun þeirra.
SKOTIÐ Á LOFT Almenn flugeldasala hefst
næstkomandi miðvikudag.
AKUREYRI Kristján Þór Júlíus-
son, bæjarstjóri á Akureyri, og
Margrét Pála Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hjallastefnunn-
ar, hafa undirritað samning um
rekstur leikskólans Hólmasólar
á Akureyri. Samningurinn er til
fjögurra ára en Hólmasól verð-
ur fyrsti leikskólinn á Akureyri
sem rekinn verður að undan-
gengnu útboði. Börnunum á
Hólmasól verður skipt í deildir
eftir kyni en skólinn mun starfa
eftir hugmyndafræði Hjalla-
stefnunnar.
Hjallastefnan var eina fyrir-
tækið sem bauð í reksturinn en
Kristján Þór segist þó ánægður
með samninginn. „Kostnaður
bæjarins verður svipaður við
þennan leikskóla og aðra leikskóla
bæjarins og leikskólagjöld verða
þau sömu,“ segir Kristján Þór.
Leikskólinn er enn í byggingu
en gert er ráð fyrir að hann verði
tekinn í gagnið í apríl á næsta ári.
Hólmasól mun rúma 157 börn á
sex deildum en stöðugildin við
skólann verða um þrjátíu talsins.
Kristján Þór segir að eng-
inn biðlisti sé nú fyrir börn frá
tveggja ára aldri á leikskólunum
á Akureyri og frá og með næsta
hausti verði átján mánaða börn-
um boðið upp á leikskólapláss.
- kk
Akureyrarbær semur við Hjallastefnuna um rekstur nýs leikskóla:
Fyrsti kynjaskipti leikskólinn
SAMNINGURINN UNDIRRITAÐUR Kristján
Þór Júlíusson og Margrét Pála Ólafsdóttir
undirrituðu samninginn. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
ÁLANDSEYJAR Íbúar á Álandseyj-
um greiða átta prósentum hærra
matarverð en íbúar Nådendal í
Finnlandi. Hæsta verðið í mat-
vöruverslunum í Nådendal er
jafn hátt og lægsta verðið í mat-
vöruverslunum í Mariehamn á
Álandseyjum, að sögn Hufvud-
stadsbladet.
Þetta kemur fram í verðkönn-
un sem gerð var í fimm matvöru-
verslunum á Álandseyjum og í
Finnlandi fyrir skömmu. Alls
voru 107 vörutegundir í körfunni
sem könnunin tók til.
Álandseyjar tilheyra Finn-
landi en þar hefur matvöruverð
lækkað mikið síðustu ár. - ghs
Matarkarfan á Álandseyjum:
Dýrari en í
Finnlandi
SVÍÞJÓÐ Þrjú hneykslismál hafa
komið upp hjá sænskum innflytjenda-
yfirvöldum að undanförnu og hefur
framkvæmdastjóri Útlendingastofn-
unarinnar beðist afsökunar opinber-
lega.
Starfsmenn á innflytjendaskrif-
stofunni í Kristianstad á Skáni vís-
uðu í fyrra einstæðri móður með
þrjú ung börn úr landi og héldu svo
upp á það með tertuveislu á vinnu-
staðnum.
Sænskir vefmiðlar greindu svo
frá því í vikunni að Útlendinga-
stofnunin í Svíþjóð hefði hald-
ið upp á brottvísun
r ú s s n e s k r a r
fjölskyldu með
veikt barn með
því að skála í
kampavíni.
Í r a s k u r
maður, sem blindað-
ist í stríðinu í Kúvæt,
var síðan niðurlægður
með dónalegum svörum
þegar hann óskaði eftir húsnæðisað-
stoð eða vist á heimili fyrir blinda.
Honum var sagt að horfa í augun á
starfsmanninum þegar hann talaði
við hann og að hann ætti að bjarga sér
sjálfur. Túlkurinn tók samtalið upp.
„Við erum ekki mamma þín eða
pabbi,“ sagði millistjórnandi hjá
Útlendingastofnuninni. Þegar Írak-
inn sagðist allt eins geta stytt sér
aldur ef hann fengi ekki aðstoð var
svarið: „Gerðu það sem þú vilt.“
Þetta hefur vakið hörð viðbrögð
þar í landi og hefur nokkrum
stjórnendum verið sagt upp störf-
um, þó ekki framkvæmdastjóra
Útlendingastofnunarinnar.
Málin eru enn til rannsóknar.
- ghs
Sænsk innflytjendayfirvöld:
Fögnuðu brottvísun
innflytjenda í nauð
TERTUSNEIÐAR Þrjú hneyksli hafa
komið upp hjá innflytjendayf-
irvöldum í Svíþjóð en þar hafa
starfsmenn á nokkrum stöðum
haldið upp á brottvísun útlendinga
með tertu eða skálað í kampavíni.
Málin eru til rannsóknar.
VEISTU SVARIÐ
1 Hver fer fyrir Kjaradómi?
2 Hver gegnir embætti formanns Félags ungra framsóknarmanna í
Reykjavík?
3 Hvaða Hollywood-stjarna fékk hjónaband sitt ógilt á dögunum?